Annađ
25. Apríl 2009
ÖRLAGARÍKAR KOSNINGAR
24. Apríl 2009
UM MIKILVĆGI MENNINGAR

Friðrik Rafnsson, þýðandi, skrifaði í gær greinina sem ég tel einna mikilvægasta fyrir þessar kosningar. Hún hét Menningin er kjölfestan og birtist í Fréttablaðinu. Boðskapur Friðriks er af svipuðum toga og boðskapur Ólafs Kvaran, fyrrum Listasafnsforstjóra og lisfræðings, fyrir síðustu Alþingiskosningar. Sjálfur hef ég reynt að halda uppi málflutningi af þessu tagi og gleður það jafna hjarta mitt að heyra tekið í þessa strengi. Grein Friðriks í Fréttablaðinu í gær segir það sem segja þarf....
24. Apríl 2009
HEILSUGĆSLAN VERĐI KJÖLFESTAN
...Ég er nefnilega þeirra skoðunar að heilsugæslan eigi að vera kjölfestan í heilbrigðiskerfinu sem aðrir þættir þess hvíli á. Það kallar á aðra forgangsröðun en fylgt hefur verið til þessa. En framar öllu þarf að standa þá vakt sem þjóðin ætlast til af stjórnvöldum: Að verja heilbrigðiskerfið afleiðingum fjármálahrunsins sem framast má vera og tryggja að grunnurinn verði til staðar til að byggja á nýja framfarasókn....
23. Apríl 2009
ÍSLAND ER HÁLENDI HUGANS!

Sumardaginn fyrsta fer ég ævinlega í Skátamessu í Hallgrímskirkju. Þetta er hluti af hefðinni í mínu lífi á þessum degi. Í bland geri ég þetta í minningu föður míns, Jónasar B. Jónssonar, sem ...var mikill áhugamaður um æskulýðsstarf... Ræðu dagsins í Skátamessunni að þessu sinni flutti listakonan María Ellingsen. Henni mæltist sérlega vel. Sótti efniviðinn víða, til ljóða Jónasar Hallgrímssonar og í speki suður í álfur, gott ef ekki var til Afríku þar sem spekingur hafði sagt að við værum líkleg til þess "að varðveita það sem við elskuðum; elskuðum það sem við þekktum og þekktum það sem okkur væri kennt." Boðskapurinn var augljós...
22. Apríl 2009
ŢAKKLÁTUR LĆKNUM
.
21. Apríl 2009
VELVILJAĐUR HALLDÓR
Annars óska ég Halldóri Blöndal til hamingju með 80 ára afmæli Sjálfstæðisflokksins hinn 25. maí nk. og vona að sjálfur eldist hann betur.
19. Apríl 2009
KJARAJÖFNUN ER KJARABÓT
18. Apríl 2009
FRÁBĆRT FRAMLAG TANNLĆKNA

Um það bil 25 tannlæknar og tanntæknar ásamt tannlæknanemum hafa gefið vinnu sína tvær helgar í röð í þágu barna og unglinga sem þurfa á tannlækningum að halda...Ingibjörg S. Benediktsdóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands, sagði mér að hún væri því sammála að líta eigi á tannlækningar eins og hverjar aðrar lækningar. Hún sagði að 60 börn hefðu komist að í þetta skiptið ... Mér þótti athyglisvert í máli Ingibjargar að hún benti á að tannskemmdirnar hefðu ekkert með októberhrunið að gera - þær kæmu út úr "góðærinu". Þá hefðu meira að segja verið lækkaðir skattar á gos og sælgæti eins og til að kæta Karíus og Baktus!...
16. Apríl 2009
NÚ ŢARF AĐ BRETTA UPP ERMAR
Tal hans um skatta og niðurskurð eru af sama meiði. ...
15. Apríl 2009
ÁRNI, MATTHÍAS OG SIGURĐUR GÍSLI

...Yfirsýn þeirra félaga, sögulegar skírskotanir, upprifjun þeirra á tilteknum þáttum úr þjóðlífinu, menningin og meiningarmunurinn. Það var upplýsandi að hlusta á blaðamennina og athyglisvert að merkja hve kurteisir þeir voru, en ákafir...Hvað varð til þess að við hættum að hlusta á svona menn og háakta þá? Var það kannski þegar við slepptum kúltúrlausu peningaliði inn í sparibauka landsmanna, án barnfóstru? ... Þetta var ekki strengurinn sem leikið var á í Krossgötum og þetta var ekki þráðurinn sem spunninn var í frábæru viðtali í Fréttablaðinu á dögunum þar sem rætt var við Sigurð Gísla Pálmason um ekki ólík mál ...
12. Apríl 2009
ARFLEIFĐ ANDRÉSAR
...Við skulum aldrei vanmeta menningarlegt hlutverk Ríkisútvarpsins. Þegar þjóð lendir í þrengingum eins og við höfum nú gert, þá er gott að eiga traustan menningararf að styðjast við. Menningin er aldrei mikilvægari en á slíkum stundum. Menning og bókvit veitir gleði og ánægju, eflir sjálfstraust og þor og verður í askana látið!Við eigum útvarpssnillingum á borð við Ævar Kjartansson mikið að þakka, mönnum sem halda loganum stöðugt vakandi. Forvera hans ýmsa, lífs og liðna, hefur mátt heyra í dagskrá Gufunnar yfir páskana. Það hefur yljað um hjartarætur. Megi stjórnendur Ríkisútvarpsins jafnan vera meðvitaðir um menningarlega ábyrgð sína. Á útvarpsstjórastóli hafa setið margir mætir menn, sem risið hafa undir sinni ábyrgð. Sumir þeirra hafa verið í senn verkstjórar og átt sjálfir hlutdeild í menningarlegu framlagi Ríkisútvarpsins. Þar kemur nafn Andrésar Björnssonar upp í hugann. Hann var ...
11. Apríl 2009
LYFJARISAR KĆRA OKKUR TIL BRUSSEL

...Annars er hugtakið fyrirtæki harla hógvært hugtak þegar haft er í huga að um er að ræða lyfjaauðhringi heimsins! Kannski ekki von að þau hafi hugann við þrengingar Íslendinga eða sýni því áhuga að taka þátt í þjóðarátaki til endurreisnar efnahagslífsins. Íslenskir umboðsaðilar gætu alla vega reynt að sýna lit í stað þess að hlaupa með kærumál á hendur þjóðinni suður til Brussel. Þar er helst að finna skjól fyrir bisnissfyrirtækin þegar lýðræðið sækir að þeim....
9. Apríl 2009
LYFJARISAR Í MÁL GEGN ŢJÓĐINNI
.
8. Apríl 2009
VÁLEGIR ATBURĐIR OG HLUTVERK HEILBRIGĐISŢJÓNUSTUNNAR: ALŢJÓĐAHEILBRIGĐISDAGURINN 7. APRÍL
Birtist í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 07.04.09.
Afar öflugur jarðskjálfti, 6,1 stig á Richter, skók Suðurland í maí á síðasta ári. Töluverðar skemmdir urðu á þeim svæðum sem næst lágu skjálftaupptökunum. Lítilsháttar skemmdir urðu á Sjúkrahússins á Selfossi og var það rýmt að hluta. Eftir skoðun kom í ljós að engar skemmdur voru á burðarþoli byggingarinnar og var því hægt að halda uppi eðlilegri starfsemi á sjúkrahúsinu...
8. Apríl 2009
SAMRĆĐA OG SAMSTARF TIL ÁRANGURS

...Með þessa hugsun að leiðarljósi hafa fundirnir verið, sem efnt hefur verið til um allt land að undanförnu með heilbrigðisstarfsfólki, einstökum starfsstéttum, trúnaðarmönnum, stjórnenduum heilbrigðisstofnana, sveitarstjórnarmönnum og nú síðast með þverfaglegri umræðu allra heilbrigðisstétta um hvað betur megi fara í heilbrigðiskerfinu.Í hógværð heimasíðu Heilbrigðisráðuneytisins segir að 150 manns hafi sótt fundinn en ég leyfi mér að halda því fram að fjöldinn hafi verið ívið meiri.Vinnudagurinn heppnaðist með ágætum og heyrðist mér ...
7. Apríl 2009
HÖFĐINGLEGT BOĐ Á HRAFNISTU

...Guðmundur Hallvarðsson, stjórnarfomaður, og gamall samstarfsfélagi minn - og í mörgum efnum baráttubróðir - á Alþingi sagði, þegar hann bauð til hádegisverðarborðs að ég fengi kótellettur í raspi og brúnaðar kartöflur með öllu tilheyrandi. Þetta væri „þjóðréttur Hrafnistu" og aðeins boðið höfðingjum. Rétturinn væri að sjálfsögfðu reglulega á borðum heimilsfastra, sem var hans máti að segja mér frá því að á Hrafnistu væri litið á alla sem þar byggju sem höfðingja! ...Á laugardag sótti ég síðan þriggja tíma fund með samtökunum Heilaheill. Rætt var um málefni sem snerta félagsmenn og stofnanir sem þeim þjóna, þar á meðal Grensásdeild Landspítalans. Ég fékk margar ...
6. Apríl 2009
SILFUR EGILS FÉKK GULL Í DAG

...Í dag voru síðan mættir í Silfrið tveir valinkunnir Bandaríkjamenn sem vara okkur við Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og minna á að hann er fyrst og fremst varðhundur auðvaldsins. Hárrétt. Þetta eru annars vegar Michael Hudson, fræðimaður og ráðgjafi Bandaríkjastjórnar í ýmsum málefnum en hann vinnur nú að endurskoðun á bandarísku skattalöggjöfinni. Hinn er John Perkins, höfundur Confessions of an Economic Hit Man og The Secret History of the American Empire. John Perkins þekkir af eigin raun ofbeldi auðvaldsins því hann hefur sjálfur reynslu af því að vinna fyrir alþjóðlegt fjármálafyrirtæki sem sannfærði fátækar þróunarþjóðir til að skuldsetja sig svo hægt væri síðar að hafa af þeim eignir þeirra...Aldrei hefur verið eins mikilvægt að halda þjóðareign á auðlindum okkar. Það var og kjarninn í boðskap þessara tveggja gesta okkar...
5. Apríl 2009
HEILAHEILL TIL HEILLA

Í gær sótti ég þriggja tíma fund með samtökunum Heilaheill. Rætt var um málefni sem snerta félagsmenn og stofnanir sem þeim þjóna, þar á meðal Grensásdeild Landspítalans. Ég fékk margar mjög gagnlegar ábendingar á þessum fundi og vona að ég hafi einnig getað miðlað einhverju til fundarmanna sem ekki voru einvörðungu úr Hjartaheill heldur líka öðrum samtökum sem eru áshuga- og hagsmunatengd málefninu. Þórir Steingrímsson, félagi minn úr verkalýðssstarfi til margra ára veitir samtökunum forystu. Hér má ...
4. Apríl 2009
HÉĐINN OG SAMVINNAN
...Mest hafði ég þó gaman af veganestinu, eða hugarfóstrinu eins og samstarfsmaður minn í Heilbrigðisráðuneyti, Héðinn Unnsteinsson, kallaði það. Hann fékk mér í hendur nokkar línur á blaði áður en ég gekk að hátalara til að ávarpa samkomuna. Þar stakk Héðinn upp á því að skólanemar hugleiddu ritgerðarefni með því sem hann taldi verða meginþema komandi tíma. Þar yrði áherslan á að við hjálpuðum hvert öðru og yrði forskeytið SAM án efa fyrirferðamikið í orðaforða okkar næstu árin: Sam-vinna, sam-félag, sam-ábyrgð, sam-an, sam-staða, sam-ráð og nú væri að hefjast sam-keppni! Jafnvel samkeppni yrði með áherslunni á að gera hlutina saman. Skyldi þó ekki ...
Frá lesendum
31. Júlí 2010
UNDARLEGAR SPURNINGAR?
Ragnar Eiríksson
30. Júlí 2010
VATNIĐ OG RÍKISSTJÓRNIN
Pétur
29. Júlí 2010
ÓSVÍFIN HVATNING TIL ÁFENGISNEYSLU
Kristbjörn Árnason
29. Júlí 2010
FORSENDUR SJÁLFSTĆĐIS
Kveðja,
Ólína
29. Júlí 2010
ESB TIL ÓŢURFTAR
..Mér fannst greinin þín GUÐLAST lýsa EES vitleysunni vel...Við ættum að losa okkur út úr EES samningnum og ALLS EKKI ganga í Evrópumiðstýringarofríkið og ALLS EKKI borga 1 eyri úr ríkissjóði fyrir Icesave-nauðungina. Icesave er skuld Björgólfs Thors og Landsbankans og kemur EU eða bresku og hollensku ríkisstjórnunum eða íslenska ríkissjóðinum ekki við. Og skömm að þeim Alþingismönnum sem hylma yfir og þagna. Og ekki síst öllum þeim sem kusu JÁ með Icesave. Voðalegt var að lesa skrif Péturs í færslu sem þú kallar EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN? Veit maðurinn ekkert um ofríki EU? Veit hann ekkert um ólögmæti Icesave?
ElleE
28. Júlí 2010
HLUTABRÉFIN HĆKKUĐU
Hreinn K
27. Júlí 2010
SORGARDAGUR!
Óskar K Guðmundsson, fisksali
27. Júlí 2010
KVEĐJUR TIL JÓNS BJARNASONAR
Bestu kveðjur,
Egill
25. Júlí 2010
EĐLISLĆG PERSÓNURÖSKUN?
Pétur
24. Júlí 2010
HUGSJÓNA- OG HAGSMUNAMENN
Jóna Guðrún
Póstlisti
Frjálsir pennar
8. Júlí 2010
Ţorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY
2. Júlí 2010
Baldur Andrésson skrifar: NÝ HÖLL Á HAFNARBAKKA
28. Júní 2010
Björn Jónasson skrifar: NÝR GJALDMIĐILL
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...












