Annað
30. Desember 2006
HEIÐURSMAÐUR GEFUR ÍSLENSKA FÁNANN

Ég varð í gær þess mikla heiðurs aðnjótandi að taka við íslenska fánanum að gjöf frá Pétri Kristjánssyni, sem Reykvíkingum og landsmönnum mörgum er að góðu kunnur fyrir óeigingjörn störf um áratugaskeið. Varla hefur sá atburður átt sér stað í höfuðborginni þar sem þurft hefur að setja upp öflugan eða flókinn hljóðbúnað að Pétur hafi ekki stýrt þar málum. Pétur Kristjánsson er auk þess ötull félagsmálamaður, vakinn og sofinn í starfi fyrir Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og þar með BSRB.
Við afhendingu fánans lagði Pétur áherslu á nauðsyn þess að hafa íslenska fánann í heiðri og skyldu Vinstri græn minnast þess í komandi kosningabaráttu og í kjölfarið, hugsanlega við stjórnvöl landsins, að þeim vegnaði vel sem...
27. Desember 2006
SÉRA GUNNAR FÓR TIL BETLEHEM
Ég sagði hér á síðunni að mér fyndist að prestar landsins ættu að bregða sér til Betlehem samtímans í jólapredikunum sínum, ekki láta sér nægja að bregða upp mynd af atburðum þaðan fyrir tvö þúsund árum. Sú kúgun sem fólk á þar við að stríða núna hlyti að verða mönnum umfjöllunarefni. Mér var bent á að þetta hefði einmitt verið viðfangsefni í jólamessum prófastsins á Kjalarnesi, séra Gunnars Kristjánssonar á Reynivöllum í Kjós. Oft hef ég vitnað í frábærar predikanir séra Gunnars og geri nú enn. Í upphafi predikunar hans í jólamessu á Reynivöllum komst hann svo að orði: “Ég er að fara til Betlehem og ætla að vera þar yfir jólin” sagði kunningi minn þegar ég hitti hann fyrir nokkrum dögum. “Til Betlehem...” Upp í hugann kom myndin af Maríu og Jósef á leið yfir fjöllin til litla þorpsins sem er táknmynd í hugum kristinna manna. Þau voru einnig á leið til Betlehem. Við vorum í Litlu kaffistofunni vestan til á Hellisheiði. Barnabörnin, sem voru með afa á leið í Kjósina, hættu skyndilega að drekka skyrdrykkinn sinn þegar kunningi minn, sem er læknir, sagði þessa setningu: “Ég er að fara til Betlehem.” Svo bætti hann við að hann ...24. Desember 2006
RÁÐHÚSIÐ SÝNIR REISN
...Vonandi boðar þetta lífsmark borgarráðs og borgarstjóra breytta tíð. Það er staðreynd að tveir aðilar eru háðir spilakössunum. Annars vegar eru það spilafíklar, sjúkt fólk sem fjármagnar nýbyggingar hjá Háskóla Íslands, húsnæði undir Guðfræðideildina, Siðfræðistofnun og Viðskiptaskor. Hins vegar eru það þeir aðilar sem fá tekjur sínar frá spilakössunum sem eru þeim háðir. Þetta eru hinir raunverulegu fíklar. Ég hef oft orðið var við reiði þessara aðila þegar amast er við starfsemi þeirra. Ég skildi snemma hvers vegna fáir tóku undir með mér í þinginu að andæfa gegn spilakössunum. Smám saman rann það upp fyrir mér að það er ekki aðeins HÍ sem var undir heldur einnig Rauði Krossinn og Slysavarnarfélagið og fleiri fjölmenn og vinsæl félög. Gæti fjölmennið, vinsældirnar og góður málstaður þessara félaga vera ástæðan fyrir því að þau eru látin komast upp með að níðast á veiku fólki...?24. Desember 2006
LÖGGÆSLA OG ALMENN ÖRYGGISGÆSLA Á HENDI OPINBERRA AÐILA
...Móðgunargjörnum mönnum í opinberri þjónustu þætti þetta eflaust tilefni til þess að stinga niður penna og fara fram á afsökunarbeiðni. Það er þó fráleitt að persónugera málin með þessum hætti á hvorn vænginn sem er, hinn opinbera eða hinn einkarekna. Á báðum stöðum vinnur örugglega ágætt fólk, upp til hópa. Spurningin snýst hins vegar um fyrirkomulag, þau lög og þær reglur sem fólk starfar samkvæmt, þá menntun sem tilskilin er til að gegna tilteknum störfum og þau markmið sem stofnanir og fyrirtæki starfa samkvæmt. Þetta hefur ekkert með "lögun og innræti" einstaklinganna að gera eins og framkvæmdastjóri SVÞ talar um í grein sinni þegar hann gerir stjórn BSRB upp skoðanir...
22. Desember 2006
HVERJIR HAFA METNAÐ GUNNAR?

...Þykir mönnum þetta vera æskileg þróun? Er það æskilegt að fyrirtækin taki með beinum hætti “þátt í menntun barnanna okkar, eins og þau taka í auknum mæli þátt í stuðningi við íþróttastarf, menningu, listir og svo framvegis," svo vitnað sé beint í orð Gunnars Birgissonar, bæjarstjóra í Kópavogi. Á undanförnum árum hefur stefna stjórnvalda verið sú að lækka skatta við fyrirtæki en hvetja þau síðan til að koma með “frjáls” fjárframlög til lista, menningar, líknarstarfsemi og nú menntunar skólabarna. Skyldu menn hafa hugsað til enda hvað þetta þýðir fyrir lýðræðið í landinu? Í stað þess að skattar séu innheimtir og lýðræðislega kjörnir fulltrúar ráðstafi þeim síðan í þágu samfélagsins, eru það nú fjármagnseigendurnir sjálfir sem ákvarða hver skuli menntast og hvernig, hvaða listamaður skuli hljóta náð, hvaða safn verði sett á vetur og hvaða velferðarstarfsemi komist af. Með því að flytja fjárveitingarvaldið frá almenningi og fulltrúum hans til fyrirtækja og fjármálamanna er grafið undan lýðræðinu og við færð nær byrjunarreit 20. aldarinnar þar sem...
20. Desember 2006
VILJA LÖGMENN SEGJA SIG ÚR LÖGUM VIÐ SAMFÉLAG SITT?
...Það má vissulega deila um þá ákvörðun löggjafans að breyta niðurstöðu Kjaradóms á sínum tíma þótt Héraðsdómur taki sérstaklega fram að um þetta geri hann ekki ágreining. En að með ákvörðun sinni hafi Alþingi rýrt sjálfstæði dómstólanna þykir mér sem áður segir harla langsótt. Við skulum ekki gleyma því að fyrrverandi skipan þótti mörgum – þar á meðal þeim sem þetta ritar - aldrei við hæfi því dómarar komu sjálfir að tilnefningu fulltrúa í Kjaradóm og höfðu þannig óbein tengsl við þann sem úrskurðaði um þeirra eigin kjör...Hvers vegna ættu þeir að vera heilagar kýr? Og á meðal annarra orða; er ekki svoldið skondið hve mikinn skilning lögmenn hafa á kjörum lögmanna...?20. Desember 2006
AFMÆLI FFR OG NÝR VEFUR
Síðastliðinn föstudag fögnuðu félagsmenn í Félagi flugmálastarfsmanna ríkisins 60 ára afmæli félagsins en það var stofnað 13. desember 1946, sama ár og Íslendingar fengu yfirráðarétt yfir Reykjavíkurflugvelli frá Bretum og tóku um leið við flugstjórn á Norður-Atlantshafssvæðinu. Stofnfélagar FFR voru 26 en nú eru félagsmenn um 160 talsins. Í tilefni afmælisins var opnuð glæsileg heimasíða FFR og er slóðin á hana...18. Desember 2006
HVOR GEKK AF FUNDI VEGNA VERÐLEYNDAR, STEINUNN VALDÍS EÐA ÁLFHEIÐUR INGADÓTTIR?

...Á fundinum var þess krafist að stjórnarmenn hétu því að fara leynt með upplýsingar um raforkuverðið! Álfheiður Ingadóttir, stjórnarmaður í Landsvirkjun og fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, lagði þá fram tillögu um að leynd yrði aflétt og færði fyrir því rök. Enginn stjórnarmaður treysti sér til að styðja tillögu Álfheiðar en einn sat hjá, væntanlega Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fulltrúi Samfylkingar. Í Morgunblaðinu er haft eftir Steinunni Valdísi “að litlu hafi mátt muna að hún hafi fylgt í fótspor Álfheiðar Ingadóttur og gengið af stjórnarfundi” vegna kröfunnar um verðleynd. Þetta þótti Morgunblaðinu greinilega slík tíðindi að með fréttinni af útgöngu Álfheiðar var birt mynd af stjórnarmanninum sem næstum gekk út en ekki hinum sem lagði fram tillöguna og ...
16. Desember 2006
VIÐSKIPTARÁÐIÐ, EINKAFRAMKVÆMDIN OG FRÉTTASTOFA SJÓNVARPS

...Í framhaldi af lofgjörð um ágæti einkaframkvæmdar var haft eftir Viðskiptaráðsmönnum að vænta mætti frekari einkaframkvæmdar á komandi árum og var þar m.a. vísað til vegaframkvæmda. Hvernig væri nú að fréttastofa Sjónvarps legðist í sjálfstæða rannsókn á kostum og göllum einkaframkvæmdar. Til dæmis mætti kanna nýlega skýrslu Ríkisendurskoðunar um einkaframkvæmd í vegagerð þar sem þessi kostur er ekki talinn ákjósanlegur fyrir skattgreiðendur... Einkaframkvæmd felur það hins vegar í sér að veita einkaaðila beinan eða óbeinan aðgang að skatthirslum almennings. Hvergi hefur verið gengið lengra á þessari braut en í Bretlandi. Þar hefur einkaframkvæmd reynst afar illa og hafa sérstaklega verið brögð af "framúrkeyrslum"! Í Bretlandi hefur og myndast eftirmarkaður með skóla og aðrar velferðarstofnanir þar sem einkaframkvæmdarsamningar ganga kaupum og sölum!
Á þessari heimasíðu hefur talsvert verið fjallað um rannsóknir á þessu efni og vísa ég hér í ...
15. Desember 2006
MISVÍSANDI UPPLÝSINGAR UM MANNAFLAÞÖRF Í HEILBRIGÐISKERFINU

...Sannast sagna ætla ég að leyfa mér að halda því fram að heilbrigðisþjónustan verði ekki afgreidd með alhæfingum af þessu tagi eins og skýrsluhöfundar Sivjar Friðleifsdóttur frá Hagfræðistofnun HÍ,
14. Desember 2006
BSRB FAGNAR ÁKVÖRÐUN RÍKISSTJÓRNARINNAR AÐ HVERFA FRÁ EINKAVÆÐINGU ÖRYGGISGÆSLU Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI
Stjórn BSRB hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að færa öryggisgæslu á Keflavíkurflugvelli undir opinbera aðila að nýju. Eins og fram kom í fjölmiðlum í sumar var einkafyrirtæki falið að annast hluta öryggisgæslunnar gegn hörðum mótmælum Landssambands lögreglumanna, Tollvarðafélags Íslands og heildarsamtakanna BSRB. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar er í samræmi við ...
13. Desember 2006
HVERS VEGNA HUNSAR ÞINGMEIRIHLUTINN LÝÐHEILSUSTÖÐ?
Í rannsóknarskýrslu sem unnin er af Lýðheilsustöð og Háskólanum á Akureyri og er hluti fjölþjóðlegrar samanburðarrannsóknar kemur fram að börn sem búa við fátækt á Íslandi hreyfi sig minna en önnur börn, borði sjaldnar hollan mat og séu líklegri til að vera of þung og feit en börn efnameira fólks. Í Morgunblaðinu í dag er leitað eftir viðbrögðum stjórnvalda við þessum niðurstöðum...Ég gef lítið fyrir orð ríkisstjórnar sem skrifar undir alla fínu sáttmálana í útlöndum, gefur út fjálglegar yfirlýsingar um mikilvægi þess að hafa heilbrigði að leiðarljósi við stefnumótun en gerir síðan eitthvað allt annað. Hvers vegna skyldi Lýðheilsustöð hafa verið sett á laggirnar fyrir þremur árum? Til að monta sig af framtakinu? Til að virða orð hennar, viðvaranir og ábendingar að vettugi? Hvers vegna er fremur hlustað á sjónarmið gosdrykkjaframleiðenda en talsmenn hollustunnar? Væri ekki rétt að...10. Desember 2006
BÓNDINN Á BAKKA OG ÁLITSGJAFINN FRÁ HÓLUM Í HJALTADAL
Lífið snýst ekki bara um viðskipti, sagði bóndinn á Bakka, heldur um börn, fjölskyldu og samfélag. Heyrt hef ég í fólki sem tendraðist upp. Einn þeirra var fyrrum skólameistari bændaskólans á Hólum í Hjaltadal í Skagafirði, þar áður bóndi í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi og enn lengra aftur bóndasonur á Ströndum. Þetta er að sjálfsögðu
Jón BjarnasonÞað er einfaldlega traustvekjandi að hlusta á fólk sem hefur trú á sjálfu sér, íslenskum landbúnaði og að hann eigi erindi inn í framtíðina. Í kvöld segir ...
7. Desember 2006
Á EKKI AÐ HLUSTA Á LÝÐHEILSUSTÖÐ? FJÖLMIÐLAR KYNNI SÉR MÁLIÐ !
Nú reynir á hvort stjórnvöld vilji hlíta þessari ráðgjöf. Fyrir Alþingi liggur nefnilega frumvarp sem Lýðheilsustöð þykir í einu veigamiklu efni stríða gegn manneldissjónarmiðum. Þetta er frumvarp sem gengur út á lækkun vörugjalda og virðisaukaskatts á matvæli. Flestir hafa fagnað þessu frumvarpi að öðru leyti en því sem lýtur að lækkun virðisaukaskatts á gosdrykki. Það er einmitt þessi þáttur sem Lýðheilsustöð gagnrýnir. Í bréfi sem efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis barst í dag frá Lýðheilsustöð vegna þessa frumvarps segir meðal annars...29. Nóvember 2006
RÚRÍ OPNAR AUGU

Yfirleitt er samtíminn blindur á sjálfan sig. Gjörningur Rúríar minnti okkur á blindu liðinna tíma, ólýsanlega heimsku og grimmd, forræðishyggju og ofbeldi. Ég var ekki viðstaddur þennan gjörning en svo sterkt orkaði frásögnin og lýsingin á honum á mig að mér þótti með honum beint að mér og mínum samtíma spurningu; ágengri spurningu. Erum við ef til vill eins blind á misréttið sem viðgengst okkar á meðal eins og 17. aldar forverar okkar voru? Er ef til vill bjálki í okkar auga sem byrgir okkur sýn á samtímann? Gjörningur Rúríar er tileinkaður konum sem urðu fyrir ofbeldi fyrr á tíð. En hann er jafnframt áskorun um að litast um í samtímanum með opin augu. Gjörningur Rúríar heppnaðist. Hann opnaði ...
26. Nóvember 2006
STYRMIR OG EGILL
...Sannast sagna finnst mér að Egill mætti vera ögn örlátari á vitsmuni sína en hann stundum er í þætti sínum. Ég tala nú ekki um þegar í hlut á maður, sem telur sig þess umkominn að tala niður til fólks sem hann dæmir úr leik sökum "heimsku". Það er vandasamt verk að stýra þjóðfélagsumræðunni, leggja út af orðum manna og setja þau í samhengi sem er gefandi fyrir framhald umræðunnar. Kannski Egill Helgason ætti að temja sér að lesa meginmálið betur, til dæmis hjá mönnum á borð við Noam Chomsky, sem mig rámar í að hann hafi einhverju sinni slegið um sig með. Hann gæti þá lært sitthvað um fjölmiðla, talsmenn og valdsmenn.
Ef Egill var göslandi í yfirborðinu má segja að Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, hafi haldið sig á djúpsævi í Kastljósi Sjónvarpsins...
19. Nóvember 2006
STÓRFYRIRTÆKIN OG GÓÐGERÐIRNAR: VEIT VINSTRI HÖNDIN HVAÐ SÚ HÆGRI GJÖRIR?

Það gladdi hjarta mitt á Degi íslenskrar tungu að Nirði P. Njarðvík skyldu hlotnast verðlaun Jónasar Hallgrímssonar að þessu sinni. Njörður er þessara verðlauna mjög verðugur og vissulega tók hann sig vel út á forsíðu Morgunblaðsins 17. nóvember þar sem hann hélt um risavaxna ávísun merkta Glitni. Hönd á ávísun Glitnis hafði einnig menntamálaráðherra vor,
18. Nóvember 2006
RÁÐSTEFNA TIL HEIÐURS SJÖFN INGÓLFSDÓTTUR
Í gær fór fram í Ráðhúsi Reykjavíkur ráðstefna um málefni eldri strarfsmanna en ráðstefnan var haldin til heiðurs Sjöfn Ingólfsdóttur fyrrverandi formanni Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Eftrifarandi ræða var þar flutt: Þessi ráðstefna fjallar um vinnumarkaðinn, sérstaklega stöðu eldra fólks og hún er haldin til heiðurs Sjöfn Ingólfsdóttur, félaga í verkalýðshreyfingunni til áratuga, formanni Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar til margra ára, varaformanni BSRB í áratug, fulltrúa launafólks í nefndum og ráðum, sjóðum og stofnunum innanlands og utan. Hér ægir mörgu saman. En þannig er líka lífið. Ekki síst á okkar tímum. Við lifum nefnilega umbrotatíma. Gömul form eru að leysast upp og taka á sig nýja mynd. Mig langar í upphafi að staðnæmast við þrjá þætti þar sem gamalgróin landamæri eru að riðlast. Þessir þættir eru...
10. Nóvember 2006
HVERN ER VERIÐ AÐ HAFA AÐ FÍFLI?
...Að þessu leyti hefur hlutafélagaformið auðveldað kaup og sölu fyrirtækja og þannig gert eignarhaldið sveigjanlegra. Annað er, að með hlutafélagaforminu hefur aðkoma eigenda að rekstrinum fengið ákjósanlegan farveg og eru hluthafafundir til marks um hvernig eigendur, stórir og smáir, geta veitt aðhald með því að pund þeirra sé vel ávaxtað í fyrirtækinu. Með skírskotun m.a. til þessa get ég heilshugar tekið undir að hlutafélagaformið er gott og hefur sannað sig. Ef hins vegar um er að ræða stofnun sem ekki stendur til að selja og ef um það er að ræða að hlutabréfið verður aðeins eitt og í forsjá eins ráðherra, leyfi ég mér að spyrja hvort hlutafélagaformið sé heppilegt. Þetta stendur til að gera með Ríkisútvarpið nái frumvarp ríkisstjórnarinnar fram að ganga...
8. Október 2006
RÚSSNESKI FÁNINN, NAGLAKLIPPURNAR Í LEIFSSTÖÐ OG ÖRYGGI BORGARANS
3. Október 2006
STAKSTEINAR, MÁLFRELSIÐ OG MEIÐYRÐALÖGGJÖFIN
Í Staksteinum Morgunblaðsins í dag er fjallað um þá sem tóku þátt í baráttu fyrir herlausu Íslandi, það fólk sem tók þátt í Keflavíkurgöngum til að leggja áherslu á sjónarmið sín eða skrifaði og talaði fyrir friði og gegn vígbúnaði.
Um þessa einstaklinga og hvað fyrir þeim vakti segir m.a. í Staksteinum...
Þetta eru kaldar kveðjur til Árna Björnssonar,Vigdísar Finnbogadóttur, Halldórs Laxness, Jakobínu Sigurðardóttur, Ragnars Stefánssonar, Jóhannesar úr Kötlum, Svövu Jakobsdóttur, Guðmundar Böðvarssonar, ... listamannanna, stjórnmálamannanna, launafólks og mannréttindasinna, allra þúsundanna sem tók þátt í baráttunni fyrir herlausu Íslandi, ýmist með þátttöku í Keflavíkurgöngum eða með öðrum hætti.
Ég hef aldrei verið gefinn fyrir beitingu meiðyrðalöggjafar ...
30. September 2006
Í DAG FÓR HERINN – EN EKKI ARFLEIFÐIN
26. September 2006
ÍTALÍUÞANKAR
...Ítalíumegin landamæranna á Rívierunni – aðeins upp til fjalla - er þorpið Dolceacqua. Þangað fórum við á laugardagskvöldið. Þar sáum við sýningu, ítalska ljósmyndarans Eugenio Andrighetto á ljósmyndum sem hann tók í Íslandsferð sinni sumarið 2000. Myndirnar voru í einu orði sagt, stórkostlegar og fékk ljósmyndarinn lófaklapp að sýningu lokinni. Ekki síst þótti fólki mikið til fossamynda Eugenios Andrighettos koma. Þar í bland var fossaröðin sem drekkt verður í Hálslóni við Kárahnjúka. Um það var ekki rætt á sýningunni í Dolceacqua. Ég held að í salnum þar sem sýningin fór fram hefði enginn trúað því að til stæði að eyðileggja þessa fegurð. Í lesnum texta Eugenios Andrighettos með myndunum, sagði að á Íslandi væri menntaðasta og gjörvulegasta þjóð í heimi! Eugenio var ekkert að draga af sér þegar hann lýsti aðdáun sinni á Íslandi og Íslendingum. Sennilega hafði hann ekki ...24. September 2006
HORFT TIL KÁRAHNJÚKA AF HLAÐINU Á HÓLUM Í HJALTADAL
„Ég er hrædd um að þau sem ganga um Kárahnjúkasvæðið í nánustu framtíð og lesa á skilti , hér rann Kringilsá, hér féll Tröllafoss, hér var Hafrahvammagljúfur, blessuð sé minning þeirra, muni ekki líta á verkið sem sjálfsbjargarviðleitni rísandi þjóðar heldur grátlegan hroka velmegunarríkis sem kunni sér ekki magamál.“ Þetta eru niðurlagsorðin í áhrifaríkri útvarpsmessu frá Laugarneskirkju í dag þar sem séra Hildur Eir Bolladóttir prédikaði. ... Af hlaðinu á Hólum í Hjaltadal veltir Hildur Eir fyrir sér muninum á þörf og græðgi. Hún vitnar til þess þegar verið var að blessa Auðunnarstofu hina nýju, tilgátuhús, sem reist var til að heiðurs Auðunnarstofu hinni fornu, sem byggð var á 14. öld, en rifin í miklum harðindum um 1810 til að ...20. September 2006
ÁHUGAVERÐ RÁÐSTEFNA UM SÁTTAFERLI Á ÁTAKASVÆÐUM
Föstudaginn 22. september verður haldin ráðstefna í Hafnarfjarðarkirkju um "sáttaferli á átakasvæðum heimsins með erlendum sáttasemjurum í fremstu röð". Í fréttatilkynningu segir á meðal annars um fyrirlesara og viðfangsefni “Dr. Rodney Petersen forstöðumaður Guðfræðistofnunarinnar í Boston, Boston theological Institute og dr. Raymond Helmick S. J., Jesúítaprestur og alþjóðlegur sáttasemjari til fjölda ára hafa þróað og beitt árangursríkum aðferðum til sáttaumleitana á átakasvæðum m.a. á Balkanskaga, Norður-Írlandi og í Landinu helga.”...Fyrir mitt leyti þykir mér þetta vera afar áhugavert viðfangsefni og kemur þá fyrst upp í hugann sáttaferlið í Suður-Afríku sem Desmond Tutu stóð í fararbroddi fyrir. Með sáttaferlinu tókst Suður-Afríkumönnum að rjúfa vítahring hatursins sem einkennir helstu samfélög á helstu átakasvæðum heimsins... 13. September 2006
GÓÐUR BOÐSKAPUR FRÁ BESSASTÖÐUM

...Ólafur Ragnar Grímsson sagði það vera miður hversu mörg samfélög heimsins væru byggð á vantrausti. Hryðjuverkaöfl mættu ekki ná þannig tökum á hugsunarhætti og hegðun fólks að samfélaginu væri gjörbreytt og umturnað.: "Ef að það gerðist, þá væru hryðjuverkaöflin búin að ná þeim árangri að þau gætu svo sannarlega hrósað sigri. Og framlag Íslands, í þessum nýja heimi eftir 11. september, er kannski fyrst og fremst það að sýna í verki að þrátt fyrir allt þá sé hægt að vera með þjóðfélag sem er opið og öruggt og frjálst og lýðræðislegt, án þess að reisa varnarmúra tortryggni og ótta. Við séum samfélag sem byggir á því að treysta öllum, þar til það kemur í ljós að það er ekki hægt að treysta þeim. "
Undir þetta skal tekið. Einu má bæta við. Það eru því miður ekki aðeins ...
12. September 2006
FRAMSÓKNARFLOKKURINN OG "FYRIRTÆKI ÚTI Í BÆ"
...við skyldum ekki gleyma því að þessar framkvæmdir eru á vegum fyrirtækja í almannaeign: Landsvirkjun er jú í eigu ríkisins, Reykjavíkurborgar og Akureyrar og allar framkvæmdir á hennar vegum eru á ábyrgð skattborgarans!!! Þetta er öllum augljóst – nema náttúrlega Framsókn. Birkir Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, gegnir embætti formanns iðnaðarnefndar nú um stundir. Hann kom fram í fréttum og lýsti furðu á því að alþingismenn vildu upp á dekk gagnvart fyrirtæki úti í bæ með því að krefjast þess að það opni bókhald sitt gagnvart almenningi. Stundarkorn velti ég því fyrir mér hvort væri fyrirtækið úti í bæ, Alcoa eða Landsvirkjun. Ég komst að sömu niðurstöðu og klippari Sjónvarps, sem myndskreytti tilvísun Birkis til fyrirtækisins úti í bæ með merki Landsvirkjunar. Látum vera þótt þingmanni Framsóknarflokksins finnist það vera...11. September 2006
EKKERT LEYNIMAKK – ÖLL SPILIN Á BORÐIÐ !
9. September 2006
UPPLÝSINGAFULLTRÚI HERSINS UPPLÝSIR - MEIRA EN RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS GERIR

Eftir að NFS fréttastöðin gekkst í málið hefur upplýsingafulltrúi bandaríska hersins hér á landi upplýst að búið sé að loka hinum herstjórnarlega þætti loftferðakerfis hersins hér á landi. Þetta þýðir að þótt ratsjárstöðvarnar séu enn til staðar er ekki lengur tekið við merkjasendingum þaðan. Enn er tekið á móti merkjasendingum til íslensku flugumferðarstjórnarinnar – sendingum sem þjóna almennri flugumferð. En hversu lengi? Íslensk stjórnvöld verða að svara því hvort um þetta hafi verið gerðir samningar og til hve langs tíma. Slíkur hefur rolugangurinn verið, að hreinlega öllu er trúandi upp á ríkisstjórnina í þessu efni. Ár eftir ár ...
16. Ágúst 2006
ER AÐ HEFJAST EINKAVÆÐING LÖGGÆSLUNNAR?
...Sú spurning hefur óneitanlega vaknað hvað vaki fyrir framkvæmdavaldinu með því að fela einkafyrirtæki löggæslustörf? Er þetta gert í sparnaðarskyni? Ef svo er, í hverju felst sparnaðurinn? Er hann á kostnað öryggishagsmuna? Er hann á kostnað kjara og réttinda starfsmanna? Er með þessu ef til vill verið að stíga fyrsta skrefið í átt til einkavæðingar lögreglu, tolls og annarrar öryggisgæslu sem verið hefur á hendi opinberra aðila? Eðlilegt er að sú spurning vakni og þá einnig um þá vegferð sem stjórnvöld kunni að vera á. Ef hægt er að fela einkafyrirtæki almenna löggæslu í Leifsstöð, hvers vegna ekki á götum Reykjavíkurborgar?Hvað annað gæti skýrt áhugann á einkavæðingu þessarar starfsemi? Við vitum að...
8. Ágúst 2006
FRUMKVÖÐLASTARF Í FERÐAÞJÓNUSTU

Það er ánægjulegt að ferðast um landið og sjá hve mjög ferðaþjónustan hefur verið að sækja í sig veðrið á undanförnum árum. Þrátt fyrir mótbyr vegna stóriðjustefnu stjórnvalda, sem skapað hefur ferðaþjónustunni mjög óhagstæð skilyrði hafa frumkvöðlar á því sviði seiglast áfram og bjóða nú upp á margvíslega þjónustu sem ekki var til staðar fyrir aðeins fáeinum árum. Þá hafa söfn og veitingastaðir tekið miklum framförum. Menn vita sem er að ef menn ætla að pluma sig verða þeir að geta boðið upp á það besta. Nýlega fór ég í nokkurra daga ferð um norð-vestanvert landið en á því svæði er að finna fjölmörg afar vönduð söfn og og sýningar. Má þar nefna ...
6. Ágúst 2006
ERU VERKTAKARNIR AÐ FLYTJA OKKUR TIL AUSTUR-EVRÓPU ?

...Ástæða er hins vegar til þess að óttast að eitthvað verra komi í staðinn; húsnæði sem reist er með eitt í huga: Að byggja eins stórt og eins ódýrt og hægt er. Hvað um það, ég neita því ekki að mér kom á óvart – óþægilega – þessi samanburður við austur-evrópskar iðnaðarborgir um miðbik síðustu aldar. Getur verið að ...
5. Ágúst 2006
SIGURRÓS OG LANDIÐ

Hljómsveitin Sigurrós hefur unnið hug og hjörtu landsmanna. Ég hef lengi verið í hópi aðdáenda hennar. Sigurrós kynntist ég á milli svefns og vöku...Tónleikahald Sigurrósar víðs vegar um Ísland nú í sumar náði eki hámarki frammi fyrir mannfjöldanum á Klambratúni í Reykjavík, eins ágætt og það var, heldur við Snæfell. Þar lék Sigurrós fyrir fjöllin, sólina og gróðurinn. Líka fólk; fólk sem vill vera eitt með náttúrunni – í sátt við hana, í faðmi hennar. Þessum tilfinningum lýsir Sigurrós betur en flestir aðrir. Þess vegna á hún nú hljómgrunn með þjóðinni...
3. Ágúst 2006
VÖLD FORSETAEMBÆTTISINS HAFA EKKI VERIÐ AUKIN
Tíu ár eru síðan Ólafur Ragnar Grímsson var kjörinn forseti Íslands. Af því tilefni hafa verið viðtöl við hann í fjölmiðlum. Þar hefur hann sagt margt ágætt. Tvennt hef ég þó staldrað við þar sem ég er honum ósammála, meira að segja mjög ósammála. Í fyrsta lagi hef ég miklar efasemdir um þá áherslu, sem hann leggur á völd embættis síns. Vald forsetaembættisins er honum greinilega ofarlega í huga. Í viðtali í einhverjum fjölmiðlinum sagði Ólafur Ragnar að hvergi á byggðu bóli hefði forseti eins mikið "frelsi og svigrúm" og hann hefði sjálfur. Hann hefði umboð sitt frá þjóðinni beint og milliliðalaust. Ég spyr á móti, umboð til hvers? Því fer afar fjarri að forsetinn hafi umboð til að fara sínu fram að eigin geðþótta, frelsi hans og svigrúmi eru nefnilega settar mjög strangar skorður. Þær skorður markast ...26. Júlí 2006
HVAR VAR ÉG ÞEGAR GRÆNT LJÓS VAR GEFIÐ Á KÁRAHNJÚKAVIRKJUN?
...Ekki man ég hvort þingmenn Samfylkingarinnar, sem gagnrýnt hafa niðurskurð til vegamála að undanförnu hafi horft í eigin barm og spurt: Hvar var ég þegar atkvæði voru greidd um Kárahnjúkavirkjun? Ekki veit ég hvort 24. Júlí 2006
ER MORGUNBLAÐIÐ AÐ FLYTJA AF LANDI BROTT?
Frést hefur að Morgunblaðið sé að flytja höfuðskrifstofur sínar. Af þessum skrifum blaðsins mætti halda að ritstjórnin væri að flytja af landi brott og hefði sagt sig úr lögum við ...
20. Júlí 2006
AÐ ÞORA AÐ VERJA MÁLSTAÐ
Ég tek undir með Hafdísi Guðmundsdóttur í bréfi sem birtist hér á heimasíðunni um hve gleðilegt það alltaf er að heyra í fólki sem þorir að standa á sannfæringu sinni. Hafdís vitnar í viðtal við Laufey Erlu Jónsdóttur, sem ásamt fleiri landvörðum, þurfti að sæta ofsóknum af hálfu yfirvalda þegar þau flögguðu í hálfa stöng 19. júlí árið 2002. .. Hér vísar hún í Kárahnjúkavirkjun en 19. júlí árið 2002 var undirrituð viljayfirlýsing um að ráðist yrði í þá framkvæmd. Í bréfi sínu rifjar Hafdís upp hlut ráðherra Framsóknarflokksins í aðförinni að landvörðunum og einnig að hollt sé að gleyma því ekki að allir stjórnmálaflokkar á Alþingi, að undanskilinni Vinstrihreyfingunni grænu framboði, hafi stutt Kárahnjúkavirkjun...20. Júlí 2006
BEINUM LANDBÚNAÐARUMRÆÐUNNI Í UPPBYGGILEGAN FARVEG
...Óumdeilt er að íslensk landbúnaðarvara er í hágæðaflokki og væri það mikil skammsýni að grafa undan henni með því að veikja undirstöður hennar á markaði þar sem sveiflukennt verðlag réði úrslitum. Undirboð og tímabundnar verðsveiflur gætu haft varanlega neikvæð áhrif á íslenskan landbúnað, sem er þegar allt kemur til alls, smár og viðkvæmur og þarf á ákveðnum stöðugleika að halda. Íslenskur landbúnaður er miklu mikilvægari í menningarlegu, félagslegu og atvinnulegu tilliti en umræðan, eins og hún birtist tíðum þessa dagana, gefur tilefni til að ætla. Þröng verðlagsnálgun er í reynd gamaldags og skammsýnt viðhorf...
19. Júlí 2006
GRÓSKA Í LISTALÍFI
Krafturinn í íslenskum listamönnum er með ólíkindum. Á nánast öllum sviðum listalífsins eigum við á að skipa verulega færu fólki – í sumum tilvikum afburðalistamönnum...Almennur áhugi á listum og menningu örvar ungt fólk til dáða. Gróskan elur þannig af sér grósku...En það er ekki nóg að kveikja áhugann með verðandi listamönnum. Hann verður að vísu til þess að hæfileikafólkið finnst og er virkjað, en að sjálfsögðu þurfa hæfileikarnir að vera til staðar! Það er þarna sem ég hef staðnæmst í þönkum mínum; yfir því hve magnaðri sveit hæfileikafólks í listalífinu við eigum á að skipa. Á þetta vorum við sem sóttum tónleika í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar rækliega minnt í gær þegar Þorbjörn Björnsson, baritónsöngvari söng þar fyrir fullu húsi...19. Júlí 2006
EINKAVINAVÆÐING Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI?
18. Júlí 2006
NAUÐSYN Á UMRÆÐU UM SPILAFÍKN
...Einnig hafa mér borist umvandanir og varnaðarorð þar sem hvatt er til hófsemi í umræðunni. Allt er þetta vel meint. Af viðbrögðum fólks úr báðum herbúðum ræð ég hins vegar hve bælt vandamál er hér á ferðinni. Fólk sem haldið er sjúklegri spilaáráttu, og þá ekki síður aðstandendur þeirra, vilja umræðu um vandann, þótt þeir eigi illmögulegt að taka þátt í henni; þeir sem fá afraksturinn í vasann vilja helst að um vandann sé þagað. Háskóli Íslands og líknar- og hjálparstofnanir á borð við Rauða kross Íslands, Landsbjörg og SÁÁ, sem hagnast á spilavítisélum, verða að axla ábyrgð í þessu efni og það gera þau á þann hátt einan að segja sig algerlega frá fjáröflun af þessu tagi. Augljóst er að það ætlar að reynast þessum aðilum þrautin þyngri. Í reynd eru það tveir aðilar sem háðir eru spilafíkninni: Sá sem spilar og hinn sem hagnast á sjúkleika hans. Að sumu leyti er síðara hlutskiptið... 9. Júlí 2006
VELJUM SKYNSAMLEGUSTU LEIÐIRNAR
Föstudaginn 30. júní ritar
6. Júlí 2006
ER SAMA HVERNIG HÁSKÓLA ÍSLANDS ER KOMIÐ Í FREMSTU RÖÐ?

Og nú spyr ég: ætlar Háskóli Íslands sér að halda inn í framtíðina, þar sem hann vill skipa sér í fremstu röð, á kostnað þessa fólks? Ætlar hann áfram að nýta sér neyð spilafíkla sjálfum sér til fjárhagslegs ábata? Og hvað um Rauða kross Íslands eða Landsbjörg? Stendur þessum aðilum á sama hvaðan þeir draga sér fé í bú? Ég segi fyrir mitt leyti að fremur vil ég að Háskóli Íslands hafni í 101., jafnvel 500. sæti á meðal rannsóknarstofnana heimsins en sem "háskóli í fremstu röð", rekinn á kostnað spilafíkla. Ég vil leyfa mér að frábiðja ræðuhöld um ágæti Rauða krossinns, Landsbjargar eða Háskóla Íslands á meðan þessir aðilar leyfa sér að hafa fé af veiku fólki. Það er nefnilega rétt sem Ágúst segir: "Sem virkum spilafíkli fer það mest í taugarnar á mér þegar f...
4. Júlí 2006
A JOYFUL OCCASION?
...Fulltrúa þessa kerfis er nú – einmitt nú þegar heimurinn er að vakna til vitundar um hættuna, sem stafar af ráðandi öflum í Bandaríkjunum - boðið sem sérstökum heiðursgesti að Bessastöðum. Hvers vegna í ósköpunum? Ef bjóða á kunnum Bandaríkjamanni til Íslands og að Bessastöðum, væri hægt að finna ótölulegan fjölda vísinda- og listamanna, baráttumanna fyrir mannréttindum og lýðræðislegum gildum í stað þess að velja fulltrúa hÞað á að vanda gestavalið á Bessastöðum. Eðlilegast er að þangað komi gestir sem eru í forsvari fyrir þjóðir, stofnanir og samtök. Þegar sleppir formlegheitunum taka við hin persónulegu tengsl. Ef forseta Íslands langar til að fara í brúðkaup barna norræns þjóðhöfðingja þá fer hann það á eigin vegum, prívat og persónulega. Ef hann langar til að taka á móti föður Bandaríkjaforseta, þá gildir hið sama. Um leið og slíkt er gert í ...
30. Júní 2006
FRÁ FÆÐINGU KÓLUMBUSAR AÐ VINNA UPP Í STARFSLOKASAMNING

...Blaðið segir að þessi samningur hafi verið gerður á milli forstjórans og þáverandi stjórnarformanns. Í fréttinni er svo haft eftir honum að hann myndi“ekkert eftir því hvernig samningar voru gerðir á sínum tíma.” Milljarður til eða frá, hver man eftir slíku smáræði? Það er tímanna tákn að starfslokasamningur af þessu tagi skuli varla vekja athygli sem nokkru nemur enda þjóðin orðin vön að fylgjast með slættinum í milljarðamæringunum. Hér er þó um að ræða upphæð sem tæki láglaunamann með 150 þúsund á mánuði “einungis” fimm hundruð fimmtíu og fimm ár að vinna fyrir. Hann hefði með öðrum orðum verið sleitulaust að frá árinu 1451, því herrans ári sem landkönnuðurinn mikli Kólumbus fæddist, en óþarfi er að kynna þann fræga Ameríkufara til sögunnar. Fyrir nokkrum árum var mikil gagnrýni uppi í þjóðfélaginu vegna ...
29. Júní 2006
SAMGÖNGURÁÐHERRA TALAR FYRIR AUKINNI GJALDTÖKU
...Að undanförnu hafa landsmenn fengið að heyra alls kyns uppástungur um veg hér og veg þar, sem einkaaðilar vilja leggja. Síðan er ætlunin að rukka okkur fyrir afnotin. Samgönguráðherra er ábyrgur fyrir samgöngukerfi landsins. Það á að vera okkur öllum til afnota. Ráðherrann verður að færa haldbær rök fyrir máli sínu áður en hann veitir fyrirtækjum frekari aðgang að pyngjum okkar en þegar hefur verið gert.
Samgönguráðherra leggur til dýrara fyrirkomulag en við búum nú við og jafnframt aukna skattheimtu. Þetta gengur ekki án nánari skýringa og umræðu...
27. Júní 2006
GOTT FRAMTAK HJÁ ÁLFHEIÐI OG HELGA
Álfheiður Ingadóttir og Helgi Hjörvar, sem sæti eiga í stjórn Landsvirkjunar kröfðust þess á stjórnarfundi í gær að aflétt yrði leynd yfir verði á raforku til stóriðjufyrirtækja. Forstjóri Landsvirkjunar mætti í kjölfarið í alla fjölmiðla og sagði að slíkt væri af og frá því þá gætu væntanlegir stóriðjukúnnar borið sig saman við fyrri kúnna og það væri Landsvirkjun ekki hagstætt. Les: Svo slæma samninga hefur Landsvirkjun gert að ekki er rétt að upplýsa væntanlega viðskiptavini í stóriðjubransanum um kjörin! ...Helgi Hjörvar var eini Samfylkingarfulltrúinn í stjórn Landsvirkjunar sem greiddi atkvæði gegn samningunum við Alcoa á sínum tíma, hinir studdu hann. Á þeim tíma átti VG ekki fulltrúa í stjórn Landsvirkjunar. Það var ekki fyrr en vorið 2003 að Álfheiður Ingadóttir var kjörin stjórnarmaður í Landsvirkjun og hún stóð að fyrrnefndri tillögu í gær. Hvernig skyldi standa á því að í fjölmiðlum skuli hún ekki innt álits á málinu, aðeins Helgi Hjörvar? Hafi Morgunblaðið og Fréttablaðið ekki fundið myndir af Álfheiði Ingadóttur í safni sínu, þá bæti ég úr því með því að birta hér mynd af fulltrúa VG í stjórn Landsvirkjunar og er fjölmiðlum frjálst að nýta hana í frekari fréttaflutningi af þessu máli..
13. Júní 2006
EINAR ÖGMUNDSSON ALLUR: GEKK HVERGI SPORLAUST YFIR JÖRÐ
Í dag var borinn til grafar Einar Ögmundsson, frændi minn og náinn vinur. Útför hans var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík og var prestur séra Þórir Stephensen en hann var þremenningur við Einar að frændsemi og var með þeim vinátta. Séra Þóri mæltist einstaklega vel og flutti hann einhverja sterkustu ræðu sem ég hef heyrt flutta við slíka athöfn. Var þetta almennt mál manna. Hinn pólitíski litur séra Þóris Stephensens er ekki rauður heldur blár eins og þeir vita sem til þekkja. En vini sínum – skoðunum hans og hugsjónum - var hann trúr. Þess vegna var ræðan undir áhrifum hinna rauðu baráttufána hins unga Einars Ögmundssonar...12. Júní 2006
MÖGNUÐ MENNINGARHÁTÍÐ Í MUNAÐARNESI

Einhverjar ánægjulegustu samkundur sem ég kem á eru hinar árlegu Menningarhátíðir BSRB í Munaðarnesi. Þar rekur BSRB öflugustu orlofsbyggð verkalýðshreyfingarinnar í landinu, hátt í hundrað sumarhús ásamt þjónustumiðstöð. Í Munaðarnesi er á hverju sumri – og hefur verið allar götur frá byrjun tíunda áratugar síðustu aldar – efnt til málverkasýningar en við opnun hennar er síðan haldin Menningarhátíð sem við BSRBarar skrifum með stórum staf því svo heitir þessi viðburður. Á Menningarhátíðinni er boðið upp á það besta á sviði ljóðlistar og í söng og músík. Listamaðurinn sem sýnir í Munaðarnesi að þessi sinni er Gísli B. Björnsson og kallar hann sýningu sína, Ljós og litur í landslagi. Verk hans...
4. Júní 2006
EFTIRÁFRÉTTAMENNSKA
3. Júní 2006
ÞAGAÐ UM LÚÐVÍK JÓSEPSSON: ÁSETNINGUR EÐA AULAHÁTTUR HJÁ MORGUNBLAÐINU?
Nýlega var fjallað um landhelgisdeiluna í blaðakálfi Morgunblaðsins. Umfjöllunin hefur vakið hörð viðbrögð, sem meðal annars hafa teygt sig inn á þessa síðu. Hin gagnrýnu viðbrögð ganga út á, að hlutur þess manns sem fremstur stóð í þessari baráttu var fyrir borð borinn í umfjölluninni. Sá maður er Lúðvík Jósepsson, en hann gegndi stöðu sjávarútvegsráðherra á ögurstundu í deilunni og gekk harðast fram og af mestri staðfestu í að fá hana til lykta leidda. Hér á síðunni ...Þessar greinar skrifa menn sem vita hvað þeir syngja og hvet ég lesendur til þess að ...
2. Júní 2006
OPIÐ BRÉF TIL ALÞINGIS FRÁ ÞREMUR RÁÐHERRUM

Í Morgunblaðinu í gær birtist opið bréf til alþingismanna um málefni Ríkisútvarpsins þar sem varað er við því að stofnuninni verði breytt í hlutafélag. Þessi blaðagrein er merkileg fyrir ýmissa hluta sakir, gott ef hún er ekki söguleg, því höfundar eiga það sammerkt að vera allir fyrrverandi menntamálaráherrar landsins úr þremur stjórnmálaflokkum. Ekki minnist ég þess að þrír fyrrverandi ráðherrar úr þremur flokkum sameinist í blaðaskrifum um frumvarp sem er til umfjöllunar á Alþingi. Ingvar Gíslason var sem kunnugt er, menntamálaráðherra Framsóknarflokksins, Ragnar Arnalds var menntamálaráherra úr Alþýðubandalagi og Sverrir Hermannsson var menntamálaráherra fyrir Sjálfstæðisflokkinn en siðar varð hann formaður Frjálslyndaflokksins. Í Morgunblaðsgreininni segir m.a. : " …Við undirritaðir ítrekum það, sem fyrr hefur komið fram, að við teljum að best fari á því að Ríkisútvarpið haldi stöðu sinni sem sjálfstæð þjóðareign og mælum gegn því að breyta rekstrarformi þess í hlutafélag. Sérstaklega leyfum við okkur að beina því til alþingismanna að þeir greini muninn sem er á þjóðmenningarstofnun og viðskiptafyrirtæki."
28. Maí 2006
UNDIRSKRIFTASÖFNUN: VINNUBRÖGÐ FRÉTTASTOFU SJÓNVARPS GAGNRÝND

Á netinu gengur nú undirskriftasöfnun til að mótmæla þögn fréttastofu Sjónvarpsins um göngu Íslandsvina laugardaginn 27. maí 2006. Í áskoruninni segir eftirfarandi, nokkuð sem ég skil og styð heilshugar: "Við undirrituð sjáum okkur knúin til að
16. Maí 2006
"SVO LEGGJUM VIÐ TIL AÐ ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR VERÐI LAGÐUR NIÐUR"
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn virðist gefa lítið fyrir hag neytenda en þeim mun meira fyrir hagsmuni fjármagnsins. Síðast komu þessir sérfræðingar, að því er ég best veit, um miðjan júní á síðasta ári. Einnig þá voru þeir samir við sig og vildu leggja Íbúðalánasjóð niður. Um þá heimsókn skrifaði ég hér á heimasíðuna og minnti á...
15. Maí 2006
OPINBERUNARFUNDUR NIÐURLÆGINGAR
Í dag fer fram í Reykjavík ráðstefna í nafni tímaritsins The Economist um orkulandið Ísland, sem býður upp á ódýra orku og skattafslátt til auðhringa sem vilja láta svo lítið að stinga niður fæti í boði ríkisstjórnar Íslands. Einn af styrktaraðilum ráðstefnunnar er álframleiðandinn Alcoa, sem talað getur af reynslu um örlæti ríkisstjórnar Halldórs Ásgrímssonar. Sjaldan hefur íslensk ríkisstjórn lagst eins lágt og sú sem nú situr gagnvart auðvaldi erlendu og innlendu. Ráðstefnan í dag er eins konar opinberunarráðstefna þessarar niðurlægingar. Steingrími J. Sigfússyni, formanni Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs var boðið að sækja ráðstefnuna en afþakkar boðið í opnu bréfi sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Þar segir formaður VG meðal annars...11. Maí 2006
SLAGURINN UM ÞJÓÐLENDURNAR

...En þetta er bara önnur hlið málsins. Einnig er hægt að líta á þessi átök sem togstreitu á milli almannahagsmuna og einkahagsmuna. Þessi hlið mála verður augljósari eftir því sem jarðir hafna í höndum auðmanna – sem síðan reisa girðingar og merkja vegarslóða sem einkavegi. Þegar það síðan birtist okkur í ofanálag að átökin standa um margar fegurstu náttúruperlur landsins, skýrist það í hugum okkar margra hve mikilvægt það er að tryggja almannahaginn. Í kvöld birtist í fréttum að Hæstiréttur hefði kveðið upp úr um að Jökulsárlón væri almannaeign að mestu leyti! Á meðan landið er nytjað af bændum – þess vegna leigt og selt – og hagnaðurinn rennur í þeirra vasa, er samúð okkar flestra með þeim. Þegar eignarhaldið er hins vegar...
10. Maí 2006
SADISTAR Í SJÓNVARPI
...13 stúlkur voru látnar koma fram, sýna sig á sviði og í alls kyns stellingum. Í panel sátu síðan þrír eða fjórir matsmenn og dómarar og gáfu einkunnir fyrir göngulag og geiflur. Einkunnagjöfinni fylgdu ónærgætin ummæli um framkomu og sköpulag. Þáttastjórnandinn skýrði okkur áhorfendum frá því að til stæði að velja hverjar 12 stúlkur kæmust áfram og hver ein stúlka yrði send heim með skömm. Þessu var síðan fylgt eftir. Áhorfendur fengu að sjá tilfinningaþrungin svipbrigðin í andlitum stelpnanna þegar þær hver af annarri fengu náð og leyfi að halda áfram á frambraut þessa auvirðilega þáttar. Fórnarlambið sem valið hafði verið úr til aftöku var síðan sýnt tárvott í þáttarlok. Þetta er ekki saklaus skemmtun þetta er...28. Apríl 2006
FORMAÐUR VG KVITTAR FYRIR BOÐ Á RÁÐSTEFNU
Í Morgunblaðinu í dag gerir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, að umtalsefni ráðstefnu breska vikuritsins "The Economist", sem verður á Hótel Nordica 15. maí í boði Alcoa og fleiri aðila. Gerir hann að sérstöku umfjöllunarefni kynningarbækling ráðstefnunnar. Þennan kynningarbækling er ekki hægt að nálgast á heimasíðu ráðstefnunnar en ég geri hann aðgengilegan hér á heimasíðu minni. Í grein sinni segir Steingrímur m.a. : "Nú er það ekki svo að maður kippi sér upp við ráðstefnuboð og ekki heldur þó ræðumannahjörðin sé einlit og útlit fyrir að fátt annað komist að en níðþröng sjónarmið ráðstefnuhaldarans eða þess sem borgar brúsann. Svo er vissulega í þessu tilfelli. Ekkert nema "stofuhreinir" stuðningsmenn Kárahnjúkavirkjunar komast á pall ..." Ég læt ...26. Apríl 2006
NÁ VARNAÐARORÐ ÞINGMANNA FRAMSÓKNARFLOKKSINS TIL RÚV?
23. Apríl 2006
Á RÍKISÚTVARPIÐ AÐ VERA ÞJÓNUSTUSTOFNUN EÐA FJÁRFESTINGAFYRIRTÆKI?
... Er það inn í þennan heim sem Ríkisútvarpinu er stefnt? Ef ekki, þá vil ég fá að vita hvað það er sem Ríkisútvarpið getur ekki gert undir núverandi löggjöf en þarf nú bráðnauðsynlega að fá svigrúm til að gera? Er nálægðin við hið pólitíska vald vandamálið? Varla, því með núverandi löggjöf er á mótsagnakenndan hátt gert tvennt í senn, útvarpsstjóra veitt alræðisvald um mannaráðningar og framkvæmd dagskrár og hert á hinum pólitísku tengslum. Og ef pólitísku tengslin vefajst fyrir mönnum, hvers vegna ekki draga úr þeim? Ef
21. Apríl 2006
RÍKISÚTVARP ER EKKI SAMA OG RÚV HF
...Stjórnendahyggja af þessu tagi virðist hins vegar eiga nokkuð upp á pallborðið um þessar mundir: Ofurtrú á hinum sterka stjórnanda sem skákar liðsmönnum sínum til í anda skilvirkni og hagkvæmni. Ég hef meiri trú á ein
20. Apríl 2006
ÞAÐ ER HÆGT AÐ LAGA RÍKISÚTVARPIIÐ ÁN HÁEFFSINS
...Í öðru lagi er Ríkisútvarpið svokölluð B-hlutastofnun og sem slík mjög sjálfráð um allar sínar gjörðir. Þegar Rás 2 var sett á laggirnar á sínum tíma gerðist það með þeim hætti að Andrés Björnsson, þáverandi útvarpsstjóri, skipaði þriggja manna nefnd til að skoða kosti í stöðunni og í kjölfarið undirbúa stofnun rásarinnar. Skömmu síðar var opnað fyrir Rás 2! Varla getur þetta talist þunglamalegt kerfi. Ég hef einnig velt því fyrir mér hvort Ríkisútvarpið og stjórnendur þess, hafi verið látnir njóta sannmælis í oft óvæginni gagnrýni í þeirra garð á undanförnum árum. Þar vísa ég í framfarir ...
19. Apríl 2006
ER SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN ORÐINN ÞRÖNGSÝNNI?
...Aðeins þegar verðmæti dýrmætrar fiðlu kemur til álita má kenna lífsmark með forsvarsmönnum ...Skyldi það ekki verða þeim umhugsunarefni nú, að þeir alþingismenn sem mest hafa talað fyrir frumvarpi menntamálaráðherra eru sömu þingmennirnir og sjálfir hafa lagt fram lagafrumvarp um að leggja Ríkisútvarpið niður! Formaður menntamálanefndar Alþingis, Sigurður Kári Kristjánsson, sá hinn sami og hefur fengið það verkefni fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að sannfæra þing og þjóð um að hagur Ríkisútvarpsins verði tryggður, hefur sjálfur, og það meira að segja nýlega, talað fyrir því að Ríkisútvarpið verði gert að hlutafélagi og það síðan selt. Er þetta traustvekjandi? Svari hver fyrir sig...
16. Apríl 2006
"BUSH BELONGS...
14. Apríl 2006
DJÚPVITUR BOÐSKAPUR FRÁ REYNIVÖLLUM Í KJÓS
"Hvað er á bak við hina bandarísku hersetu í Keflavík undanfarna áratugi, hvað er á bak við herþotur og herþyrlur, kafbáta og herskip, hvað er á bak við einkennisbúninga og heiðursmerki, kaskeiti og radarstöðvar? Hvaða hugarfar og heimsmynd er það sem við Íslendingar erum að kveðja – sumir með söknuði, aðrir fagnandi – þegar þoturnar fjórar hverfa í átt til hnígandi sólar?" Þannig spyr séra 12. Apríl 2006
100. TBL. FRÉTTABRÉFSINS
8. Apríl 2006
GLEYMDI EINUM
Í gær fjallaði ég um helstu samstarfsmenn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, um breytingar á lögum um útvarpsrekstur í landinu. Þetta er frjálshyggjuvængur Sjálfstæðisflokksins ... Þessir samstarfsmenn menntamálaráðherra styðja frumvarp hennar þótt þeir vilji reyndar ganga skrefi lengra en ráðherra, láta ekki staðar numið við hlutafélagavæðingu heldur selja Ríkisútvarpið hið allra fyrsta. Þar skilja hins vegar leiðir með þessum mönnum og Páli Magnússyni, útvarpsstjóra. Hann er þó einn harðdrægasti stuðningsmaður menntamálaráðherra um að hlutafélagavæða RÚV. Auðvitað átti ég að heiðra Pál með...7. Apríl 2006
ÞORGERÐUR OG FÉLAGAR SETJI FRUMVARP UM RÚV HF Á ÍS

...Hvernig væri að menntamálaráðherra svaraði þeim rökum sem Þorsteinn Pálsson, Birgir Guðmundsson og Össur Skarphéðinsson hafa sett fram á frumvarp hennar.
Sjálfur hef ég í ræðu og riti komið á framfæri gagnrýni á umrætt lagafrumvarp en fátt hefur hins vegar verið um svör frá aðstandendum frumvarpsins. Einfaldlega er staðhæft að Ríkisútvarpinu muni vegna betur sem hlutafélagi en sem ríkisstofnun.
Helstu málsvarar frumvarpsins á Alþingi eru síðan þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem lagt hafa fram frumvarp um að Ríkisútvarpið verði einkavætt og selt og vísa ég þar í formann menntamálanefndar, Sigurð Kára Kristjánsson en hann ásamt Pétri H. Blöndal og Birgi Ármannssyni hafa talað fyrir frumvarpi þessa efnis. Það frumvarp er sennilega einhver sérkennilegasta tilraun til lagasmíðar sem komið hefur frá frjálshyggjumönnum fyrr og síðar. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að eftir afnám Ríkisútvarpsins fái pólitískt kjörið útvarpsráð í hendur skattfé sem það ráðstafi til dagskrárgerðar. Ráðstöfun skattfjárins fari fram með útboðum, en hið pólitískt kjörna útvarpsráð leggi mat á efnið, þar á meðal fréttaefni. Ekki gleyma þeir félagar öryggisþættinum, því einnig hann á að bjóða út! Þetta makalausa frumvarp kom til umræðu á yfirstandandi þingi og voru þeir Pétur og Birgir þá einir flutningsmenn. Áður hafði Sigurður Kári verið í hópnum en sennilega hefur þótt heppilegra að hann væri ekki á frumvarpinu að þessu sinni því sem formaður menntamálanefndar Alþingis fengi hann það hlutverk að sannfæra þjóðina um að ekki standi til að selja RÚV eftir hlutafélagavæðingu heldur hlú að því í hvívetna! Hér er...
6. Apríl 2006
RÍKISSTJÓRNIN RÝFUR SÁTT UM RÍKISÚTVARPIÐ
...Leiðari Þorsteins Pálssonar byggir á glöggum skilningi og pólitískri prinsippfestu. Hann hittir einfaldlega naglann á höfðuðið. Það er rétt að skírskota til breiðrar pólitískrar sáttar þegar Ríkisútvarpið er annars vegar. Það er líka rétt að auglýsingatekjurnar hafi helst farið fyrir brjóstið á samkeppnisaðilum og sennilega einnig hægri kantinum í stjórnmálum. Vinstri menn hafa haldið uppi málstað Ríkisútvarpsins, hvað sem á hefur dunið, jafnvel þótt mörgum hafi oft þótt talsverð hægri slagsíða á stofnuninni, ekki síst í seinni tíð. Nú er það hins vegar að gerast að sáttinni er sagt upp bæði til hægri og vinstri.
Það er mikill misskilningur hjá þeim forsvarsmönnum Ríkisútvarpsins, sem tala ákaft fyrir hlutafélagavæðingu, að stofnunin eigi vísan stuðning við...
5. Apríl 2006
HVERJIR HAGNAST Á MARKAÐSVÆÐINGU RAFMAGNS
Ríkisstjórn Íslands er óþreytandi við að reyna að sýna okkur fram á hve skynsamlegt sé að markaðsvæða raforkugeirann. Slíkt gefi góða raun. Að vísu reynist henni erfitt að sýna fram á ágæti þessa með dæmum því þau segja allt aðra sögu. Í nýútkomnu blaði sænskra bæjarstarfsmanna SKTF-Tidningen, er að finna frásögn af afleiðingum „markaðsvæðingar“ raforkugeirans í Svíþjóð. Sögusviðið er Stokkhólmur. Íbúar höfuðborgar Svíþjóðar höfðu rekið eigin raforkufyrirtæki Stockholm Energi. Það var einkavætt, varð fyrst Birka Energi sem síðan var gleypt af finnska stórfyrirtækinu Fortun. Síðan þetta gerðist, árið 2002, hafa rafmagnsreikningarnir í Stokkhólmi hækkað um 40%. Blaðið hefur eftir einum af forgöngumönnum þess að Stockholm Energi var einkavætt, Mats Hulth, sem fór með fjármál borgarinnar þegar þetta var ákveðið, að eftir á að hyggja hefði...4. Apríl 2006
FRUMVARP UM RÚV HF: ÓÚTFYLLTUR VÍXILL TIL FRAMTÍÐAR SEGJA STARFSMENN
Einkum voru það réttindamál starfsmanna sem voru til umræðu og gerðu starfsmenn Ríkisútvarpsins alvarlegar athugasemdir við frumvarp ríkisstjórnarinnar. Í ályktun sem samþykkt var samhljóða var harðlega gagnrýnt að þrátt fyrir að heildarsamtök starfsmanna hafi bent á mikilvægi þess að breyta frumvarpinu til að tryggja réttarstöðu starfsmanna hafi engar breytingar verið gerðar á frumvarpinu sem lýst var sem...
3. Apríl 2006
MISMUNANDI ÖRLÖG BÚIN: BBC OG RÚV
...BBC þarf, engu síður en heilbrigðisþjónustan, að taka stöðugum breytingum svo því takist að starfa á eins markvissan hátt í framtíðinni og það hefur gert hingað til." Þetta segir Tessa Jowell, menningarmálaráðherra Breta í formála að skýrslu um framtíð breska útvarpsins BBC sem út kom fyrir réttu ári, í mars 2005 undir heitinu, Review of the BBC´s Royal Charter. A Strong BBC, Independent of Government. Hvað þýðir þetta fyrir BBC? ... "Hvers ætlast fólk til af BBC, nú þegar framboð á efni er eins mikið og raun ber vitni? Við komumst að þeirri niðurstöðu að mestu máli skipti að vita hver væri vilji eigenda BBC, þeirra sem borga brúsann, greiða reikningana. Við ákváðum að snúa okkur til þeirra." Og áfram heldur Tessa Jowell: "Með skoðnakönnunum, með tilstilli rýnihópa, opinna umræðufunda, með hjálp internetsins fengum við sjónarmið þúsunda og aftur þúsunda. Skoðanir þessa fólks voru afar skýrar...Allt þetta er óralangt frá því sem er að gerast hér á landi. Hér á sem kunnugt er að gera Ríkisútvarpið að hlutafélagi. Hlutabréfið verður sett undir einn ráðherra. Síðan mun kosið útvarpsráð og mun skipan þess endurspegla ríkisstjórnarmeirihluta á Alþingi hverju sinni. Útvarpsráðið ræður síðan útvarpsstjóra sem verður nánast einráður um mannahald og framkvæmd dagskrár...31. Mars 2006
SVONA GETUR MORGUNBLAÐIÐ EKKI LEYFT SÉR AÐ SKRIFA
Í Staksteinum Morgunblaðsins í dag er stjórnarandstaðan á Alþingi gagnrýnd harkalega...Hefur Morgunblaðið verið algerlega úti á þekju í stjórnmálaumræðu undanfarinna ára? Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur sett fram fjölda þingmála sem snúa að því að hemja markaðsöflin, koma í veg fyrir fákeppni, hvort sem er í bönkum og fjármálastarfsemi eða lyfjasölu. Margvíslega aðra starfsemi má nefna. Jafnan hefur þessu verið hafnað af stjórnarmeirihlutanum. Morgunblaðið hefur vissulega oft tekið undir með VG þegar þessi mál hefur borið á góma. Það sem hins vegar greinir okkur frá ritstjórum Morgunblaðsins er að við viljum ekki láta staðar numið við það eitt að reisa fjármagninu lagalegar skorður eftir að því hefur verið gefinn laus taumurinn, heldur höfum við viljað byrgja brunninn áður en barnið dettur ofan í hann. Þess vegna höfum við reynt að koma í veg fyrir einkavæðingu almannaeigna, nokkuð sem lítið fór fyrir hjá hinum ágæta krataforingja, Jóni Baldvin Hannibalssyni, sem Morgunblaðið vill nú hefja til skýjanna. Ég man ekki betur en ...30. Mars 2006
RÚV RIFIÐ ÚT ÚR NEFND
Í gær var frumvarp ríkisstjórnarinnar rifið út úr menntamálanefnd Alþingis þrátt fyrir óskir nefndarmanna um ítarlegri umfjöllun og ábendingar um að veigamiklum spurningum væri ósvarað. En menntamálaráðherra og útvarpsstjóra liggur á. 29. Mars 2006
GÆTI REKIÐ MANN FYRIR AÐ HAFA ÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2
22. Mars 2006
Í DAG DEYJA 10.OOO MANNS AF VATNSSKORTI
Í dag, 22. mars, er alþjóðlegur baráttudagur Sameinuðu þjóðanna fyrir vatni. Verkalýðssamtök og margvísleg hagsmunasamtök almennings efna til vitundarvakningar af ýmsu tagi í dag til þess að vekja athygli á þeirri staðreynd að aðgengi að vatni telst til grundvallarmannréttinda og að með vatn eigi ekki að fara eins og hverja aðra verslunarvöru. ...Frá World Water Forum berast þær fréttir... að meginniðurstaða ráðgjafaráðs Kofi Annans aðalritara Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var á Mexíkóráðstefnunni sé sú “að opinberar veitur verði að gegna lykilhlutverki ...Þá hlýtur ekki síður að teljast fréttnæmt að Alþjóðabankinn kunni einnig að breyta stefnu sinni...20. Mars 2006
SJÓNVARP KENYA?
17. Mars 2006
MEGUM VIÐ EKKI EIGA ÞETTA HÚS – HVERS VEGNA NÝJAN MILLILIÐ?

...Skyldi Viðskiptaráðið halda að viðhaldspeningurinn komi af himnum ofan? Það gerir hann ekkert frekar en þeir fjármunir sem nýir eigendur Þjóðleikhússins, skólanna og allra þjónustustofnananna ætla sér í hagnað eftir að þeir komast yfir þessar eignir. Auðvitað verður það skattborgarinn sem kemur til með að blæða. Er það ekki ágætt fyrirkomulag að ríkið eigi sínar fasteignir og feli síðan verktakafyrirtækjum að annast ýmis viðhaldsverk eins og tíðkast hefur? Rétt er að láta hugmyndir Viðskiptaráðs um nýjan millilið lönd og leið...
12. Mars 2006
ASÍ OG ALÞÝÐUFLOKKUR 90 ÁRA - SAGAN ER OKKAR ALLRA
12. Mars 2006
AÐ KOMAST INN Í HEIM HEYRNARLAUSRA
8. Mars 2006
8. MARS: BARÁTTUDAGUR KVENNA
...Þá má nefna fund á vegum Bríetar á Dubliners í Reykjavík kl. 20:00, þar sem meðal annars er lesið úr ræðu baráttukonunnar Bríetar Bjarnhéðinsdóttur frá árinu 1887. Listamenn og stjórnmálamenn koma fram á þessum fundi, þar á meðal 7. Mars 2006
SJÓNARMIÐ ÞJÓÐVILJANS Á SKAGANUM OG ÁLVAKAN Í HLJÓMALIND
Gerum betur, Ísland nr 1. Hún verður haldin í dag og hefst klukkan 17:30 á Kaffi Hljómalind ...."... Mínar málsbætur fyrir að vekja athygli á hótun Alcans um lokun eru af tvennum toga og nefndi ég þær við umræður á Alþingi í gær. Annars vegar er um að ræða...
2. Mars 2006
AFGERANDI MEIRIHLUTI ÞJÓÐARINNAR ANDVÍGUR STÓRIÐJUSTEFNUNNI
...Það hlýtur þó að vekja forystumenn Sjálfstæðisflokksins til umhugsunar að 42% stuðningsmanna flokksins eru þessari stefnu andvígir. Ég hef fyrir satt að Sjálfstæðisflokksforystan sé farin að hafa þungar áhyggjur af offorsi þeirra Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðarráðherra og Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra, þegar stóriðjustefnan er annars vegar. Það er eitt að vilja virkja, annað að gera virkjun í þágu erlendra álhringa að köllun sinni og hugsjón. Almennt vill fólk að stefna í atvinnu- og efnahagsmálum þjóðarinnar verði mótuð af yfirvegun og á forsendum íslenskra hagsmuna. Það hefur ríkisstjórnin ekki gert og skrifast það að sjálfsögðu á reikning hennar allrar. Öllum má þó ljóst vera að...
21. Febrúar 2006
BEÐIÐ SVARS Á ALÞINGI UM SÖLU BÚNAÐARBANKANS
Vilhjálmur Bjarnason, aðjunkt við Háskóla Íslands, hefur staðhæft, að skoðun á efnahagsreikningi þýska bankans, Hauck & Aufhauser, fyrir árið 2003 hafi leitt í ljós, að bankinn hafi ekki verið einn kaupenda Búnaðarbankans einsog fulltrúar seljanda bankans, þ.e. ríkisins, fullyrtu þegar salan fór fram. Einkavæðing Búnaðarbankans, forvera KB banka var sem kunnugt er afar umdeild enda færði hún nokkrum aðilum í hendur gífurleg verðmæti á spottprís. Margir þeirra, sem voru viðriðnir þessa sölu og hafa hagnast um himinháar upphæðir, eru jafnaframt nátengdir Framsóknarflokknum. Á Alþingi vísar forsætisráðherrann, sem jafnframt er formaður Framsóknarflokksins og viðskiptaráðherrann, sem einnig er úr Framsóknarflokki, öllum athugasemdum á bug og þar við situr, - eða hvað? Nú er komin fram í þinginu fyrirspurn frá undirrituðum þar sem m.a. er...8. Febrúar 2006
MYND MÁNAÐARINS

...Ólína gerir það að tillögu sinni að ljósmynd sem í gærmorgun birtist í Morgunblaðinu af bankastjórum Landsbankans verði útnefnd mynd þessa árs. Hún minni um margt á myndina af þeim félögum Finni og Ólafi þegar þeir fengu Búnaðarbankann að gjöf árið 2002. Á Morgunblaðsmyndinni í gær, segir Ólína, "sátu fyrir búralegir bankastjórar glaðbeittir og ánægðir með mikinn hagnað bankans sem líka var seldur fyrir slikk ekki alls fyrir löngu. Í forgrunni var skilti sem á stóð: Fáðu meira fyrir launin þín. Afhjúpandi mynd og afstrakt sem sjálfsagt hefur vakið fleiri menn til umhugsunar um launatekjur, hagnað og sölu ríkiseigna en tveir eða þrír leiðarar á miðopnu Morgunblaðsins. Myndirnar tvær sýna að morgunblaðsmenn eru vakandi í vinnunni......" Allt kann þetta að vera satt og rétt hjá Ólínu en ég minni á að árið er rétt að hefja göngu sína. Að svo stöddu skulum við láta nægja að útnefna þá félaga Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason sem fyrirsætur mánaðarins. Vel má vera að myndin endi sem verðlaunamynd ársins. Hver veit nema...
5. Febrúar 2006
TRÚARBRÖGÐ EÐA LETI ?
4. Febrúar 2006
HVAÐ ER FRÁBRUGÐIÐ MEÐ RÚV OG DANMARKS RADIO?
...En er ekki merkilegt að öll fínu og flottu rökin fyrir einkavæðingu Sjónvarpsins og öll sú dökka mynd sem dregin er upp af ríkisstofnuninni RÚV skuli bara eiga við hér út í Dumbshafi, en ekki um sams konar fyrirtæki í ríkisrekstri annars staðar, t.d. í Danmörku? Er það ekki sérstakt rannsóknarefni fyrir menntamálaráðherra hvernig á því stendur að Danmarks Radio, ríkisbatterí fjármagnað með afnotagjöldum, gat framleitt og selt til 42 Evrópulanda Matador - margverðlaunaðan þátt, eða Króníkuna, eða Taxa, eða Rejseholdet - eða það sem safnar Íslendingum fyrir framan viðtækin - sakamálaþáttinn Örninn sem fékk alþjóðleg verðlaun fyrir nokkrum mánuðum, eins og fleiri þættir, sem DR hefur framleitt? Og hvað er það í danska ríkisrekstrinum og afnotagjöldunum sem er öðru vísi en hjá Ríkisútvarpinu? Vildi menntamálaráðherra
29. Janúar 2006
SVELT OG SELT
...Eftir að RÚV hefur verið gert að hlutafélagi mun birtast frelsandi engill. Það gæti þess vegna verið Morgunblaðið og samstarfsaðilar þess, sem vildu mynda mótvægi við Stöð tvö. Boðið yrði upp á einhverja milljarða inn í rekstur RÚV hf, að sjálfsögðu gegn eignaraðild. Hver myndi standa gegn tilboði um myndarlega hlutafjáraukningu í RÚV hf? Hver yrði því andvígur að fá aukið fjármagn til að efla og bæta dagskrána? Myndi útvarpsstjórinn fúlsa við slíku? Eða menntamálaráðherrann? Og hvað með okkur hin, væri þetta ekki fjári góð hugmynd? - að öðru leyti en því náttúrlega, að Ríkisútvarpið væri þá hætt að vera Ríkisútvarp heldur...
21. Janúar 2006
EIGNARHALD, RITSTJÓRNARSTEFNA OG RÍKISÚTVARPIÐ
...Í ofanálag geirneglir stjórnarfrumvarpið pólitískt meirihlutavald yfir stofnuninni – endurspeglun á stjórnarmeirihlutann hverju sinni! Það er ekki að undra að þeim fjölgi sem leggjast gegn frumvarpi menntamálaráðherra um hlutafélagavæðingu RÚV. Þeir sem leggjast gegn því er sama fólkið og hefur lesið frumvarpið og jafnframt kynnt sér aðra valkosti sem bjóðast til að bæta rekstrarskilyrði Ríkisútvarpsins. Það segir...
17. Janúar 2006
DV GERIST MÁLSVARI HARÐLÍNU HÆGRI STEFNU
14. Janúar 2006
FRÉTTABLAÐINU FLETT
11. Janúar 2006
FJÁRFESTINGARMÖGULEIKAR FRAMUNDAN Í VATNI SEGJA FRAMSÓKNARFJÁRFESTAR

Ólafur Ólafsson stjórnarformaður Olíufélagsins kom fram í sjónvarpsfréttum í gær til að leggja áherslu á siðferði í viðskiptum. Til stendur að eigendur Olíufélagsins, en þar er hann sjálfur fyrirferðarmestur, selji félagið en slíkt megi alls ekki gerast, segir Ólafur, í "reykmettuðum bakherbergjum". Nú veit ég ekki hvort Ólafur Ólafsson er reykingamaður en hitt veit ég að sjálfur hefur hann notið góðs af baktjaldamakki Framsóknarflokksins á undanförum árum. Sjálfur er hann þar í innsta hring og naut gjafmildi þeirra Halldórs, flokksformanns og Valgerðar, viðskiptaráðherra þegar þau gáfu Búnaðarbankann.- eða til að vera nákvæmari, "seldu" hann á gjafprís. Í kjölfarið hafa njótendur þessa pólitíska örlætis makað krókinn ótæpilega. Það er varla nema fyrir innvígða að fylgjast með ferli fjármálabrasksins en eftirfarandi ...
10. Janúar 2006
NÝ “RANNSÓKNARSTÖД VILL AUKA SKILNING Á “EIGNARÉTTINDUM”
Að undanförnu hefur talsvert verið fjallað um nýútkomna skýrslu eftir hagfræðingana Tryggva Þór Herbertsson, Halldór Benjamín Þorbergsson og Rósu Björk Sveinsdóttur, sem ber heitið Ísland og alþjóðaviðskipti. Þar lýsa skýrsluhöfundar því blákalt yfir að “ritgerðin” sé “skrifuð til að tíunda kosti alþjóðaviðskipta...” Þetta getur varla flokkast sem sannfærandi fræðileg nálgun á viðfangsefnið sem einkum og sérílagi tekur til verslunar á sviði landbúnaðarafurða. Auðvitað er það kostur að menn tali tæpitungulaust um hlutina ef þeir á annað borð vilja gerast pólitískir. Og ekki verða skýrsluhöfundar ásakaðir fyrir að reyna að villa á sér heimildir. Á afdráttarlausari hátt verður varla lýst yfir aðdáun á hægrihyggju en gert er í þessum formálsorðum skýrslunnar: „Undanfarinn áratug hefur Ísland siglt hraðbyri í frjálsræðisátt. Fjármagnsflutningar hafa verið gefnir frjálsir, skikki komið á ríkisfjármálin og skuldir greiddar, ríkisfyrirtæki einkavædd, skattar á fyrirtæki lækkaðir og rammi hagstjórnar er orðinn eins og best verður á kosið. Á minnsta kosti einu sviði hefði þó mátt ganga hraðar fram – á vettvangi alþjóðaviðskipta.“ Frá lesendum
31. Júlí 2010
UNDARLEGAR SPURNINGAR?
Ragnar Eiríksson
30. Júlí 2010
VATNIÐ OG RÍKISSTJÓRNIN
Pétur
29. Júlí 2010
ÓSVÍFIN HVATNING TIL ÁFENGISNEYSLU
Kristbjörn Árnason
29. Júlí 2010
FORSENDUR SJÁLFSTÆÐIS
Kveðja,
Ólína
29. Júlí 2010
ESB TIL ÓÞURFTAR
..Mér fannst greinin þín GUÐLAST lýsa EES vitleysunni vel...Við ættum að losa okkur út úr EES samningnum og ALLS EKKI ganga í Evrópumiðstýringarofríkið og ALLS EKKI borga 1 eyri úr ríkissjóði fyrir Icesave-nauðungina. Icesave er skuld Björgólfs Thors og Landsbankans og kemur EU eða bresku og hollensku ríkisstjórnunum eða íslenska ríkissjóðinum ekki við. Og skömm að þeim Alþingismönnum sem hylma yfir og þagna. Og ekki síst öllum þeim sem kusu JÁ með Icesave. Voðalegt var að lesa skrif Péturs í færslu sem þú kallar EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN? Veit maðurinn ekkert um ofríki EU? Veit hann ekkert um ólögmæti Icesave?
ElleE
28. Júlí 2010
HLUTABRÉFIN HÆKKUÐU
Hreinn K
27. Júlí 2010
SORGARDAGUR!
Óskar K Guðmundsson, fisksali
27. Júlí 2010
KVEÐJUR TIL JÓNS BJARNASONAR
Bestu kveðjur,
Egill
25. Júlí 2010
EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN?
Pétur
24. Júlí 2010
HUGSJÓNA- OG HAGSMUNAMENN
Jóna Guðrún
Póstlisti
Frjálsir pennar
8. Júlí 2010
Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY
2. Júlí 2010
Baldur Andrésson skrifar: NÝ HÖLL Á HAFNARBAKKA
28. Júní 2010
Björn Jónasson skrifar: NÝR GJALDMIÐILL
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...












