Annað
27. Nóvember 2003
Ríkisstjórn Reykásanna
Allir þekkja Ragnar Reykás þeirra Spaugstofumanna. Hann er persónugervingur hentistefnunnar, kann öllum öðrum betur að haga seglum eftir vindi, venda sínu kvæði í kross ef honum þykir henta. Ragnar Reykás á fáa sína líka. Það er helst að hann finni jafningja sína í ríkisstjórn Íslands. Hún hefur átt stórfenglega spretti í uppákomum af því tagi sem Ragnar er kunnur fyrir.
Að öðrum ólöstuðum stendur forsætisráðherrann flestum framar hvað þetta varðar. Að undanförnu höfum við kynnst vandlætaranum Davíð Oddssyni með seðlabúntið í annarri hendinni, volgt úr fjárhirslum Búnaðarbankans, og Passíusálma Hallgríms Péturssonar í hinni. Þetta er sami maður og fyrir örfáum misserum hvatti þjóðina til dáða í lífsgæðakapphlaupinu...
21. Nóvember 2003
Valgerði ögrað og Davíð vill að menn sýni ábyrgð!
13. Nóvember 2003
Björgólfur og Bandaríkin lýsa áhyggjum
Í sunnudagsútgáfu Fréttablaðsins var mjög athyglisverð grein um Búlgaríu og afskipti "okkar" manna af málum þar. Í samantekt blaðamanns af eigin frásögn kom eftirfarandi fram: " Björgólfur Thor Björgólfsson lýsir þungum áhyggjum erlendra fjárfesta af hægfara einkavæðingarferli í Búlgaríu. Hann flutti framsögu á ráðstefnu helstu áhrifamanna í búlgörsku viðskiptalífi. Sjónarmiðin hafa vakið athygli búlgarskra fjölmiðla. Kaup hans og annarra á búlgarska landssímanum eru í pólitískum hnút."
9. Nóvember 2003
Söfnum fyrir Sjónarhól
Mörgum reynist nefnilega erfitt að finna lykilinn að þeirri velferðarþjónustu sem er í boði eða á að vera í boði lögum samkvæmt. Þetta er frábært framtak og vona ég að sú landssöfnun sem er framundan skili góðum árangri. Það mun gagnast börnunum og fjölskyldunum sem í hlut eiga og það er mín sannfæring að það muni einnig styrkja velferðarþjónustuna, stuðla að því að hún verði opnari og markvissari...
5. Nóvember 2003
Tvær bækur, Donald Rumsfeld og George Orwell
31. Október 2003
Áhrifamikill leikþáttur um einelti
Þetta er ekki leikdómur heldur hvatning til allra að sjá þetta verk. Á rúmum klukkutíma fáum við innsýn í veröld þjáningar, sem því miður er sennilega allt í kringum okkur án þess að við gerum okkur það alltaf ljóst. Leiksýningin er gefandi og skemmtileg, eins mótsagnakennt og það kann nú að hljóma í ljósi þess hvert viðfangsefnið er. Það eigum við hins vegar góðu leikriti og ekki síður frábærum leik Sigríðar Eyrúnar Friðriksdóttur að þakka... 29. Ágúst 2003
Til varnar tjáningarfrelsi
Stöð tvö er fyrirtæki sem lýtur stjórn eigenda sinna. Samkvæmt því er þeim í sjálfsvald sett hver er ráðinn og hver er rekinn. Og nú hafa þeir rekið Árna Snævarr, fréttamann. Látið hefur verið í veðri vaka að hann hafi ekki sýnt eigendum sínum trúnað. Hann er sagður hafa upplýst þegar þessir sömu eigendur reyndu að hafa afskipti af fréttum stöðvarinnar. Ekki heyrist mér á fréttaviðtölum að Árni Snævarr skrifi upp á að svo hafi verið. Tilefnið voru fréttir af laxveiðum - það kemur þessu máli hins vegar ekki við fremur en hver lak hverju og í hvern. Alvarlegast er að fréttamaður er rekinn úr starfi fyrir að vilja verja sjálfstæði fréttamanna.
25. Ágúst 2003
Vöndum val á vinum
8. Ágúst 2003
Kókdósin við Borgarnes
Getur verið að við eigum eftir að venjast kókdollunni við Borgarnes? Getur verið að eftir nokkur ár fari okkur að þykja vænt um gömlu góðu kókdósina að Hamri?
Ég held ekki....
10. Júní 2003
Menningin blómstrar í Munaðarnesi
Um helgina var opnuð sýning á verkum Önnu Gunnlaugsdóttur myndlistarkonu í orlofsbyggðum BSRB í Munaðarnesi. Í tengslum við opnunina var að venju efnt til Menningarhátíðar. Þótt að sönnu megi segja að menningin blómstri í Munaðarnesi sumarlangt því salarkynni þar verða prýdd verkum Önnu fram á haust þá er sú Mennnigarhátíð sem efnt var til við opnunina ekki löng en svo mögnuð að við hjá BSRB treystum okkur til að skrifa hana með stórum staf. Sigrún Hjálmtýsdóttir sópransöngkona – Diddú – söng við undirleik Jónasar Ingimundarsonar píanóleikara. Húsfyllir var að sjálfsögðu og hreif Diddu alla viðstadda og Jónas Ingimundarson fór á kostum í tali og tónum. Pétur Gunnarsson rithöfundur ávarpaði gesti og las upp úr verkum sínum bæði í bundnu máli og óbundnu. Var gerður sérlega góður rómur að. Myndir Önnu Gunnlaugsdóttur á sýningunni eru andlitsmyndir kvenna. Ég virti fyrir mér gestina á opnunarhátíðinni í Munaðarnesi horfast í augu við konurnar hennar Önnu og sá ég ekki betur en vel færi á með þeim.9. Mars 2003
Hugsjónir hafa aldrei slokknað innan Lúðrasveitar verkalýðsins
afmælistónleikum á 50 ára afmælisdegi Lúðrasveitar verkalýðsins 8. mars.
Ávarp Ögmundar Jónassonar á hálfrar aldar afmæli Lúðrasveitar verkalýðsins:
Eftir því sem ég kemst næst mun Lúðrasveit verkalýðsins vera eina lúðrasveitin sem fram hefur komið undir nafni verkalýðssamtaka á Íslandi.
25. Febrúar 2003
Vafrað um á kaupþingi.is
18. Febrúar 2003
Spilafíklar eru venjulegir Íslendingar
Í Morgunblaðinu 11. febrúar birtist grein eftir Kristbjörn Óla Guðmundsson stjórnarformann Íslenskra söfnunarkassa sf. Aðild að þessu kassasamlagi eiga SÁÁ, Rauði krossinn og Slysavarnafélagið Landsbjörg þar sem Kristbjörn er jafnframt framkvæmdastjóri. Tilefni skrifanna er augljóslega það sem hann kallar "sérstaklega ósmekklegar" ásakanir í garð aðstandenda spilavéla; fullyrðingar um að þeir noti sér “veikindi fólks til að halda úti starfi sínu".
20. Janúar 2003
Þarf frekar vitnanna við?
Í gærkvöldi var sýndur áhrifamikill sjónvarpsþáttur um spilafíkn í ríkissjónvarpinu. Þar fékkst staðfest sem andstæðingar spilakassa hafa haldið fram um nokkurt árabil: Spilafíknin hefur sært margan einstaklinginn og fjölskylduna holsári. Fólk hefur tapað aleigunni og gott betur. Fjölskyldur hafa sundrast og einstaklingar jafnvel tekið líf sitt, svo mikið hefur þeim þótt svartnættið fram undan.
8. Janúar 2003
Ánægja með viðbrögð
Séra Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum ríður á vaðið og sannast sagna er ég mjög stoltur af því að sá mæti maður skuli reiðubúinn að leggja orð í belg á síðunni.
Frá lesendum
31. Júlí 2010
UNDARLEGAR SPURNINGAR?
Ragnar Eiríksson
30. Júlí 2010
VATNIÐ OG RÍKISSTJÓRNIN
Pétur
29. Júlí 2010
ÓSVÍFIN HVATNING TIL ÁFENGISNEYSLU
Kristbjörn Árnason
29. Júlí 2010
FORSENDUR SJÁLFSTÆÐIS
Kveðja,
Ólína
29. Júlí 2010
ESB TIL ÓÞURFTAR
..Mér fannst greinin þín GUÐLAST lýsa EES vitleysunni vel...Við ættum að losa okkur út úr EES samningnum og ALLS EKKI ganga í Evrópumiðstýringarofríkið og ALLS EKKI borga 1 eyri úr ríkissjóði fyrir Icesave-nauðungina. Icesave er skuld Björgólfs Thors og Landsbankans og kemur EU eða bresku og hollensku ríkisstjórnunum eða íslenska ríkissjóðinum ekki við. Og skömm að þeim Alþingismönnum sem hylma yfir og þagna. Og ekki síst öllum þeim sem kusu JÁ með Icesave. Voðalegt var að lesa skrif Péturs í færslu sem þú kallar EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN? Veit maðurinn ekkert um ofríki EU? Veit hann ekkert um ólögmæti Icesave?
ElleE
28. Júlí 2010
HLUTABRÉFIN HÆKKUÐU
Hreinn K
27. Júlí 2010
SORGARDAGUR!
Óskar K Guðmundsson, fisksali
27. Júlí 2010
KVEÐJUR TIL JÓNS BJARNASONAR
Bestu kveðjur,
Egill
25. Júlí 2010
EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN?
Pétur
24. Júlí 2010
HUGSJÓNA- OG HAGSMUNAMENN
Jóna Guðrún
Póstlisti
Frjálsir pennar
8. Júlí 2010
Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY
2. Júlí 2010
Baldur Andrésson skrifar: NÝ HÖLL Á HAFNARBAKKA
28. Júní 2010
Björn Jónasson skrifar: NÝR GJALDMIÐILL
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...












