3. Nóvember 2008
ÚR MENNINGARFJÁRSJÓĐI
Á þrengingartímum er hollt að leita í menningarfjársjóði þjóðarinnar. Þar er að finna margar perlur.Í inngangi að Andvökum Stephans G. Stephanssonar frá árinu 1939, skrifar fræðimaðurinn og ritsnillingurinn Sigurður Nordal formála, sem síðar var gefinn út í sjálfstæðu riti. Þar víkur hann óbeint að hildarleiknum sem þá var fyrirsjáanlegur, heimsstyrjöldinni síðari.
Sigurður ræðir hugsjónir Klettafjallaskáldsins og minnir á þau gildi i mannlífinu sem dýrmætust eru.
Eftirfarandi eru niðurlagsorðin í formálanum frá 1939 en þau er ekki að finna í útgáfu Helgafells frá 1959. Örfáar línur en mikil viska. Hvert orð á erindi við samtímann:
„Það er einkennilegt að vera að ljúka þessu máli einmitt á þeim tíma, er hin nýja járnöld, baráttan um ríkið af þessum heimi, virðist enn vera að tefla dýrmætustu vonum og hugsjónum Stephans G. Stephanssonar, réttlæti, friði og frelsi, í fullan voða. En þó þær geti um stundarsakir sýnst eins og hvítvoðungar í tröllahöndum, eru þær samt eilífar. Þær megna ekki um sinn, og ef til vill aldrei, að hafa hemil á rás hinna ytri viðburða. En þær lifa áfram í hverjum þeim einstaklingi, sem „lætur ekki dæma sál sína úr sjálfs síns eigu" - vill ekki láta flokksfylgi hlekkja sig né ofríki ægja sér, reynir að varðveita hjarta sitt ókólnað af kæruleysi, vilja sinn óbrotinn af örvæntingu og vit sitt ótruflað af hleypidómum. „
Frá lesendum
13. Maí 2012
HEIMILI EĐA FOSS?
Sunna Sara
13. Maí 2012
HALLĆRISLEGUR HROKI
Jóel A.
11. Maí 2012
AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA
8. Maí 2012
TRYGGJA ŢARF SJÁLFBĆRA FERĐAMENNSKU
Sveinn
8. Maí 2012
FREKAR FÁTĆKARI EN AĐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIĐ
Gréta Adolfsdóttir
7. Maí 2012
MÁLIĐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIĐ
Kristín Sigurðsson
7. Maí 2012
LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA
Andrés Adólfsson
7. Maí 2012
BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR
Torfi Stefánsson
7. Maí 2012
FJÖLMIĐLAR SKOĐI
Jóhannes Gr. Jónsson
7. Maí 2012
VIĐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRĆĐU
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.
Póstlisti
Frjálsir pennar
28. Apríl 2012
Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI
20. Apríl 2012
Baldur Andrésson skrifar: VAĐLABRELLAN
7. Apríl 2012
Kári skrifar: LISTIN AĐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERĐAR ANNARRA
...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...












