Fara í efni

Greinar

  • 02.05.2026

    ÁRVEKNI Í STAÐ ANDVARALEYSIS

    Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 02/03.05.26. Ég held að það hafi verið söngvaskáldið okkar hann Bubbi sem varaði við óttanum í skrifum á samfélagsmiðli nýlega; að við ættum ekki að láta stjórnast af ótta. Hann tengdi hugleiðingar sínar umræðunni um Evrópusambandið, ekki þannig þó að hann tæki afstöðu á einn veg öðrum fremur eftir því sem ég skildi hann; við ættum einfaldlega að mynda okkur skoðun án þess að vera haldin ótta ...
  • 02.05.2026

    MÁL MÁLANNA TIL UMRÆÐU

    Ástæða er til þess að vekja athygli á þessum áhugaverða fundi um málefni sem lífsnauðsynlegt er - í bókstaflegum skilningi- að setja sig inn í og taka afstöðu til. Þetta er þeim mun mikilvægara eftir því sem hertur er áróðurinn fyrir því að Ísland gerist tannhjól í vaxandi hervél Evrópusambandsríkja ...
  • 02.05.2026

    UTANRÍKISRÁÐHERRA ESB OPNAR PAKKANN

    ... Allt það er í pakkanum sem Kaja Kallas, talskona Evrópusambandsins í utanríkismálum, segir okkur svo skilmerkilega frá á hverjum fundinum á fætur öðrum. Og það mun auk þess fylgja með í pakkanum að íslenski fáninn kæmi til með að blakta við hún þegar stigmögnun vígbúnaðar er kynnt, auknum útgjöldum til hernaðar er fagnað, stuðningur við heimsauðvaldið er réttlættur og þvingunaraðgerðir gagnvart ríkjum sem óhlýðnast því að sama skapi ...
  • 01.05.2026

    BARÁTTA FYRIR JÖFNUÐI OG FRIÐI - GEGN ARÐRÁNI OG OFBELDI

    ... Gegn þessari þróun þarf íslensk verkalýðshreyfing að beita sér með því að tala skýru máli réttlætis frá þeirri stöðu sem þarf að tryggja Íslandi: Herlaust land, utan hernaðarbandalagsins NATÓ og Evrópusambands auðvaldsins ...
  • 30.04.2026

    ALFRED DE ZAYAS: THE ANTIOGONE MOMENT

    The Antigone Moment: Denouncing the Inhumanity of EU and US Sanctions is the full title of a thought provoking article by Alfred de Zayas, prolific analyst and writer of world renown ... Slóðin hér að neðan vísar til frábærrar greinar eftir Alfred de Zayas um einhliða refsiaðgerðir BNA og ESB og uppgang fasískrar hugmyndafræði í Evrópu ...
  • 29.04.2026

    FÖRUM AÐ DÆMI G.G.G!

    Ég var spurður að því í dag hvað væri til bragðs að taka gegn hervæðingarfárinu sem nú ríður yfir heiminn. Spurningin hafði reyndar lengi leitað á mig. En svarið var mér nú orðið augljóst og að bragði sagði ég að við ættum að fara að dæmi Guðmundu G. Guðmundsdóttur ... Grein sína byggir Guðmunda á rannsókarstarfi og vísar hún ítarlega í heimildir. Upp í hugann kemur hve mjög grasrótarstarf Guðrúnar Agnarsdóttur læknis, síðar alþingismanns, hreif mig þegar hún tók á sinn hógværa en einarða hátt að ...
  • 28.04.2026

    SARAH GLYNN: LAST WEEK IN KURDISTAN

    Fullur titill á þessum nýjasta pistli Söruh Glynn er Turkey´s hold on Kurdish progress: Last week in Kurdistan. Hér fjallar hún um stöðu Kúrda í Tyrklandi, Sýrlandi, Írak og Íran en í öllum þessum löndum er nú þrengt að Kúrdum með stuðningi vestrænna þjóða - sums staðar að undirlagi þeirra. Undantekningin er Íran því þar er það klerkaveldið sem sér um ofbeldið innan sinna landamæra og utan reyndar einnig því stöðugar árásir er gerðar á búðir landflótta íranskra Kúrda í Írak.
  • 28.04.2026

    EVRÓPURÁÐIÐ VARAR VIÐ SKERÐINGU Á TJÁNINGARFRELSI Í ÞÝSKALANDI – SEE REPORT

    Í skýrslu Michael O’Flaherty, talsmanns Evrópuráðsins í mannréttindamálum (Human Rights Commissioner), sem birt var í Strasborg 15. apríl síðastliðinn, segir að verulega sé nú þrengt að tjáningarfrelsi í Þýsklandi einkum tjáningarfrelsi þeirra sem gagnrýna Ísraelsríki vegna stríðsreksturs á Gaza. Ekki sé nóg með að gagnrýnendur séu beinlínis sóttir til saka, heldur eru fundir bannaðir og ... See reoport ...
  • 26.04.2026

    LEIÐTOGAR Í ÁFALLI

    Fregnir frá Washington herma að maður með skotvopn hafi ætlað að ráða Donald Trump Bandaríkjaforseta af dögum. Samherjar Donalds segjast vera í áfalli. Macron Frakklandsforseti brást snarlega og hét stuðningi við fórnarlambið sem næstum varð. Starmer, forsætisráðherra Bretlands lýsti því strax yfir að vegið væri að tjáningarfrelsinu og svipuð skilaboð berast frá fjölmörgum handhöfum „vestrænna gilda“ í Brussel ... Sami Trump og sömu leiðtogar
  • 23.04.2026

    ÁHUGAVERÐUR FUNDUR Á AKUREYRI UM ESB OG SJÁVARÚTVEG

    Samtökin Til vinstri við ESB standa fyrir áhugaverðum fundi á Akureyri á laugardag um Evrópusambandið og sjávarútveg. Enda þótt þessi samtök sem kenna sig við vinstri pólitík standi að fundinum koma frummælendur víðar að en frá vinstri enda varðar framtíð sjávarútvegs á Íslandi ladsmenn alla og mikilvægt að fólk hvar í flokki sem það stendur skilji hvað það þýðir í raun að afhenda Evrópusambandinu forræði yfir sjávarauðlindinni ...
  • 22.04.2026

    LÖGBROT Í BOÐI LÍFEYRISSJÓÐA LANDSMANNA

    Lífeyrissjóðir landsmanna starfa í skjóli laga. Öllum er gert að greiða í lífeyrissjóði samkvæmt lögum. Þetta virðast lífeyrissjóðirnir bærilega sáttir við. En þar með lýkur stuðningi þeirra við lögin að ekki sé minnst á þau „gildi“ sem lífeyrissjóðirnir segjast halda í heiðri. Að þessum gildum og ábyrgð er vikið í erindi sem ...