Annađ
9. Mars 2010
METNAĐARLAUS?

Vefmiðillinn pressan.is vekur athygli á skrifum Karls Th. Birgissonar, ritstjóra tímaritsins Herðubreiðar um Icesave og aðkomu okkar nokkurra að því máli; fólks sem á það sammerkt að hafa viljað endurskoðun á þeim skilmálum sem Alþingi fékk undirritaða til umfjöllunar síðastliðið sumar. Við fáum ekki háa einkunn, erum sögð engar tillögur hafa haft fram að færa (sem er ósatt!), og það sem alvarlegra er, við erum sögð vilja „einangra landið" en þar með „kjósum" við „enn frekari samdrátt og atvinnuleysi, félagslegar hörmungar og veikingu velferðarþjónustunnar..."
Síðan talar ritstjórinn um meintan tilkostnað af töfinni á Icesave, nokkuð sem fróðlegt væri að ...
2. Mars 2010
SMUGUNNI ÓSKAĐ HEILLA

Vefmiðillinn www.smugan.is hefur nú verið opnuð að nýju undir ritstjórn Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur. Hún er án nokkurs vafa einn kröftugasti fréttamaður landsins, býr yfir mikilli reynslu og nýtur virðingar í stétt fréttamanna. Til marks um það er að hún hefur verið kjörin til að vera í forsvari stéttarinnar sem formaður Blaðamannafélags Íslands. Lofar ráðning Þóru Kristínar góðu um framtíð Smugunnar.
Um fréttamiðil sinn segir Þóra Kristín m.a...
26. Febrúar 2010
LÍFEYRISSJÓĐIR TIL VARNAR

...Ef haldið verður áfram að þrengja að Íslandi þegar við nú reynum að rísa á fætur og höfnum Icesave ofríkinu og okkur hótað öllu illu í framhaldinu, greiðslufalli og lokun á lánalínum, hvernig væri að lífeyrissjóðirnir minntu á eignir sínar í útlöndum; að þegar kæmi að erfiðri endurfjármögnun á árunum 2011-2012 þá minntu lífeyrirssjóðirnir á eignir sínar í útlandinu - 500 milljarða í erlendum eignum - að þeir kæmu Íslandi til varnar á ögurstundu? Þetta þjónaði hagsmunum lífeyrissjóðanna, þetta þjónaði hagsmunum Íslands, þetta þjónaði hagsmunum okkar allra. Er þetta ekki augljóst mál? Mér finnst það. Reyndar held ég að staðan sé ekki eins slæm og úrtölumenn láta í veðri vaka - nú síðast talsmenn ASÍ og SA...
24. Febrúar 2010
BÚLGARSKI SÍMINN OG ÚTLENDIR SJÚKLINGAR

...Í tilefni þessara orða og annarra áþekkra langar mig til að varpa fram þeirri spurningu til umhugsunar hvort við berum ekki ábyrgð gagnvart almenningi í öðrum löndum en okkar? Miklar umræður fara nú fram um það innan Evrópusambandsins hvaða afleiðingar milliríkjaverslun með heilbrigðisþjónustu hafi fyrir almannaþjónustuna. Margir óttast að þetta komi til með að grafa undan henni. Áköfum bisnissmönnum virðist það hins vegar koma lítið við. Ég lít svo á að hér beri Íslendingum að sýna ábyrgð. Hluti af útrásar-hugarfarinu var að í góðu lagi væri að græða á útlendingum B...Því var til dæmis fagnað ákaft þegar íslenskir „fjárfestar" gleyptu landssímann í Búlgaríu í samstarfi við...
24. Febrúar 2010
SKATTRANNSÓKNARSTJÓRI FYRIR EFNAHAGS- OG SKATTANEFND ALŢINGIS

...Reyndar hafa grunsemdir vaknað um góða dómgreind hjá einhverjum skilanefndarmönnum, til dæmis þegar í ljós kom að þeir höfðu látið eigin lögmannsstofur sinna erindum fyrir sömu skilanefndir og þeir sátu í sjálfir, fyrir himinháar upphæðir! Það kann að hafa verið löglegt - en siðlaust einsog Vilmundur sagði forðum. En hvað með það sem augljóslega er ólöglegt? Telja skilanefndir sig skuldbundnar - þó ekki væri nema siðferðilega - til að skjóta slíkum málum til rannsóknar hjá skattinum? Mér leikur forvitni á að vita þetta. Þess vegna hef ég óskað eftir því að skattrannsóknarstjóri...
23. Febrúar 2010
GOTT HJÁ EIRÍKI
...Fram kemur í Morgunblaðinu í morgun að Eiríkur Jónsson, formaður KÍ, hafi beitt sér í þessu máli innan Kennarasambandsins og þá ekki síður í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins þar sem hann á sæti. Fram kemur að á fyrri staðnum átti þetta sjónamið góðan hljómgrunn. Vonandi verður hið sama uppi á teningnum hjá lífeyrisjóðunum sem komið hafa á fót svokölluðum Framtakssjóði, sem er hugsaður til að örva atvinnulífuið. Framtakssjóðurinn olli deilum á sínum tíma - það þekki ég frá eigin stjórnarsetu í LSR - og vil ég taka undir það með Eiríki Jónssyni að lífeyrissjóðirnir verða að vanda sig ef þeir ætla ekki að misbjóða eigendum sínum, sjóðsfélögunum. Í viðtali við Eirík í Morgunblaðinu í morgun segir Eiríkur: „Ég vil ekki sjá Framtakssjóðinn notaðan til þess að endurreisa einhverja víkinga sem hafa skilið eftir sig slóðina af afskrifuðum skuldum...
18. Febrúar 2010
GUĐFRÍĐUR LILJA UM EVU JOLY: TIL SANNINDA UM GÓĐAN ÁSETNING ÍSLENDINGA!

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður VG, skrifar athyglisverða grein í Fréttablaðið í gær þar sem hún skýrir hvers vegna hún telji vera komna upp nýja og betri stöðu í Icesave. Málið hafi verið komið í blindgötu á Alþingi. Þar hefði ekki verið frekari framfaraskrefa að vænta. Guðfríður Lilja fagnar því að málið sé nú komið í lýðræðilsegan farveg þjóðaratkvæðagreiðslu enda studdi hún tillögu þess efnis á Alþingi. Í greininni bendir hún á þá lykilstöðu sem Eva Joly hafi gegnt í viðureign Íslendinga við erlend hagsumaöfl sem að okkur sækja og hversu þakkarvert hennar framlag hafi verið málstað Íslands til styrktar. Um aðkomu Evu Joly segir...
17. Febrúar 2010
HÚRRA FYRIR HÁSKÓLA ÍSLANDS?

Vinur minn einn er spilafíkill. Hann er líka öryrki. Hann ætlaði í dag að kaupa í matinn fyrir komandi mánuð - einsog hann og kona hans gera í hverjum mánuði. Í vasanum voru 95 þúsund krónur -peningar sem þurftu að duga lengi. Á vegi vinar míns var Gullnáman. Hún er sem kunnugt er spilavíti í eigu Háskóla Íslands. Það sem upp úr námunni kemur - í dag sem endranær - er notað til að fjármagna byggingar okkar ástsælu menntastofnunar, HÍ. Gullnáman býr ekki yfir neinum verðmætum að morgni dags - öðru en þá klinki til að hefja daginn. Í dagslok glóir hins vegar gullið. Þá hafa vinur minn og...
15. Febrúar 2010
HETJUR

Sjaldan finnur maður fyrir eins notalegri tilfinningu og við að verða vitni að björgunarsveitum að störfum. Það gerum við alltaf annað veifið í gegnum fjölmiðla þegar sveitirnar eru kallaðar út einsog gerðist í gær þegar á þriðja hundrað björgunarsveitamanna héldu til leitar á Langjökli að konu og dreng sem þar höfðu týnst. Leitin bar árangur. Því fylgdi mikil gleðitilfinning. Enda unnin hetjudáð. Móður og syni bjargað úr lífsháska. Hvað er svona notalegt við tilhugsunina um björgunarsveitirnar? Auðvitað...
14. Febrúar 2010
EINKAVINAVĆĐING BANKANNA MUN ALDREI FYRNAST

...Menn segja að hugsanleg brot kunni að vera fyrnd. Það breytir því ekki að framganga stjórnmálamanna og hlutaðeigandi bissnismanna mun aldrei fyrnast i huga þjóðarinnar. Þess vegna þarf að fá málið rannsakað. Að sjálfsögðu verður beðið eftir rannsóknarskýrslunni því á þessu stigi eru þetta getgátur. En sé þessi raunin - ef horft er framhjá einkavinavæðingu bankanna - mun koma fram formleg krafa um rannsókn. Ég mun sjá til þess....
Frá lesendum
10. Mars 2010
ŢEGAR ÍHALDIĐ HRÓSAR...
Árni Magnússon
9. Mars 2010
ER SAGAN AĐ ENDURTAKA SIG?
einn óháður kjósandi VG
9. Mars 2010
VILL LÁTA SYNDA MEĐ STRAUMNUM
Gunnar
8. Mars 2010
MUN STJÓRNIN LIFA?
...Nú hafa fleiri en einn haldið því fram að "órólega deildin" í VG hafi líf ríkissjórnarinnar í hendi sér.Nú ráðist það fljótt hvort stjórnin lifi áfram eða ekki. Hver er þín skoðun?
Hrafn Arnarsson
8. Mars 2010
ERU PÓLITÍSK MARKMIĐ FRAMSÓKNAR EKKI SKÝR?
Hlynur Grímsson.
7. Mars 2010
ÓSKAĐ EFTIR SVARI
Viðar Magnússon
7. Mars 2010
TRÚARLEGT STEF?
Árni V.
6. Mars 2010
ŢJÓĐ, VALD OG ÁBYRGĐ
Þorkell Gunnarsson
6. Mars 2010
TRYGGVI ŢÓR KEMST EKKI
Þjóðólfur
6. Mars 2010
FRÉTTIR AF FORINGJUNUM
Það hefur gengið misjafnlega hjá leiðtogum þjóðarinnar að kjósa í dag.. Í morgun handleggsbrotnaði Þráinn Bertelsson á kjörstað þegar hann datt um fávita. Þáði hann aðstoð Birgittu Jónsdóttur við kosninguna og gekk vel að sögn Þórs Saari sem varð fyrir því óhappi að festa hálstauið ofan í kjörkassanum...
Þjóðólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
19. Febrúar 2010
Guđfríđur Lilja Grétarsdóttir skrifar: RÉTT OG RANGT HJÁ JÓHÖNNU
...Um eitt er ég altént sammála Viðskiptaráði í nýrri ályktun: Það verður að passa að stjórnmálamenn láti ekki undan öflugum þrýstihópum. Samkvæmt reynslu fyrri ára hlýtur Viðskiptaráð þar að vera að vara við sjálfu sér og sínum eigin öflugu áhrifum innan Stjórnarráðsins á árunum fyrir hrun. Þökk sé höfð fyrir áminninguna. Hún er áríðandi sem aldrei fyrr og mál til komið að stjórnmálamenn hlusti meira á grasrótarsamtök fólksins í landinu heldur en hagsmunasamtök fjármagnsins...












