Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

31. Mars 2006

SVONA GETUR MORGUNBLAÐIÐ EKKI LEYFT SÉR AÐ SKRIFA

Í Staksteinum Morgunblaðsins í dag er stjórnarandstaðan á Alþingi gagnrýnd harkalega...Hefur Morgunblaðið verið algerlega úti á þekju í stjórnmálaumræðu undanfarinna ára? Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur sett fram fjölda þingmála sem snúa að því að hemja markaðsöflin, koma í veg fyrir fákeppni, hvort sem er í bönkum og fjármálastarfsemi eða lyfjasölu. Margvíslega aðra starfsemi má nefna. Jafnan hefur þessu verið hafnað af stjórnarmeirihlutanum. Morgunblaðið hefur vissulega oft tekið undir með VG þegar þessi mál hefur borið á góma. Það sem hins vegar greinir okkur frá ritstjórum Morgunblaðsins er að við viljum ekki láta staðar numið við það eitt að reisa fjármagninu lagalegar skorður eftir að því hefur verið gefinn laus taumurinn, heldur höfum við viljað byrgja brunninn áður en barnið dettur ofan í hann. Þess vegna höfum við reynt að koma í veg fyrir einkavæðingu almannaeigna, nokkuð sem lítið fór fyrir hjá hinum ágæta krataforingja, Jóni Baldvin Hannibalssyni, sem Morgunblaðið vill nú hefja til skýjanna. Ég man ekki betur en ...

30. Mars 2006

RÚV RIFIÐ ÚT ÚR NEFND

Í gær var frumvarp ríkisstjórnarinnar rifið út úr menntamálanefnd Alþingis þrátt fyrir óskir nefndarmanna um ítarlegri umfjöllun og ábendingar um að veigamiklum spurningum væri ósvarað. En menntamálaráðherra og útvarpsstjóra liggur á. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, ráðherra, og nýskipaður útvarpsstjóri, Páll Magnússon, hafa ákaft kallað eftir stuðningi við að hlutafélagavæða RÚV og hefur útvarpsstjórinn ekki látið sitt eftir liggja í áróðrinum, innan stofnunar sem utan, síðustu daga og vikur. Hversu rétt það er að hann beiti sér í þessu efni á þennan hátt læt ég liggja á milli hluta – að sinni...Nú kemur til kasta Alþingis. Á endanum mun reyna á stjórnarmeirihlutann á þingi. Gæti kraftaverkið gerst? Gæti það gerst að stjórnarmeirihlutinn losaði sig úr viðjum einsýnnar hugmyndafræði og spyrði hvað skynsamlegast og réttmætast sé að gera við þá þjóðareign okkar sem Ríkisútvarpið er? Er það rétt og skynsamlegt að fjarlægja þessa eign eigendum sínum, þjóðinni, eins og frumvarp ríkisstjórnarinnar gengur út á, eða á að styrkja tengslin við þjóðina? Auðvitað á að gera hið síðarnefnda. Illa væri mér brugðið ef starfsmenn Ríkisútvarpsins sjá ekki að...

29. Mars 2006

GÆTI REKIÐ MANN FYRIR AÐ HAFA ÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2

Í DV má lesa að sölumaður hjá bílaumboði hafi verið rekinn fyrir að kaupa sér bíl frá öðru umboði, eða með öðrum orðum, frá samkeppnisaðila. "Ég var kallaður inn á teppið hjá forstjóranum og hreinlega rekinn fyrir að hafa keypt mér bíl sem annað umboð flytur inn," segir sölumaðurinn fyrrverandi í samtali við DV. Getur það verið að starfsmenn RÚV verði reknir fyrir að ...

22. Mars 2006

Í DAG DEYJA 10.OOO MANNS AF VATNSSKORTI

Í dag, 22. mars, er alþjóðlegur baráttudagur Sameinuðu þjóðanna fyrir vatni. Verkalýðssamtök og margvísleg hagsmunasamtök almennings efna til vitundarvakningar af ýmsu tagi í dag til þess að vekja athygli á þeirri staðreynd að aðgengi að vatni telst til grundvallarmannréttinda og að með vatn eigi ekki að fara eins og hverja aðra verslunarvöru. ...Frá World Water Forum berast þær fréttir... að meginniðurstaða ráðgjafaráðs Kofi Annans aðalritara Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var á Mexíkóráðstefnunni sé sú “að opinberar veitur verði að gegna lykilhlutverki ...Þá hlýtur ekki síður að teljast fréttnæmt að Alþjóðabankinn kunni einnig að  breyta stefnu sinni...

20. Mars 2006

SJÓNVARP KENYA?

...Spunamenn Halldórs sátu á fyrsta bekk á fundi Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ í kvöld. Þeir höfðu greinilega unnið fyrir kaupinu sínu í dag; talað Sjónvarpið inn á að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu, sennilega á þeirri forsendu að þaðan væri að vænta stórkostlegra tíðinda. Svo reyndist ekki vera. Halldór sagði fundarmönnum og landsmönnum að hann hefði talað í síma við framkvæmdastjóra NATÓ, sem aftur hafði talað við Bush Bandaríkjaforseta. Niðurstaða samtalanna var sú að beðið yrði átekta! Heima í stúdíói voru tveir fyrrverandi pólitíkusar að ræða um framtíðina. Þetta var tilraun Kastljóss kvöldsins að vera með puttann á púlsinum...

17. Mars 2006

MEGUM VIÐ EKKI EIGA ÞETTA HÚS – HVERS VEGNA NÝJAN MILLILIÐ?


...Skyldi Viðskiptaráðið halda að viðhaldspeningurinn komi af himnum ofan? Það gerir hann ekkert frekar en þeir fjármunir sem nýir eigendur Þjóðleikhússins, skólanna og allra þjónustustofnananna ætla sér í hagnað eftir að þeir komast yfir þessar eignir. Auðvitað verður það skattborgarinn sem kemur til með að blæða. Er það ekki ágætt fyrirkomulag að ríkið eigi sínar fasteignir og feli síðan verktakafyrirtækjum að annast ýmis viðhaldsverk eins og tíðkast hefur? Rétt er að láta hugmyndir Viðskiptaráðs um nýjan millilið lönd og leið...   

12. Mars 2006

ASÍ OG ALÞÝÐUFLOKKUR 90 ÁRA - SAGAN ER OKKAR ALLRA

...Þetta þótti mér koma skemmtilega fram í ávarpi Benedikts Davíðssonar, fyrrum forseta Alþýðusambands Íslands, sem minnti samkomugesti á að hann væri orðinn svo gamall í hettunni að hann hefði sjálfur átt samstarf við Ottó N. Þorláksson, einn helsta frumkvöðulinn að stofnun Alþýðusambandsins og fyrsta forseta þess. Þeir hefðu átt samstarf á vettvangi verkalýðsbaráttu en einnig hefðu þeir samtímis átt sæti í miðstjórn Sósíalistaflokksins. Benedikt lagði áherslu á þessar sögulegu víddir þegar hann beindi sjónum að samtíð og framtíð og sagði mikilvægt að á vettvangi stjórnmálanna yrði barist fyrir þeim hugsjónum og baráttumarkmiðum sem hin upprunalega jafnaðarstefna Alþýðuflokksins hefði hvílt á. Það er rétt sem  Benedikt Davíðsson gaf í skyn í ræðu sinni að Alþýðuflokkurinn tók miklum breytingum í tímans rás og er ég hræddur um að mörgum frumkvöðlanna hefði brugðið í brún ef þeir hefði séð...

12. Mars 2006

AÐ KOMAST INN Í HEIM HEYRNARLAUSRA

...Þetta er ekki aðeins mikilvægt fyrir heyrnarlausa og þeirra menningu heldur ekki síður hina heyrandi, að komast inn í heim heyrnarlausra eins og haft var á orði í Viðtalinu. Leikritið orkaði sterkt á mig – vel upp byggt og leikurinn góður. Nú hef ég í langan tíma haft áhuga á málefnum heyrnarlausra og talið mig all-meðvitaðan um þau. Á sýningunni rann upp fyrir mér hve mikið vantar þar uppá! Leikritið segir frá tveimur mæðgum sem fyrst byrja að ræðast við sem einstaklingar á jafnræðisgrundvelli þegar dóttirin, sem er heyrnarlaus, er komin á fullorðinsaldur. Dóttirin talar táknmál en móðirin ekki. Þegar mæðgurnar fara að ræðast við með aðstoð túlks opnast nýjar víddir í tilverunni og margt frá liðinni tíð fær nýja merkingu. Það verður ...

8. Mars 2006

8. MARS: BARÁTTUDAGUR KVENNA

...Þá má nefna fund á vegum Bríetar á Dubliners í Reykjavík kl. 20:00, þar sem meðal annars er lesið úr ræðu  baráttukonunnar Bríetar Bjarnhéðinsdóttur frá árinu 1887. Listamenn og stjórnmálamenn koma fram á þessum fundi, þar á meðal Kolbrún Halldórsdóttir, sem fellur undir báðar skilgreiningarnar svo og Drífa Snædal frá Kvennaathvarfinu. Drífa skrifar pistil hér á síðuna í dag þar sem hún segir meðal annars um jafnréttisbaráttuna: "Að lokum munum við öll hagnast á jafnrétti því eins og sagan sýnir eru það ekki bara konur sem njóta afraksturs jafnréttisbaráttunnar heldur samfélagið allt. Aldrei er meiri ástæða til að halda baráttunni áfram, styrkja samstöðuna og breyta ríkjandi gildum og hefðum. Ég óska öllum jafnréttissinnum til hamingju með daginn og óska okkur gæfu í hinni krefjandi byltingu sem ekki verður umflúin." Sjá nánar...

7. Mars 2006

SJÓNARMIÐ ÞJÓÐVILJANS Á SKAGANUM OG ÁLVAKAN Í HLJÓMALIND

Ég hef fengið nokkur viðbrögð á ummæli mín á Alþingi í gær um hótanir Alcan um að loka álverinu í Straumsvík, yrði ekki farið að vilja álrisans um heimildir til stækkunar álversins. Ég byggði á ummælum Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra hvað þetta snertir. Hann kallaði þetta ekki hótanir en í mínum huga var augljóst að álrisinn hafði gert forsætisráðherra þjóðarinnar ljóst hvaða afleiðingar það myndi hafa yrði ekki farið að vilja hans. Ýmsir hafa tekið allt annan pól í hæðina en ég gerði og má þar nefna ágætan fastan penna hér á síðunni, Helga Guðmundsson, en á ágætri heimsíðu sem hann rekur Þjóðviljanum á Skaganum ... Annar aðili sem fram hefur komið og fagnað yfirlýsingum Alcans eru aðstandendur  "Ál Andvöku" sem ber yfirskriftina:
Gerum betur, Ísland nr 1. Hún verður haldin í dag og hefst klukkan 17:30 á Kaffi Hljómalind ...."...
Mínar málsbætur fyrir að vekja athygli á hótun Alcans um lokun eru af tvennum toga og nefndi ég þær við umræður á Alþingi í gær. Annars vegar er um að ræða...

2. Mars 2006

AFGERANDI MEIRIHLUTI ÞJÓÐARINNAR ANDVÍGUR STÓRIÐJUSTEFNUNNI

Birtist í Morgunblaðinu 01.03.06.
...Það hlýtur þó að vekja forystumenn Sjálfstæðisflokksins til umhugsunar að 42% stuðningsmanna flokksins eru þessari stefnu andvígir. Ég hef fyrir satt að Sjálfstæðisflokksforystan sé farin að hafa þungar áhyggjur af offorsi þeirra Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðarráðherra og Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra, þegar stóriðjustefnan er annars vegar. Það er eitt að vilja virkja, annað að gera virkjun í þágu erlendra álhringa að köllun sinni og hugsjón. Almennt vill fólk að stefna í atvinnu- og efnahagsmálum þjóðarinnar verði mótuð af yfirvegun og á forsendum íslenskra hagsmuna. Það hefur ríkisstjórnin ekki gert og skrifast það að sjálfsögðu á reikning hennar allrar. Öllum má þó ljóst vera að...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

31. Júlí 2010

UNDARLEGAR SPURNINGAR?

Hvernig stendur á því Ögmundur að þú spyrð svona einkennilegra spurninga á síðunni þinni - sem er væntanlega hugsuð almenningi til aflestrar. Hvað er einkennilegt við spurninguna þína - "Hvers vegna stóð Ísland ekki með mannréttindum" og er um hvers vegna Ísland sat hjá við afgreiðsu vatnsréttindanna hjá SÞ. Jú, þú hefur beinan aðgang að bæði mannréttindaráðherra (Jóhönnu held ég) og utanríkisráðherra (Össur) og getur spurt þau beint og krafist svars án málalenginga eða útúrsnúninga! Við alm. lesendur þínir höfum ekki þennan kost. Það væri reyndar fróðlegt að fá að vita ....
Ragnar Eiríksson

30. Júlí 2010

VATNIÐ OG RÍKISSTJÓRNIN

... Það er mjög einkennilegt að vilja ekki styðja tillögu Sameinuðu þjóðanna um að flokka réttinn til vatns sem mannréttindi. Heldur skipar ríkisstjórnin sér í flokk með hægri stjórnunum í Danmörku, Svíþjóð og Englandi sem vilja braska og gera drykkjarvatn að söluvöru. Sú afsökun sem gefin er út í fjölmiðlum er óskiljanleg. VG skuldar kjósendum sínum skýringu.
Pétur

29. Júlí 2010

ÓSVÍFIN HVATNING TIL ÁFENGISNEYSLU

...Þá finnst mér auglýsingar skemmtannaliðsins í Vestmannaeyjum ganga út fyrir allann þjófabálk. Sínu verst er sú auglýsingin þar sem þingmaðurinn öskrar djamm, inn í tjaldið hjá tveim drengjum. Annar virðist svag fyrir drykkjulátunum. Hinn er klæddur í skátabúning og virðist ekki hafa áhuga á drykkjulátunum. Þeir sem bera ábyrgð á auglýsingunni leyfa sér í þessari auglýsingu að gera grín að unglingnum sem ekki vill drekka áfengi og skemmta sér með drykkjulátum. Þetta er ótrúleg ósvífni. Ríkisfjölmiðillinn lætur ekki sitt eftir liggja varðandi ...
Kristbjörn Árnason

29. Júlí 2010

FORSENDUR SJÁLFSTÆÐIS

...Rétt að vekja athygli á þessari framsetningu nú þegar fámennt íslenskt samfélag gæti staðið frammi fyrir því að rakna upp með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Það er ekki bara að þetta sé grundvöllurinn sem gerir okkur fær um að takast á við sjálf okkur og heiminn, þetta er útgangspunktur þess sem vill reisa hér velferðarsamfélag, til dæmis norrænt. Það er freistandi að lesa grein Styrmis og skilja, sem hugmyndafræðilega endurskoðun eða byrjun á uppgjöri, sem ætti að leiða til tímabærs uppgjörs í flokkakerfinu, ekki ólíkt því sem verður að verða í siðferði atvinnulífsins. Eða hvað finnst þér Ögmundur?  
Kveðja,
Ólína

29. Júlí 2010

ESB TIL ÓÞURFTAR

..Mér fannst greinin þín GUÐLAST lýsa EES vitleysunni vel...Við ættum að losa okkur út úr EES samningnum og ALLS EKKI ganga í Evrópumiðstýringarofríkið og ALLS EKKI borga 1 eyri úr ríkissjóði fyrir Icesave-nauðungina. Icesave er skuld Björgólfs Thors og Landsbankans og kemur EU eða bresku og hollensku ríkisstjórnunum eða íslenska ríkissjóðinum ekki við. Og skömm að þeim Alþingismönnum sem hylma yfir og þagna. Og ekki síst öllum þeim sem kusu JÁ með Icesave. Voðalegt var að lesa skrif Péturs í færslu sem þú kallar EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN? Veit maðurinn ekkert um ofríki EU? Veit hann ekkert um ólögmæti Icesave?
ElleE

28. Júlí 2010

HLUTABRÉFIN HÆKKUÐU

Hlutabréf í Magma Energy á hlutabréfamarkaðnum í Toronto hafa hækkað í vikunni. Eftir blaðamannafund ríkisstjórnarinnar og loforðin um að "vinda ofan af einkavæðingunni", hækkuðu bréfin skarpt eða um 2%. Það er skoðun markaðarins á loforðum ...
Hreinn K

27. Júlí 2010

SORGARDAGUR!

...Doði virðist hafa runnið á hjartlæga aðgerðarsinna. Það lítur út fyrir að menn sjái ekki fyrir sér að hægt sé að snúa við þeirri hörmung sem við blasir, afsal hluta æðakerfis úr skjaldarmerki þjóðarinnar. Hverjar eru nú varnirnar. Goð í suðri fallið. Ég hef nú reyndar ekki talið að heppilegt að íslenzkir rekstrarmenn ættu að koma þar að og því í góðu lagi að semja við erlenda rekstrarstjóra, en fulltrúar okkar í samninganefnd verða þó að vera með réttu ráði þegar slíkir samningar eru gerðir. Aukinheldur vil ég benda á að dagurinn í dag 27 júlí mun talinn sorgardagur í hugum þorra fólks hér á landi enda upphaf spyrðingaráætlanna við ESB hafið. Vonandi tekst ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali

27. Júlí 2010

KVEÐJUR TIL JÓNS BJARNASONAR

...Ég bið þig að koma eftirfarandi á framfæri hér á síðunni gagnvart Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegsráðherra: Loks er kominn fram sjávarútvegsráðherra sem þorir að framkvæma. Framganga ráðherrans í kvótamálunum er til mikils sóma og jafnvel þó aðeins sé nartað í litlu tánna enn sem komið er, þá finnur risinn til. Vona að JB fái vinnufrið og hafir orku og vilja til áframhaldsins.
Bestu kveðjur,
Egill

25. Júlí 2010

EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN?

...Afstaða öfgahópsins innan VG er síður en svo til að standa vörð um hagsmuni fátæks fólks á Íslandi. Það fer lítið fyrir efnislegri umræðu hjá þessu fólki og andstaða þess við menn og málefni virðist fremur eiga rætur í eðlislægri persónuröskun og athyglissýki frekar en trú á að það sé að vinna fátækum gott. Ef félagshyggjufólk leyfir sér að gagnrýna þennan hóp er því svarað með orðum eins og "síðsovésk viðhorf". Er það efnisleg umræða? Þessi hópur hefur haldið ríkisstjórninni í gíslingu og haldið aftur af efnahagslegum úrbótum og þar með dregið verulega úr þjónustu við fátækt fólk. Ég nefni afstöðu þess til Icesave málsins, ESB, sem það ...
Pétur

24. Júlí 2010

HUGSJÓNA- OG HAGSMUNAMENN

...Fyrir ekki löngu, nánar tiltekið fyrir tíu dögum, velti ég því fyrir mér hvort félagsmálaráðherrann og Samfylkingin væri að klofna í hugsjónamenn og hagsmunamenn. Í síðari hópnum væru til dæmis menn sem vildu gera Yngva Örn Kristinsson að forstjóra Húsnæðisstofnunar, Runólf Ágústsson að umboðsmanni skuldara og fyrrum stjórnarmann í FME og Seðlabanka að nýjum viðskiptaráðherra. Þetta er nú byrjað að ganga upp. Umboðsmaður skuldara er fundinn. Hann fannst í ...
Jóna Guðrún


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

8. Júlí 2010

Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY

...Nú kemur til kasta ríkisstjórnarinnar. Vilji VG er skýr. Nú reynir á hvort tekið er mark á ályktunum flokksráðs VG. Það er ófrávíkjanleg krafa að orkuverum og orkuauðlindum verði haldið í almannaeigu. Þessa orustu verður að taka núna því mikið er í húfi. Fari sem horfir eru þessar mikilvægu auðlindir landsmanna komnar á útsölu á markaðstorg alþjóðlega auðvaldsins. Í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri segir í 12.gr.... Ráðherra í vinstri stjórn sem ekki nýtir sér lagaákvæði sem þetta til að verja landið fyrir ágangi alþjóðlegra fjármagnseigenda sem í engu munu gæta hagsmuna landsmanna, hlýtur að þurfa að hugsa sinn gang. Sama gildir um ríkisstjórnina alla enda hún öll ábyrg fyrir því hvernig...  

2. Júlí 2010

Baldur Andrésson skrifar: NÝ HÖLL Á HAFNARBAKKA

...Höllin er til menningar segja trúðarnir nú, þegar önnur viðskipti leyfa segja þeir. Tapið á viðskiptunum borgar þjóðin. Hver annar ! Hún verður falleg, nema í augum heimskingja, segja trúðar  og vitna í loddaraorð. Svo fín að allir gáfaðir falla í stafi. Í höllinni má kannski dansa, syngja, spila . Aðeins aumingjar efast, spyrja óþægilegra spurninga, velta vöngum. Ráðamenn og trúðar klappa einir. Þjóðin klórar sér í kollinum. Þjóðin þegir. Nú er bráðum sumarfrí. Sól á lofti. Þá fer þjóðin að grilla. Hallarævintýrið er ófullgerð saga og verður ...

28. Júní 2010

Björn Jónasson skrifar: NÝR GJALDMIÐILL

Vandræði okkar Íslendinga með krónuna okkar ástæru ætla engan enda að taka. Þau eru af tvennum toga. Annars vegar heldur hún illa sjó gagnvart öðrum gjaldmiðlum og hins vegar virðist hún þurfa hærri vexti til að hægt sé að stunda lánastarfsemi. Bent hefur verið á, að í raun séu tveir gjaldmiðlar í gangi í landinu, annars vegar króna og
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta