Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

30. Júní 2007

EINKAVÆÐING RAFORKUGEIRANS BITNAR Á ALMENNINGI

Í fréttaviðtali var Ásgeir Margeirsson, framkvæmdastjóri hjá Geysi Green Energy, sem nú reynir að komast yfir Hitaveitu Suðurnesja, spurður hvort ekki væri hætta á því að einkavæðing raforkugeirans gæti leitt til hærra raforkuverðs. Nei, Margeir hafði ekki áhyggjur af því og sagði hann nokkurs misskilnings hafa gætt í þessari umræðu. Þar sem virkur samkeppnismarkaður væri til staðar, sagði hann, þá væri raforkumarkaðurinn eins og hver annar markaður. Ef einn aðili hækkar verð á raforku þá flytji menn viðskiptin til annars aðila. "Það er ekkert flóknara en það", sagði þessi talsmaður fjárfestanna...Það sem ég hins vegar sakna úr orðræðu Hafnarfjarðarkrata er sá tónn sem kemur frá VG í Hafnarfirði og minnihlutanum í Reykjanesbæ. Eftirfarandi er haft eftir Eysteini Jónssyni, bæjarfulltrúa minnihlutans á eyjunni.is  í dag...

29. Júní 2007

ERU PRENTMIÐLARNIR AÐ SÆKJA Í SIG VEÐRIÐ?


Gengi íslenskra dagblaða hefur verið sveiflukennt. Ég er alinn upp við blaðaútgáfu sem endurspeglaði fjórflokkinn: Mogginn var blað Sjálfstæðisflokksins, Þjóðviljinn Alþýðubandalagsins, Alþýðublaðið var málgagn Alþýðuflokksins og Tíminn Framsóknarflokksins. Síðan voru vikublöð, Mánudagsblaðið fyrr á tíð og Helgarpósturinn og síðan Pressan svo eftirminnilegustu blöðin séu nefnd. Þegar komið var fram á níunda áratug síðustu aldar fór að bera meira á gagnrýni á flokksmálgögnin. Fólk vildi það sem kallað var “málefnaleg” fréttablöð en ekki “pólitísk”. Fljótlega fór gamla kerfið að riðlast, Tíminn varð að NT tímabundið og enn síðar að Degi, Mogginn staðhæfði að hann væri ópólitískur í fréttaskrifum og stæði öllum skoðunum opinn og úr öðrum ritstjórnarskrifstofum heyrðust svipuð hljóð. Ekki má gleyma Vísi og DV sem alla tíð kváðust vera óháð fréttablöð. Landsbyggðablöðin eru heldur ekki ný af nálinni...

28. Júní 2007

S-HÓPURINN, HVAÐ ER NÚ ÞAÐ?

Ég hef verið að velta því fyrir mér hvað skýri þær tilfæringar sem nú eiga sér stað við slitin á Samvinnutryggingum. Nokkrar blaðagreinar hafa birst um efnið en tilefnið hefði ég haldið að kallaði á miklu meiri umfjöllun. Ég vona að Fjármálaeftirlitið hafi kannað málið og viðskiptaráðherrann að sama skapi svo hann verði undir það búinn að skýra þessi mál fyrir hönd eftirlitsaðila þegar Alþingi kemur saman...Án þess að ég geti fullyrt eitt eða neitt um ráðstöfun fjármuna Samvinnutrygginga í þágu flokksgæðinga Framsóknarflokksins þá leyfi ég mér engu að síður að fullyrða að Þórólfur Gíslason hefur eflaust komist nærri því að slá heimsmet í óskammfeilni í framangreindu viðtali. Í viðtalinu kveðst hann ekki átta sig neitt á því hvað átt sé við með S-hópnum! Hann kunni engin skil á honum!! Ætli...

18. Júní 2007

SUMARIÐ OG LANDIÐ

...Á meðal eldra efnis var endurfluttur þáttur Gunnars Stefánssonar frá árinu 1997 með upplestri Andrésar Björnssonar, fyrrverandi útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins. Andrés Björnsson fór fyrir Ríkisútvarpinu í nær tvo áratugi. Andrés var mikill andans og menningarinnar maður og lyfti öllu því sem hann kom nærri á æðra plan. Þessi ágæti þáttur Gunnars Stefánssonar, Sumarið og landið, minnir á mikilvægi þess að hlú að íslenskri menningu og þeim gildum sem hún hvílir á. Ég er sannfærður um að gróskumikil og innihaldsrík menning er sá besti jarðvegur sem hugsast getur fyrir sköpunarkraft og frjóa hugsun með þjóðinni. Menningararfur þjóðarinnar hefur reynst henni gott vegarnesti – og án nokkurs efa er það varanlegra en...

10. Júní 2007

Í MIÐJUNNI: FÓRNARLAMB ÞOTULIÐSINS


...Þetta er heimurinn sem nú hefur skammtað Davíð Oddssyni launahækkun á mánuði sem nemur hærri upphæð en mánaðarlaun láglaunamanns. Einu sinni arkaði Davíð, þá forsætisráðherra, niður í Búnaðarbanka að taka út einhverja aura sem hann átti þar til að mótmæla því – að því er mig minnir – að rekendur bankans væru að hygla sjálfum sér. Davíð Oddsson situr nú sem fastast þegar krónurnar streyma í hans eiginn vasa. Hann veit sem er að hann er fórnarlamb þotuliðsins; milljarðamæringanna sem halda Íslandi í gíslingu og innleiða misrétti á öllum sviðum þjóðfélagsins...Alveg eins og forsætisráðherrann sem mótmælti hefur verkalýðshreyfingin oft arkað niður á Lækjartorg og mótmælt því þegar hálaunamenn hafa hrifsað til sín margfalt hærri laun en almenningur nýtur. Spurning er hvort ...

9. Júní 2007

STÓRKOSTLEG STUND Í BOÐI BSRB Í MUNAÐARNESI!


Í dag var haldin menningarhátíð í Munaðarnesi. Opnuð var sýning á myndlist Guðbjargar Hákonardóttur, Guggu, en verk hennar verða til sýnis í allt sumar í félagsmiðstöð orlofsbyggða BSRB í Munaðarnesi. Þar rekur Ásta Hrönn Stefánsdóttir veitingastað með glæsibrag og er óhætt að mæla með honum. Á menningarhátíðinni las Steinunn Sigurðardóttir, rithöfundur úr verkum sínum við afar góðar undirtektir og þrjár stórkostlegar tónlistarkonur léku fyrir hátíðargesti töfrandi tónlist. Það voru þær Auður Hafsteinsdóttir, sem lék á fiðlu, Bryndís Halla Gylfadóttir á selló og Steinunn Birna Ragnarsdóttir á píanó. Vel á annað hundrað manns sóttu hátíðina sem mæltist afar vel fyrir. Ég hef verið á þessum menningarhátíðum frá upphafi og er ánægjulegt að sjá...

8. Júní 2007

ÖLL VELKOMIN Á MENNINGARHÁTIÐ Í MUNAÐARNESI

Laugardaginn 9. júní kl. 14 verður opnuð sýning á verkum myndlistarkonunnar Guðbjargar Hákonardóttur, Guggu í miðstöð orlofsbyggða BSRB í Munaðarnesi í Borgarfirði. Af þessu tilefni er efnt til menningarviðburðar þar sem ýmsir fremstu listamenn okkar koma fram. Steinunn Sigurðardóttir, rihöfundur les úr verkum sínum og flutt verður tónlist. Auður Hafsteinsdóttir leikur á fiðlu, Bryndís Halla Gylfadóttir leikur á selló og Steinunn Birna Ragnarsdóttir leikur á píanó. Að þessu loknu verður boðið upp á...

6. Júní 2007

FYRST BORGARALEG HANDTAKA, HVAÐ SVO, DÓMSTÓLL GÖTUNNAR?


... Hluti af fyrirbyggjandi starfi er síðan góð löggæsla. Sýnileg löggæsla á götum úti leiðir án efa til þess að ofbeldissinnað fólk situr á sér. En það kostar peninga að fjölga í lögreglunni. Þess vegna er nú leitað að ódýrari lausnum. Svo virðist sem borgaryfirvöld séu í fullri alvöru að leita fyrir sér hjá öryggisfyrirtæki, Dyravörðum ehf., um að taka að sér öryggiseftirlit í borginni. Samkvæmt því sem fram hefur komið í fréttum er rætt um að fyrirtækið fái heimild til að annast „borgaralegar handtökur“! Hvað er „borgaraleg handtaka“? Er það ekki...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

31. Júlí 2010

UNDARLEGAR SPURNINGAR?

Hvernig stendur á því Ögmundur að þú spyrð svona einkennilegra spurninga á síðunni þinni - sem er væntanlega hugsuð almenningi til aflestrar. Hvað er einkennilegt við spurninguna þína - "Hvers vegna stóð Ísland ekki með mannréttindum" og er um hvers vegna Ísland sat hjá við afgreiðsu vatnsréttindanna hjá SÞ. Jú, þú hefur beinan aðgang að bæði mannréttindaráðherra (Jóhönnu held ég) og utanríkisráðherra (Össur) og getur spurt þau beint og krafist svars án málalenginga eða útúrsnúninga! Við alm. lesendur þínir höfum ekki þennan kost. Það væri reyndar fróðlegt að fá að vita ....
Ragnar Eiríksson

30. Júlí 2010

VATNIÐ OG RÍKISSTJÓRNIN

... Það er mjög einkennilegt að vilja ekki styðja tillögu Sameinuðu þjóðanna um að flokka réttinn til vatns sem mannréttindi. Heldur skipar ríkisstjórnin sér í flokk með hægri stjórnunum í Danmörku, Svíþjóð og Englandi sem vilja braska og gera drykkjarvatn að söluvöru. Sú afsökun sem gefin er út í fjölmiðlum er óskiljanleg. VG skuldar kjósendum sínum skýringu.
Pétur

29. Júlí 2010

ÓSVÍFIN HVATNING TIL ÁFENGISNEYSLU

...Þá finnst mér auglýsingar skemmtannaliðsins í Vestmannaeyjum ganga út fyrir allann þjófabálk. Sínu verst er sú auglýsingin þar sem þingmaðurinn öskrar djamm, inn í tjaldið hjá tveim drengjum. Annar virðist svag fyrir drykkjulátunum. Hinn er klæddur í skátabúning og virðist ekki hafa áhuga á drykkjulátunum. Þeir sem bera ábyrgð á auglýsingunni leyfa sér í þessari auglýsingu að gera grín að unglingnum sem ekki vill drekka áfengi og skemmta sér með drykkjulátum. Þetta er ótrúleg ósvífni. Ríkisfjölmiðillinn lætur ekki sitt eftir liggja varðandi ...
Kristbjörn Árnason

29. Júlí 2010

FORSENDUR SJÁLFSTÆÐIS

...Rétt að vekja athygli á þessari framsetningu nú þegar fámennt íslenskt samfélag gæti staðið frammi fyrir því að rakna upp með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Það er ekki bara að þetta sé grundvöllurinn sem gerir okkur fær um að takast á við sjálf okkur og heiminn, þetta er útgangspunktur þess sem vill reisa hér velferðarsamfélag, til dæmis norrænt. Það er freistandi að lesa grein Styrmis og skilja, sem hugmyndafræðilega endurskoðun eða byrjun á uppgjöri, sem ætti að leiða til tímabærs uppgjörs í flokkakerfinu, ekki ólíkt því sem verður að verða í siðferði atvinnulífsins. Eða hvað finnst þér Ögmundur?  
Kveðja,
Ólína

29. Júlí 2010

ESB TIL ÓÞURFTAR

..Mér fannst greinin þín GUÐLAST lýsa EES vitleysunni vel...Við ættum að losa okkur út úr EES samningnum og ALLS EKKI ganga í Evrópumiðstýringarofríkið og ALLS EKKI borga 1 eyri úr ríkissjóði fyrir Icesave-nauðungina. Icesave er skuld Björgólfs Thors og Landsbankans og kemur EU eða bresku og hollensku ríkisstjórnunum eða íslenska ríkissjóðinum ekki við. Og skömm að þeim Alþingismönnum sem hylma yfir og þagna. Og ekki síst öllum þeim sem kusu JÁ með Icesave. Voðalegt var að lesa skrif Péturs í færslu sem þú kallar EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN? Veit maðurinn ekkert um ofríki EU? Veit hann ekkert um ólögmæti Icesave?
ElleE

28. Júlí 2010

HLUTABRÉFIN HÆKKUÐU

Hlutabréf í Magma Energy á hlutabréfamarkaðnum í Toronto hafa hækkað í vikunni. Eftir blaðamannafund ríkisstjórnarinnar og loforðin um að "vinda ofan af einkavæðingunni", hækkuðu bréfin skarpt eða um 2%. Það er skoðun markaðarins á loforðum ...
Hreinn K

27. Júlí 2010

SORGARDAGUR!

...Doði virðist hafa runnið á hjartlæga aðgerðarsinna. Það lítur út fyrir að menn sjái ekki fyrir sér að hægt sé að snúa við þeirri hörmung sem við blasir, afsal hluta æðakerfis úr skjaldarmerki þjóðarinnar. Hverjar eru nú varnirnar. Goð í suðri fallið. Ég hef nú reyndar ekki talið að heppilegt að íslenzkir rekstrarmenn ættu að koma þar að og því í góðu lagi að semja við erlenda rekstrarstjóra, en fulltrúar okkar í samninganefnd verða þó að vera með réttu ráði þegar slíkir samningar eru gerðir. Aukinheldur vil ég benda á að dagurinn í dag 27 júlí mun talinn sorgardagur í hugum þorra fólks hér á landi enda upphaf spyrðingaráætlanna við ESB hafið. Vonandi tekst ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali

27. Júlí 2010

KVEÐJUR TIL JÓNS BJARNASONAR

...Ég bið þig að koma eftirfarandi á framfæri hér á síðunni gagnvart Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegsráðherra: Loks er kominn fram sjávarútvegsráðherra sem þorir að framkvæma. Framganga ráðherrans í kvótamálunum er til mikils sóma og jafnvel þó aðeins sé nartað í litlu tánna enn sem komið er, þá finnur risinn til. Vona að JB fái vinnufrið og hafir orku og vilja til áframhaldsins.
Bestu kveðjur,
Egill

25. Júlí 2010

EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN?

...Afstaða öfgahópsins innan VG er síður en svo til að standa vörð um hagsmuni fátæks fólks á Íslandi. Það fer lítið fyrir efnislegri umræðu hjá þessu fólki og andstaða þess við menn og málefni virðist fremur eiga rætur í eðlislægri persónuröskun og athyglissýki frekar en trú á að það sé að vinna fátækum gott. Ef félagshyggjufólk leyfir sér að gagnrýna þennan hóp er því svarað með orðum eins og "síðsovésk viðhorf". Er það efnisleg umræða? Þessi hópur hefur haldið ríkisstjórninni í gíslingu og haldið aftur af efnahagslegum úrbótum og þar með dregið verulega úr þjónustu við fátækt fólk. Ég nefni afstöðu þess til Icesave málsins, ESB, sem það ...
Pétur

24. Júlí 2010

HUGSJÓNA- OG HAGSMUNAMENN

...Fyrir ekki löngu, nánar tiltekið fyrir tíu dögum, velti ég því fyrir mér hvort félagsmálaráðherrann og Samfylkingin væri að klofna í hugsjónamenn og hagsmunamenn. Í síðari hópnum væru til dæmis menn sem vildu gera Yngva Örn Kristinsson að forstjóra Húsnæðisstofnunar, Runólf Ágústsson að umboðsmanni skuldara og fyrrum stjórnarmann í FME og Seðlabanka að nýjum viðskiptaráðherra. Þetta er nú byrjað að ganga upp. Umboðsmaður skuldara er fundinn. Hann fannst í ...
Jóna Guðrún


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

8. Júlí 2010

Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY

...Nú kemur til kasta ríkisstjórnarinnar. Vilji VG er skýr. Nú reynir á hvort tekið er mark á ályktunum flokksráðs VG. Það er ófrávíkjanleg krafa að orkuverum og orkuauðlindum verði haldið í almannaeigu. Þessa orustu verður að taka núna því mikið er í húfi. Fari sem horfir eru þessar mikilvægu auðlindir landsmanna komnar á útsölu á markaðstorg alþjóðlega auðvaldsins. Í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri segir í 12.gr.... Ráðherra í vinstri stjórn sem ekki nýtir sér lagaákvæði sem þetta til að verja landið fyrir ágangi alþjóðlegra fjármagnseigenda sem í engu munu gæta hagsmuna landsmanna, hlýtur að þurfa að hugsa sinn gang. Sama gildir um ríkisstjórnina alla enda hún öll ábyrg fyrir því hvernig...  

2. Júlí 2010

Baldur Andrésson skrifar: NÝ HÖLL Á HAFNARBAKKA

...Höllin er til menningar segja trúðarnir nú, þegar önnur viðskipti leyfa segja þeir. Tapið á viðskiptunum borgar þjóðin. Hver annar ! Hún verður falleg, nema í augum heimskingja, segja trúðar  og vitna í loddaraorð. Svo fín að allir gáfaðir falla í stafi. Í höllinni má kannski dansa, syngja, spila . Aðeins aumingjar efast, spyrja óþægilegra spurninga, velta vöngum. Ráðamenn og trúðar klappa einir. Þjóðin klórar sér í kollinum. Þjóðin þegir. Nú er bráðum sumarfrí. Sól á lofti. Þá fer þjóðin að grilla. Hallarævintýrið er ófullgerð saga og verður ...

28. Júní 2010

Björn Jónasson skrifar: NÝR GJALDMIÐILL

Vandræði okkar Íslendinga með krónuna okkar ástæru ætla engan enda að taka. Þau eru af tvennum toga. Annars vegar heldur hún illa sjó gagnvart öðrum gjaldmiðlum og hins vegar virðist hún þurfa hærri vexti til að hægt sé að stunda lánastarfsemi. Bent hefur verið á, að í raun séu tveir gjaldmiðlar í gangi í landinu, annars vegar króna og
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta