Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

30. Júlí 2010

HVERS VEGNA STÓĐ ÍSLAND EKKI MEĐ MANNRÉTTINDUM?


...Eitt af því sem hefur valdið deilum á alþjóðavettvangi er hvort yfirlýsing af þessu tagi - sem segir aðgang að vatni vera mannréttindi - gæti strítt gegn markaðshagsmunum; stangast á við kröfur sem ríki höll undir fjármagnið vilja ætíð halda á lofti um rétt fjárfesta til gjaldtöku fyrir vatn. Það er eitt að greitt sé fyrir afnot af vatnsveitum hóflegt gjald byggt á hugmyndum um almannaþjónustu, annað er heimila fyrirtækjum að gera vatn að gróðalind... Þetta þekkjum við frá snauðum þriðjaheimsríkjum þar sem fyrirtæki hafa fengið  einkarétt á vatnsveitum og haldið því fram að það stangaðist á við lög þegar almenningur nýtti sér  rigningarvatnið neyslu! Þetta er ...

28. Júlí 2010

ŢAĐ VAR GERT BERGSTEINN

Birtist í Fréttablaðinu 27.07.10.
Fréttabladid haus...Nokkur umræða spannst þessa daga opinberlega og sat ég meðal annars fyrir svörum ásamt Ross Beaty í Kastljósi sjónvarpsins þar sem ég ræddi um skúffufyrirtæki hans. Fyrir dyrum voru sveitarstjórnarkosningar. Ýmsum þótti slæmt að ræða pólitísk hitamál landsmálanna opinberlega og forsætisráðherra kvað upp úr um að ágreiningsefni ætti ekki að bera á torg...Bergsteinn er ekki einn um að saka okkur um ...að sofa á verðinum og stundum er spurt hvers vegna menn hafi ekki sett fram lagafrumvörp og stöðvað þessi mál. Í fyrsta lagi þá hefur það verið reynt. Í öðru lagi snýst þetta um meirihlutavilja í ríkisstjórn og á Alþingi. Ef hann er ekki fyrir hendi þá hreyfist ekkert. En þjóðfélagið getur hreyft þann vilja. Og þjóðfélagið er að vakna...

24. Júlí 2010

GUĐLAST?

Birtist í Fréttablaðinu 23.07.10.
Frettablaðið...Hins vegar sækja á mig vaxandi efasemdir um EES. Bæði tel ég samninginn hafa að ýmsu leyti verið  til mikillar óþurftar og að margt í hruninu megi rekja til markaðsáráttu ESB. Verra er þó ótrúlegt andvaraleysi sumra alþingismanna þegar EES er annars vegar. Ef sagt er að tiltekin fyrirhuguð lagasetning byggi á tilskipun frá Brussel, þagna menn. Málið skoðast afgreitt. Í þessari afstöðu er fólgið alvarlegasta valdaafsalið. Sjálfur hef ég margoft fengið að reyna, þegar ég hef sett fram efasemdir um EES samninginn,  að ...

18. Júlí 2010

ŢJÓĐIN AĐ VAKNA?


Í mínum huga leikur enginn vafi á því að almeningur á Íslandi  - yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar - er andvígur því að selja auðlindirnar í hendur fjármálamanna og veita þeim yfirráð yfir þeim hvort sem í formi beins eignarhalds eða ráðstöfunarréttar til mjög langs tíma. Nákvæmlega það mun þó gerast með orkuauðlindir Reykjanesskagans ef ríkisstjórnin grípur ekki í taumana strax. Um aðgerðarleysi í þessu máli mun aldrei verða sátt. Til marks um að þjóðin sé að vakna til vitundar um hve brýnt það er að stöðva einkavæðingu orkuiðnaðarins  er undirskriftasöfnun sem hrundið hefur verið af stað á netinu: http://orkuaudlindir.is/ ....

16. Júlí 2010

ESB OG LÝĐRĆĐIĐ

Birtist í Fréttablaðinu 15.07.10.
Fréttabladid haus...Inn í þennan málatilbúnað fléttar Hannes svo hrun nýfrjálshyggjunnar og vísar þar sérstaklega í Davíð Oddsson, sem hann kallar fallinn „Móses Sjálfstæðisflokksins". Grein sína botnar skáldið með því að horfa á eftir Lilju Mósesdóttur og þessum meinta Móses þeirra Sjálfstæðismanna ganga „hönd í hönd inn í hamingjunnar lönd" ...Aldrei hefur verið brýnna en einmitt nú að efna til markvissrar umræðu um handfasta hluti í stað þess að blanda í einn kokteil alls óskyldum málum í óljósu líkingatali einsog  sá mæti maður Hannes Pétursson óneitanlega gerir í grein sinni. Það má vel vera að Davíð Oddsson og Lilja Mósesdóttir deili ýmsum skoðunum, einsog þeirri að hafa efasemdir um aðild Íslands að Evrópusambandinu. En að gera þau að ...

13. Júlí 2010

VILJI LÖGGJAFANS SKÝR


Unnur Kristjánsdóttir, formaður nefndar um erlenda fjárfestingu, segir mig hafa farið með rangt mál í sjónvarpsfréttum RÚV í kvöld og segir að ég hafi fullyrt að íslensk lög heimili ekki að erlendir aðilar eigi í orkufyrirtækjum hér á landi...Í greinargerð með lögum um erlendar fjárfestingar segir m.a.: ...Ástæðan fyrir því að íslenskt atvinnufyrirtæki undir erlendum yfirráðum er í frumvarpinu skilgreint sem erlendur aðili er sú að þannig á að reyna að girða fyrir að erlendur aðili geti farið bakdyramegin inn á svið þar sem fjárfestingu erlendra aðila eru skorður settar. Ella gæti erlendur aðili fyrst stofnað eða fjárfest í atvinnufyrirtæki hér á landi sem þar með teldist íslenskur aðili og það fyrirtæki síðan fjárfest á umræddu sviði.....

26. Júní 2010

INNLEGG Í UMRĆĐUNA Á FLOKKSRÁĐSFUNDI VG


...Á vissan hátt má líta á stöðu okkar sem þjóðar í stríði. AGS er hér á landi vegna utanaðkomandi þvingana. Það vita allir og eiga að viðurkenna. Við viljum  öll losna við AGS sem fyrst. Það hefur marg oft verið sagt. En þar til það gerist verður að hafa virkt og vakandi eftirlit með samskiptum við AGS. Það gerist aðeins með opinni umræðu, meðvitaðri og gagnsærri . Það má aldrei henda aftur einsog gerðist nú í vor að skrifað var upp á framlengingu og nýjar skuldbindingar við AGS án þess að þingið fengi að sjá þær, án þess að ríkisstjórnin fengi að sjá þær! Og hún lét sér það lynda. Svona varð hrunið. Leynd og þöggun átti þar sinn stóra þátt. Við þurfum að horfast í augu við þetta...

17. Júní 2010

ŢJÓĐHÁTÍĐIN, HEFĐIN, ÖRYGGIĐ OG LÝĐRĆĐIĐ


Ég óska lesendum síðunnar gleðilegs þjóðhátíðardags. Daginn notaði ég til jarðræktarstarfa austur í Grímsnesi en að því loknu var brunað til Reykjavíkur og þáðar kaffiveitingar hjá Helgu Stephensen frænku minni  á Laufásveginum í hjarta borgarinnar. Þar hef ég þegið þjóðhátíðarveitingar  svo lengi sem ég man eftir mér. Það er eins með hefðirnar og stjórnmálin. Þær eru góðar og slæmar. Góðar hefðir eru eftirsóknarverðar. Þjóðhátíðardagurinn er dagur góðra íslenskra hefða. Það besta í íslenskri þjóðarhefð snýr að opnu og lýðræðislegu þjóðfélagi. Á Laufásveginum í dag varð mörgum tíðrætt um aukinn lögregluvörð á Austurvelli á þjóðhátíðardaginn og lokun Dómkirkjunnar fyrir almenningi. Allt af öryggisástæðum....

15. Júní 2010

VATNASLÓĐIR


Undanfarna daga hefur tölvupóstum rignt yfir alþingismenn með áskorunum um að nema vatnalögin frá 2006 endanlega úr gildi. Það eykur mér bjartsýni að sjá og heyra hve margir eru staðráðnir að láta ekki stela af okkur vatninu. Erlendar þjóðir sem einkavætt hafa vatnið hafa orðið fyrir miklu tjóni.  Þetta hefur verið rannsakað og niðurstöðurnar óyggjandi. Í þessu sambandi vil ég sérstaklega nefna erindi sem  David Hall, fræðimaður við Greenwich háskólann í Lundúnum, flutti á vegum BSRB fyrir fáeinum árum. David Hall og rannsóknarlið hans hefur sérhæft sig í afleiðingum...

15. Júní 2010

VATN FYRIR ALLA


... Þá er spurningin, ætla menn að nema lögin alveg úr gildi eða slá gildistökuákvæðinu enn á frest. Annað hvort verður að gerast og mun gerast...Þessi herferð var undir herhvötinni: VATN FYRIR ALLA. Þetta verk annaðist Páll H. Hannesson sem starfsmaður BSRB en þau samtök stóðu í fararbroddi í þessari baráttu. Ég er sannfærður um að ef ekki hefði komið til barátta BSRB á þessum tíma hefðu lögin frá 2006 farið í gegn fyrirvaralaust. Að flestum, ef ekki öllum ólöstuðum, gekk Páll H. Hannesson...

14. Júní 2010

EINU SINNI VAR KANADAMAĐUR OG SVO KOMU KÍNVERJAR...


...Hann er svo ágætur hann Ross. Það finnst alla vega Kínverjum. Í Kína er hann á kafi í samningum um orku, sjá t.d. hér ...Leiðir Ross og Kínverjanna liggja víðar saman en þar austurfrá. Báðir aðilar hafa nú lýst áhuga á uppsveitum Árnessýslu. Ross hefur gert samkomulag við Hrunamannahrepp um  rannsóknir á jarðvarma „frá Flúðum upp í Kerlingafjöll". Litlu sunnar og austar streymir Þjórsáin. Kínverjarnir sem komu hingað í síðustu viku í nokkrum flugvélaförmum nefndu með nafni virkjanirnar í neðri Þjórsá sem þeir vilja fjármagna. Þessar virkjanir eiga vissulega tilveru í óskhyggju margra, en ekkert ákveðið. Það skipti hina kínversku gesti engu máli. Erlent auðvald veit að aðvelt er að eiga við íslensk stjórnvöld. Óhugnanlega auðvelt. Allt falt...

8. Júní 2010

EF SKIPT VĆRI UM FORRIT...


 ...En eitt er ágreiningur um  stefnumarkmið, annað ágreiningur um tæknileg úrlausnarefni. Lenskan hefur verið sú að stjórn og stjórnarandstaða á Alþingi geri engan greinarmun á þessu tvennu. Stjórnarþingmenn hafa verið meðmæltir öllu sem komið hefur frá framkvæmdavaldinu, stjórnarandstaðan á móti. Þetta þarf að breytast - og - er að breytast. Smám saman. Það má tvímælalaust merkja í nefndarstarfi á Alþingi. Það hefði verið til góðs að þessi breyting hefði átt sér stað fyrr. Ef taka hefði mátt eina hugsun úr heilaforriti hvers þingmanns, nefnilega vitneskjuna um hvaða stjórnmálaflokki hann tilheyrði, þá hefði margt...

3. Júní 2010

HVERS VEGNA HĆKKAR HEITA VATNIĐ?


Í lesendabréfi frá Ólínu hér á síðunni er beint til mín áskorðun sem ég beini hér með til fjölmiðla um að grafast fyrir um hvers vegna heita vatnið frá Orkuveitu Reykjavíkur er hækkað um 37%. Fréttablaðið segir okkur að það sé gert til að tryggja 5 prósenta arðsemi. Þessi skýring nægir ekki Ólínu. Hún nægir mér ekki heldur. Ég geri spurningu Ólínu hér með að minni og heiti lesendum að birta svörin hér á síðunni þegar þau berast. Ég trúi ekki öðru en fjölmiðlar ...

24. Maí 2010

RANNSÓKN STRAX - LÖGGJÖF STRAX!


Mánudaginn 15. febrúar var haldinn fundur í sveitarsjórn Skaftárhrepps. Þrettán liðir voru  á dagskrá. Tíundi dagskrárliðurinn lét ekki mikið yfir sér, beiðni frá Suðurorku ehf. um rannsóknarleyfi vegna hugsanlegra virkjana. Eftirfarandi er bókað: „Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við að Suðurorku ehf. verði veitt rannsóknarleyfi á vatnasviðum Skaftár og Tungufljóts í Skaftártungu samkvæmt fyrirliggjandi umsókn félagsins til Orkustofnunar". Suðurorka ehf, er skráð að Túngötu 6 í Reykjavík, þar sem Baugsfyrirtækin voru til húsa og fleiri,  en smelli maður á nafnið kemur í ljós að heimilsfang Suðurorku er Brekkustígur 36 í Njarðvík. Sama heimilisfang og HS Orka hefur.  Ágætur vinur minn sagði að ástæðulaust væri að reyna að gera þetta tortryggilegt. Það væri ekki  ...

19. Maí 2010

100 ÁRA BARÁTTUKEMPA HEIĐRUĐ


...það er ekki einvörðungu arfleifð gamallar vináttu sem heillar mig við þessa gömlu verkalýðskempu heldur einnig baráttukrafturinn, mannvitið, hlýjan og kímnin sem geisla frá honum í ríkari mæli en flestum mönnum öðrum. Það var mér heiður að fá að sækja heim hinn síunga öldung í tilefni stórafmælis hans...

18. Maí 2010

MISSKILDIR KRAFTAVERKAMENN


...En þegar menn eru búnir að skuldsetja sveitarfélögin upp í rjáfur einsog gerst hefur  í Reykjanesbæ eða eru glámskyggnir á hætturnar í samstarfi við „góðu  mennina" sem koma með allt nammið  frá útlöndum og segjast vilja okkur svo vel, einsog mér heyrist á oddvita Hrunamannahrepps, þá þarf að grípa í taumana. Ég tek heilshugar undir með höfundi leiðara Morgunblaðsins sem bregst við einmitt þessum aðstæðum í dag og segir  réttilega...

1. Maí 2010

BARÁTTUKVEĐJUR 1. MAÍ: FRJÁLS Í RÉTTLÁTU SAMFÉLAGI!


Heimur peningafrjálshyggjunnar riðar til falls. En ekki meira en svo að peningaöflin læsa sig nú saman af meiri krafti en oftast áður til að beina hruninu inn í gamalkunnan farveg: Að láta almenning blæða fyrir glæfra þeirra og mistök. Það ríður á að verkalýðshreyfingin og félagsleg öfl i stjórnmálum standi vaktina og snúi taflinu upp í þá sókn sem ein er ásættanleg: Að skapa réttlátt samfélag frjálsra manna, karla og kvenna, ungra og aldinna. Í BSRB tíðindum sem voru að koma út vildi ég einmitt láta þessa hugsun vera...

30. Apríl 2010

ÓSTAĐLAĐA ÍSLAND


Austarlega i Grímsnesinu er þessi notalega verslun sem ég hef ófáum sinnum lagt leið mína í. Gott viðmót alltaf þar. Nú er hún að loka. Ég þakka starfsfólkinu fyrir mig og lýsi eftirsjá. Ég trúi ekki öðru en þarna sé grundvöllur fyrir verslunarrekstur því orlofsbyggðin á þessum slóðum þenst út. Reyndar eru fleiri ágætar verslanir á þessu svæði, í Reykholti og víðar. En verslunin Borg er annað og meira en búð. Hún er fulltrúi hins óstaðlaða Íslands. Staðlaða Ísland er búið til með reglustiku á miðstýrðu teikniborði stóru olíufélaganna...

25. Apríl 2010

HVERNIG VERĐA GÓĐIR SIĐIR BEST TRYGGĐIR?


...Sjálfur held ég að opin umræða sé vænlegri til árangurs en regluverk. Opin lýðræðisleg umræða er út af fyrir sig líkleg til að móta  góðan tíðaranda gagnstætt því vinnulagi sem mótast í skugganum jafnvel þótt menn hafi þar einhverjar reglur að styðjast við. Tveir fyrrverandi sendiherrar, þeir Svavar Gestsson og Þorsteinn Pálsson, komu fram í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag og voru þar sammála um  að setja þurfi embætti forseta Íslands ný lög og siðareglur. Kannski er þetta góð hugmynd. Nema hvað rótin að henni þykir mér ekki vísa inn í framtíðina. Báðir hafa þeir ...

25. Apríl 2010

LEIĐRÉTTINGIN OG LYGIN

Birtist í Fréttablaðinu 24.04.10
FB logo...Hugaræsingin sem heltekið hefur margt fjölmiðlafólk og fleiri í þessu Kötlumáli er af nákvæmlega sama toga og átti sér stað í aðdraganda hrunsins, nema nú með öfugum formerkjum. Það sem forsetinn gerir og segir þykir nú ekki að öllu leyti gott, heldur að öllu leyti slæmt. Þótt menn viti innst inni hvað rétt er, þá virðist mér alltof margir - nú sem fyrr-   gera það sem auðveldast er í umræðunni: Láta berast með straumnum. Lærdómur hrunsins er að...

24. Apríl 2010

RANNSÓKNARSKÝRLSA ALŢINGIS: UPPHAF EN EKKI ENDIR


Gagnrýni í garð Alþingis fyrir sinnuleysi í uppgjörinu eftir hrunið er ekki alls kostar sanngjörn. Rannsóknarskýrslan sjálf er til marks um vilja Alþingis til að kryfja málin til mergjar. Enda þótt ýmsar brotlamir séu á skýrslunni  - og nauðsynlegt er að lagfæra þær - þá er hún mikilvæg af tveimur ástæðum fyrst og fremst að mínu mati. Í fyrsta lagi kortleggur skýrslan umfang misferlis í fjármálaheiminum og tengslum hans við stjórnmálin. Í örðu lagi er skýrslan umræðugrundvöllur fyrir breytt vinnulag í stjórnsýslunni og í stjórnmálum. Hún er þannig upphaf en ekki endir. Rannsóknarvinnunni þarf að halda áfram. Það skortir til dæmis verulega á að ...

22. Apríl 2010

GLEĐILEGT SUMAR!


Bragi Björnsson skátahöfðingi , sagði í ræðu við hefðbundna skátamessu í Hallgrímskirkju í dag, sumardaginn fyrsta, að þegar hann héldi á vit náttúrunnar í útilegum sumarsins hyrfu allar áhyggjur sem dögg fyrir sólu enda væri bjartsýninni tjaldað. Vel mælt og uppörvandi hugsun. Gömul þjóðtrú leggst á sveif með bjartsýnisfólki í dag því samkvæmt henni veit á gott þegar vetur og sumar frjósa saman. Það gerðist að þessu sinni. Þannig að margfalt tilefni er til að brosa breitt í dag og óska hvert öðru gleðilegs sumars. Jafnframt hljótum við öll að hugsa til þeirra sem...

16. Apríl 2010

HEIMILIN EIGA AĐ VERA FRIĐHELG


Krafa fólks sem er að missa heimil sín er að þau verði friðhelg, að ekki sé hægt að ganga að þeim. Krafan er: Hlífum heimilunum. Þetta er krafa um mannréttindi. Og það eru mannréttindin sem eiga alltaf að verða okkur efst í huga. Líka mannréttindi þeirra sem verða nú fyrir gagnrýni í þjóðfélaginu vegna tengsla við orsakir hrunsins, beinna eða óbeinna. Mótmæli í þjóðfélaginu á ekki að kæfa. Mótmæli eru réttmæt. En spurnnigin er hvar og hvernig þessi mótmæli eru í frammi höfð. Nú berast fréttir af mótmælum við heimili fólks. Þessu vil ég andæfa.
Hafa ber í huga  gamla vísdómsreglu...

14. Apríl 2010

HAFA SKAL ŢAĐ SEM SANNARA REYNIST


...Í dag var ítarlegt viðtal við forseta Íslands í fjölmiðlum. Þar hélt hann því fram að í veigamiklum atriðum hefði verið farið ranglega með staðreyndir um forsetaembættið í Rannsóknarskýrslunni. Þetta er alvarlegt ef rétt er. En þó ekki alvarlegra en svo að hægt er að bæta um með því að koma við leiðréttingum. Það verður Alþingi að sjá til að verði gert og þá einnig varðandi aðra þætti sem misfarið er með í skýrslunni. þetta þarf að gerast með markvissum hætti. Góða skýrslu má ekki eyðileggja með aðgerðaleysi í þessu efni. Heildarmyndin sem dregin er upp í skýrslunni hygg ég að sé rétt. Á hana getur hins vegar fallið skuggi ef rangfærslur eru ekki leiðréttar.  Hafa skal það sem sannara reynist var sagt forðum og á það...

11. Apríl 2010

Í LEIKRITI EFTIR IBSEN?


Á morgun verður birt skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis. Lögreglan segist verða í viðbragðsstöðu, biskup þjóðkirkjunnar hefur sent prestum og djáknum bréf þar sem hann hvetur til þess að söfnuðir kaupi eintak af skýrslunni og láti liggja frammi í safnaðarheimilum. Þar geti fólk síðan beðist fyrir. Fjölmiðlarnir segjast hafa verið að undirbúa sig vikum saman, fréttamenn eru hvattir til að verða vel sofnir, leikarar munu stíga á svið í maraþon lestri þar sem hvert orð skýrslunnar verður lesið á fimm sólarhringum.  Á Alþingi streyma út upplýsingar um  tímasetningar, hvenær  - uppá sekúndubrot  - skýrslan verði birt, hvenær vefurinn opnaður og hvenær plöggin verði komin á borð þingmanna.  Þeir segjast sumir hverjir hafa af því þungar áhyggjur að ...

4. Apríl 2010

VERĐMĆTUR MAĐUR


...Á slíkum stundum er oft boðið upp á gamalt eðalefni. Af því er mikið til í kistum Ríkisútvarpsins. Sannkallaðir menningarfjársjóðir. En það er ekki nóg að búa yfir vönduðu efni frá fyrri tíð. Framleiðsla á gæðaefni þarf að vera stöðug. Ríkisútvarpið þarf stöðugt að veita menningu samtímans út til þjóðarinnar. Svo er það hitt, að ef dagskrárgerðin gengi út á það eitt að finna gott en gamalt þá er hætt við stöðnun; að áhöfnin á fleyinu hætti að geta fundið ný mið. Í menningarútvarpi sem rís undir nafni rennur fortíð og samtíð saman í eitt. En það þarf þekkingu og  góða dómgreind  til að flétta saman gamalt og nýtt svo vel sé; spinna úr því nýjan þráð. Það kann Gunnar Stefánsson...

4. Apríl 2010

GLEĐILEGA PÁSKA


...Í ofanálag bauð náttúran upp á eldgos  á Fimmvörðuhálsi - vonandi fólki og dýrum að skaðlausu. Áhugi landsmanna á gosinu er ótvíræður. Hann ber ekki aðeins vott áhuga á náttúruundrum heldur líka á landinu okkar.  Þúsundir hafa farið að sjá gosið - nokkuð sem ekki er með öllu hættulaust í nálægð. Á sveimi eru hjálparsveitirnar. Þær gefa okkur öryggistilfinningu og hlýjar hugrenningar.
Ég óska öllum lesendum síðunnar gleðilegra páska.

31. Mars 2010

TUTTUGU ŢÚSUND ÁRSVERK VINNAST

Birtist í Fréttablaðinu 30.03.10.
Fréttabladid hausAtvinnuleysi er böl. Ég tek það því alvarlega þegar mér er borið á brýn að hafa stuðlað að auknu atvinnuleysi. Einmitt það gerir Magnús Orri Schram alþingismaður í skrifum sínum í Fréttablaðinu nýlega. Við sem stuðluðum að því að Icesave-samningarnir fóru inn í nýtt ferli, erum sögð hafa með frestun málalykta, valdið gríðarlegum kostnaði sem smám saman sé að koma í ljós: "Lægri laun, hærri vextir, miklu meiri niðurskurður, lægra gengi og a.m.k. 3.300 atvinnulausir er bara ein birtingarmynd þessa kostnaðar." Þetta fullyrðir Magnús Orri...

27. Mars 2010

EKKI EINN Á BÁTI

...Spyrja þarf hvort ekki sé  heppilegra að ná fram yfirlýstum  markmiðum með Endurhæfingarsjóði á hagkvæmari og réttlátari hátt með því að styrkja það sem fyrir er,með því að setja  meiri peninga í Grensás og Reykjalund og aðrar stofnanir sem sinna endurhæfingu. Sjúkra- og styrktarsjóðir verkalýðsfélaganna hafi síðan það hlutverk að styðja við bakið á einstaklingunum og veita kerfinu aðhald. Þeir eiga ekki að verða kerfið.  Baráttan um velferðina má ekki hafna í farvegi eiginhagsmuna. Árni Páll Árnason, félagsmálaráherra hefur lýst yfir áhyggjum yfir því að verið sé að koma á tvöföldu kerfi. Hann er ekki einn á báti. Ég hygg að hann fari hér fyrir meirihlutavilja í þjóðfélaginu.

25. Mars 2010

HVAR ER SÓMAKENNDIN PÁLL?


Árni Guðmundsson, háskólakennari og fyrrum æskulýðsfrömuður í Hafnarfirði, kom með ágæta ábendingu á heimasíðu sinni eftir að ég talaði fyrir frumvarpi mínu og Þuríðar Backmans um áfengisauglýsingar. Hann benti á að RÚV hefði slegið því upp að ég vildi banna áfengisauglýsingar þegar veruleikinn væri sá að þær væru bannaðar .... Í Ríkisútvarpinu er áfengissauglýsingabannið virt að vettugi nær daglega. Líka í Kastljósinu. Það er svolítið kindugt því Kastljósið hefur áður sýnt að það vill vera sérlega sómakært þegar áfengi er annars vegar. Um það gat ég sérstaklega í framsöguræðu minni og beindi þeirri spurningu til útvarpsstjóra hvar sómakenndin væri nú. Hvort ekki væri ráð að sýna hana í verki og framfylgja lögum sem kveða á um að áhorfendum sé hlíft við áreitni...

23. Mars 2010

EINKUNNAGJÖF INDRIĐA


Indriði H. Þorláksson, sem komið hefur að Icesave samningaviðræðunum, hefur nú hafið ritun greinaflokks á Smugunni (smugan.is) þar sem hann reifar sjónarmið sín. Fyrsta greinin hefur þegar birst og er hún harðorð í garð þeirra sem gagnrýnt hafa samningsferlið og fá þeir ofanígjöf af hans hálfu; taldir vera haldnir minnimáttarkennd, þjóðernishroka, heimsfrelsunaráráttu, kveinstöfum og vesældarþráhyggju svo eitthvað sé nefnt. Eins og þessi listi ber með sér er að finna í einkunnarbók Indriða H Þorlákssonar mergjuð hugtök og í sumum tilvikum skemmtileg nýyrði. Við því er ekkert að segja að ...

19. Mars 2010

GÖMLU FÖTIN KEISARANS?


...Htt er svo annað mál að íslenska peningakerfið hrundi með hrikalegum afleiðingum fyrir efnahagslífið í heild sinni. Mikilvægt er að menn sjái orsakasamhengið í réttu ljósi. Ég skal játa að fræðimenn við háskólana og pennaliprir talnaspekúlantar hafa stundum sett fram staðhæfingar um þetta málefni sem ég hef átt erfitt með að átta mig á. Ekki hef ég orðið var við mikla sjálfsgagnrýni á þessum bæjum og ekki  séð andæft staðhæfingum um að frestun á Icesave hafi leitt til taps upp á 75 milljarða á mánuði hverjum - 900 milljarða á ári! -  einsog einn hagspekingur hefur haldið fram...

16. Mars 2010

BÓNUSAR Í BÖNKUM: ĆTLA MENN EKKERT AĐ LĆRA?


Þjóðverjar hyggjast banna bónus greiðslur í bönkum og setja hámark á launagreiðslur í bönkum. Sarkozy Frakklandsforseti hefur látið banna bónusgreiðslur í bönkum sem hafa þurft á aðstoð ríkisins að halda. Meira að segja breskir íhaldsmenn hafa gagnrýnt hugmyndina um bónusgreiðslur í bönkum. Sumir telja að bónusgreiðslur séu grundvöllur spillingar í bankastarfsemi. Sannast sagna ætlaði ég ekki að trúa mínum eigin augum þegar  fréttir bárust af því að -bankarnir væru í þann veginn að koma á að nýju „bónuskerfi" innan sinna múra. Í gær ...

12. Mars 2010

ŢEGAR MENN RÍSA Á FĆTUR


...Gagnrýni forseta Íslands, nú síðast í garð Norðurlandanna, hefur hreyft við valdakerfinu á jákvæðan hátt og yfirlýsingar Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, nú síðustu dagana hafa verið úr munni manns sem stendur uppréttur...Það er svo okkar norðurslóðakarla og kvenna að velta því fyrir okkur af hverju það eru einmitt þjóðirnar í Færeyjum og Noregi sem standa með okkur og láta sig framtíð okkar varða. Fjárhagsstuðningur er vissulega mikilsverður en ekki er hin almenna velvild síðri. Hjálparhönd verður ekki metin til fjár þegar menn eru aðþrengdir og í nauðvörn. Höfum það...

11. Mars 2010

SMUGAN.IS: ÚR HRINGIĐU UMRĆĐUNNAR


Viðtal á smugan.is 10.03.10.
....Harðlínuafstaða og flokkspólitískir hagsmunir eru ekki lausnamiðaður kokteill. Hvað við getum beðið lengi, þá minni ég á að þrautseigja og úthald er það sem mestu máli skiptir til að ná árangri. Þarna eru gríðarlegir hagsmunir í húfi.  Tugir og hundruð milljarða hanga á spýtunni . Það er einsog sumir haldi að þetta sé fyrst og fremst  akademískt viðfangsefni sem komi veruleikanum nánast ekkert við, í besta falli laustengt við hann. Það vill hins vegar svo til að við erum að tala um nákvæmlega sömu krónurnar og menn í opinberri þjónustu taka upp úr launaumslaginu sínu. Því meira sem greitt er fyrir Icesave, þeim mun minna er til skiptanna í heilbrigðiskerfinu, skólunum og fyrir fatlaða. Stundum hef ég spurt sjálfan mig hvort ...

9. Mars 2010

METNAĐARLAUS?


Vefmiðillinn pressan.is vekur athygli á skrifum Karls Th. Birgissonar, ritstjóra tímaritsins Herðubreiðar um Icesave og aðkomu okkar nokkurra að því máli; fólks sem á það sammerkt að hafa viljað endurskoðun á þeim skilmálum sem Alþingi fékk undirritaða til umfjöllunar síðastliðið sumar. Við fáum ekki háa einkunn, erum sögð engar tillögur hafa haft fram að færa (sem er ósatt!), og það sem alvarlegra er, við erum sögð vilja „einangra landið" en þar með „kjósum" við „enn frekari samdrátt og atvinnuleysi, félagslegar hörmungar og veikingu velferðarþjónustunnar..."
Síðan talar ritstjórinn um meintan tilkostnað af töfinni á Icesave, nokkuð sem fróðlegt væri að ...

2. Mars 2010

SMUGUNNI ÓSKAĐ HEILLA


Vefmiðillinn www.smugan.is   hefur nú verið opnuð að nýju undir ritstjórn Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur. Hún er án nokkurs vafa einn kröftugasti fréttamaður landsins, býr yfir mikilli reynslu og nýtur virðingar í stétt fréttamanna. Til marks um það er að hún hefur verið kjörin til að vera í forsvari stéttarinnar sem formaður Blaðamannafélags Íslands. Lofar ráðning Þóru Kristínar góðu um framtíð Smugunnar.
Um fréttamiðil sinn segir Þóra Kristín m.a...

26. Febrúar 2010

LÍFEYRISSJÓĐIR TIL VARNAR


...Ef haldið verður áfram að þrengja að Íslandi þegar við nú reynum að rísa á fætur og höfnum Icesave ofríkinu og okkur hótað öllu illu í framhaldinu, greiðslufalli og lokun á lánalínum, hvernig væri að lífeyrissjóðirnir minntu á eignir sínar í útlöndum; að þegar kæmi að erfiðri endurfjármögnun á árunum 2011-2012 þá minntu lífeyrirssjóðirnir á eignir sínar í útlandinu - 500 milljarða í erlendum eignum - að þeir kæmu Íslandi til varnar á ögurstundu? Þetta þjónaði hagsmunum lífeyrissjóðanna, þetta þjónaði hagsmunum Íslands, þetta þjónaði hagsmunum okkar allra. Er þetta ekki augljóst mál? Mér finnst það. Reyndar held ég að staðan sé ekki eins slæm og úrtölumenn láta í veðri vaka - nú síðast talsmenn ASÍ og SA...

24. Febrúar 2010

BÚLGARSKI SÍMINN OG ÚTLENDIR SJÚKLINGAR


...Í tilefni þessara orða og annarra áþekkra langar mig til að varpa fram þeirri spurningu til umhugsunar  hvort við berum ekki ábyrgð gagnvart almenningi í öðrum löndum en okkar? Miklar umræður fara nú fram um það innan Evrópusambandsins hvaða afleiðingar milliríkjaverslun með heilbrigðisþjónustu hafi fyrir almannaþjónustuna. Margir óttast að þetta komi til með að grafa undan henni. Áköfum bisnissmönnum virðist það hins vegar koma lítið við. Ég lít svo á að hér beri Íslendingum að sýna ábyrgð.  Hluti af útrásar-hugarfarinu  var að í góðu lagi væri að græða á útlendingum B...Því var til dæmis fagnað ákaft þegar  íslenskir „fjárfestar"  gleyptu landssímann í Búlgaríu í samstarfi við...

24. Febrúar 2010

SKATTRANNSÓKNARSTJÓRI FYRIR EFNAHAGS- OG SKATTANEFND ALŢINGIS


...Reyndar hafa grunsemdir vaknað um góða dómgreind hjá einhverjum skilanefndarmönnum, til dæmis þegar í ljós kom að þeir höfðu látið eigin lögmannsstofur sinna erindum fyrir sömu skilanefndir og þeir sátu í sjálfir, fyrir himinháar upphæðir! Það kann að hafa verið löglegt  - en siðlaust einsog Vilmundur sagði forðum. En hvað með það sem augljóslega er ólöglegt? Telja skilanefndir sig skuldbundnar - þó ekki væri nema siðferðilega - til að skjóta slíkum málum til rannsóknar hjá skattinum? Mér leikur forvitni á að vita þetta. Þess vegna hef ég óskað eftir því að skattrannsóknarstjóri...

23. Febrúar 2010

GOTT HJÁ EIRÍKI

...Fram kemur í Morgunblaðinu í morgun að Eiríkur Jónsson, formaður KÍ, hafi beitt sér í þessu máli innan Kennarasambandsins og þá ekki síður í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins þar sem hann á sæti. Fram kemur að á fyrri staðnum átti þetta sjónamið góðan hljómgrunn. Vonandi verður hið sama uppi á teningnum hjá lífeyrisjóðunum sem komið hafa á fót svokölluðum Framtakssjóði, sem er hugsaður til að örva atvinnulífuið.
Framtakssjóðurinn olli deilum á sínum tíma - það þekki ég frá eigin stjórnarsetu í LSR - og vil ég taka undir það með Eiríki Jónssyni að lífeyrissjóðirnir verða að vanda sig ef þeir ætla ekki að misbjóða eigendum sínum, sjóðsfélögunum. Í viðtali við Eirík í Morgunblaðinu í morgun segir Eiríkur: „Ég vil ekki sjá Framtakssjóðinn notaðan til þess að endurreisa einhverja víkinga sem hafa skilið eftir sig slóðina af afskrifuðum skuldum...

18. Febrúar 2010

GUĐFRÍĐUR LILJA UM EVU JOLY: TIL SANNINDA UM GÓĐAN ÁSETNING ÍSLENDINGA!


Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður VG, skrifar athyglisverða grein í Fréttablaðið í gær þar sem hún skýrir hvers vegna hún telji vera komna upp nýja og betri stöðu í Icesave. Málið hafi verið komið í blindgötu á Alþingi. Þar hefði ekki verið frekari framfaraskrefa að vænta. Guðfríður Lilja fagnar því að málið sé nú komið í lýðræðilsegan farveg þjóðaratkvæðagreiðslu enda studdi hún tillögu þess efnis á Alþingi. Í greininni bendir hún á þá lykilstöðu sem Eva Joly hafi gegnt í viðureign Íslendinga við erlend hagsumaöfl sem að okkur sækja og hversu þakkarvert hennar framlag hafi verið málstað Íslands til styrktar. Um aðkomu Evu Joly segir...

17. Febrúar 2010

HÚRRA FYRIR HÁSKÓLA ÍSLANDS?


Vinur minn einn er spilafíkill. Hann er líka öryrki. Hann ætlaði í dag að kaupa í matinn fyrir komandi mánuð - einsog hann og kona hans gera í hverjum mánuði. Í vasanum voru 95 þúsund krónur -peningar sem þurftu að duga lengi. Á vegi vinar míns var Gullnáman. Hún er sem kunnugt er spilavíti í eigu Háskóla Íslands. Það sem upp úr námunni kemur  - í dag sem endranær - er notað til að fjármagna byggingar okkar ástsælu menntastofnunar, HÍ. Gullnáman býr ekki yfir neinum verðmætum að morgni dags - öðru en þá klinki til að hefja daginn. Í dagslok glóir hins vegar gullið. Þá hafa vinur minn og...

 

15. Febrúar 2010

HETJUR


Sjaldan finnur maður fyrir eins notalegri tilfinningu og við að verða vitni að björgunarsveitum að störfum. Það gerum við alltaf annað veifið í gegnum fjölmiðla þegar sveitirnar eru kallaðar út einsog gerðist í gær þegar á þriðja hundrað björgunarsveitamanna héldu til leitar á Langjökli að konu og dreng sem þar höfðu týnst. Leitin bar árangur. Því fylgdi mikil gleðitilfinning. Enda unnin hetjudáð. Móður og syni bjargað úr lífsháska. Hvað er svona notalegt  við tilhugsunina um björgunarsveitirnar? Auðvitað...

14. Febrúar 2010

EINKAVINAVĆĐING BANKANNA MUN ALDREI FYRNAST


...
Menn segja að hugsanleg brot kunni að vera fyrnd. Það breytir því ekki að framganga stjórnmálamanna og hlutaðeigandi bissnismanna mun aldrei fyrnast i huga þjóðarinnar. Þess vegna þarf að fá málið rannsakað. Að sjálfsögðu verður beðið eftir rannsóknarskýrslunni því á þessu stigi eru þetta getgátur. En sé þessi raunin - ef horft er framhjá einkavinavæðingu bankanna - mun koma fram formleg krafa um rannsókn. Ég mun sjá til þess....

12. Febrúar 2010

EKKI HEFND - BARA RÉTTLĆTI


...Eftir að Mandela og félagar tóku við stjórnartaumunum var Sannleiksdómstóll  settur á laggirnar. Krafan var um sannleikann  - og allan sannleikann  - upp á borðið. Þegar það hafði verið gert var verkefnið að fyrirgefa og sættast. Eitthvað í þessu kann að eiga erindi við okkur Íslendinga. Mér  varð hugsað til þessa þegar ég sá forsíðu DV í dag. Þar voru myndir af nokkrum stjórnmálamönnum og embættismönnum. Fyrirsögnin var „Grunuð."  Nú hef ég ekki séð grunsemdirnar útlistaðar. En ég vara við því að búa til glæpamenn úr velviljuðu og heiðarlegu fólki sem kann að hafa unnið sér það til saka að hafa sýnt fyrirhyggjuleysi, andvaraleysi  - augljóst nú eftirá en ekki endilega þá. Yfirsjónarbrot eru ekki sama og ....

12. Febrúar 2010

ORĐ ERU DÝR


...Þetta er ekki rétti tíminn til að hefja hatrammar deilur um það hvort íslensk stjórnvöld hafi verið búin að skuldbinda okkur óafturkræft haustið 2008. Sjálfur tel ég  af og frá að svo hafi verið. Þetta  þarf að sjálfsögðu að leiða í ljós af sagnfræðilegri nákvæmni. Best er að gera það áður en fréttyfirlýsingar eru gefnar út í Bretlandi og Hollandi í aðdraganda nýrrar samningalotu. Alla vega eru slíkar yfirlýsingar óheppilegt upplegg fyrir þá samninganefnd  sem nú freistar þess  að bæta stöðu Íslands...

11. Febrúar 2010

ER SAMAN AĐ JAFNA LANDSBANKANUM HF OG SEĐLABANKA ÍSLANDS?


...Hávaxtastefna Seðlabankans eru hans stærstu mistök að mínu mati þótt ég taki undir með Eiríki Jónssyni að lánveitingar með veði í „ástarbréfum" bankanna höfðu að sjálfsögðu alvarlegar og afdrifaríkar afleiðingar. Þau ber hins vegar að skoða í framangreindu sögulegu samhengi. Aldrei hefur nokkur vafi leikið á því að íslenska ríkið greiddi sínar skuldir. ALDREI. Seðlabankinn er hluti af íslenska ríkinu. Það var Landsbankinn hf hins vegar ekki. Þess vegna á ekki að leggja Seðlabankann og Landsbankann að jöfnu! Alls ekki. Deilan stendur um að hvaða marki ...

11. Febrúar 2010

HĆTTUR VIĐ AĐ FARA Í HAGFRĆĐI


Það er svolítið sérstakt hvernig Þórólfur Matthíasson, háskólaprófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, umgengst sannleikann. Í Fréttablaðinu í dag birtist grein eftir Þórólf, sem lesendum blaðsins, er sagt vera svar við skrifum mínum um röksemdafærslu prófessorsins.
Ég ætla ekki að efast um að þessi grein sé meint sem einhvers konar svar þótt hún í raun sé það ekki. Mér eru gerðar upp skoðanir sem ég alls ekki hef og látið er að því liggja að ég fullyrði sitthvað sem ég alls ekki hef gert. Þannig segir Þórólfur Matthíasson svo dæmi sé tekið...

9. Febrúar 2010

STEINGRÍMUR HERMANNSSON: MAĐUR SVEIGJANLEIKA


...Steingrími Hermannssyni kynntist ég nokkuð á vettvangi þjóðmálabaráttu, í átökum um húsnæðismál á 9. áratugnum og síðar sem formaður BSRB.  Bar ég virðingu fyrir Steingrími og kunni vel að meta hans félagslegu viðhorf sem voru þungamiðjan í pólitík hans. Hann hafði hugrekki til að bera sem meðal annars kom fram í framgöngu hans á alþjóðavettvangi þar sem hann til dæmis studdi málstað Palestínumanna á afdráttarlausari hátt en aðrar Norðurlandaþjóðir á þeim tíma. Með okkur Steingrími Hermannssyni tókst  ágætur kunningsskapur sem einkenndist af mikilli vinsemd. Minningin um Steingrím Hermannsson er  í  mínum huga...

9. Febrúar 2010

AFTUR?


...Hvernig má það vera að Ólafur Ólafsson sem kenndur var við Samskip og lagðist síðan í milljarða brask og útrás er aftur kominn með eignarhald á Samskipum? Hefur hann gert upp sínar skuldir?  Er hann laus allra mála gagnvart samfélaginu? Finnst honum sjálfum hann vera laus allra mála fyrr en hann er búinn að gera upp við íslenskt samfélag? Þannig mætti spyrja um fleiri. Marga fleiri. Reyndar flesta spilarana í fjárhættuspilinu um Ísland. Skyldi Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka vera að fara að fyrirmælum eigenda bankans þegar hann segir að gamlir eigendur Haga eigi að fá 15% hlut í fyrirtækinu í forgjöf áður en það fer á markað? Skyldi það vera þetta sem eigendurnir vilja? Hverjir eru annars eigendurnir? Getur verið að ...

8. Febrúar 2010

VILJA GRĆĐA Á SPILAFÍKN


...Þetta mun því miður ekki vera grín. Það er í alvöru áhugi á því að opna myndarlegt spilavíti á Hótel Nordica! Einhvers staðar heyrði ég talað um Heilsuverndarstöðina gömlu sem tilvalin húsakynni fyrir spilavíti! Þetta er ekki grín þrátt fyrir að allir viti að Ísland hrundi vegna þess að landið var gert að spilavíti í öllum myndgervingum þess hugtaks. Andi spilavítisins sveif hér yfir vötnum og hafði áhrif á allt þjóðlífið í orðum og gjörðum. Ekki var nóg með að landið væri gert að vettvangi spilafíknar og hún örvuð á alla lund,  heldur hefur komið á daginn að land og þjóð voru gerð að panti í spilarúlettu heimsins. Nú segjast þau hjá Icelandair vilja ...

4. Febrúar 2010

ÖGMUNDARFÉLAGIĐ


...Tilefni þessara skrifa er að í kvöld voru tónleikarnir fluttir í Ríkisútvarpinu þannig að þeim sem ekki sóttu tónleikana 27. janúar sl. gafst þar færi á að heyra snilldartakta tónlistarmannsins. Í sýningarskrá er greint frá glæsilegum námsferli Ögmundar þórs Jóhannessonar á Íslandi, Spáni og loks í Austurríki en hann útskrifaðist með hæstu einkunn frá hinum heimskunna Mozarteum skóla í júní árið 2008. Núna starfar Ögmundur þór sem tónlistarmaður í Berlín. Til marks um færni hans segir meðal annars um verkið Toccata eftir Þorstein Hauksson í sýningarskrá...

3. Febrúar 2010

NÍĐSKRIF Í NOREGI


...En hvers vegna yrði það Íslendingum dýrt, má ég spyrja? Svarið liggur í augum uppi. Vegna þess að þá yrðu Íslendingar væntanlega beittir þvingunaraðgerðum af hálfu Breta og Hollendinga og fylgisfiska þeirra! Er ekki rétt fyrir Íslending sem hefur fyrir því að skrifa grein í erlent blað að spyrja um réttmæti slíkra refsiaðgerða og í framhaldinu, ef þær reynast óréttmætar, fara þess á leit að látið verði af slíkum þvingunum? Nei, það er ekki á dagskrá hjá Þórólfi Matthíassyni. Grímulaust og gagnrýnislaust tekur hann upp málstað Breta og Hollendinga og grefur um leið undan okkar málstað og ber okkur sum hver út að auki! Um  útreikninga og framsetningu Þórólfs má  ...

2. Febrúar 2010

VAXANDI SKILNINGUR Á STÖĐU ÍSLANDS


...Ánægjulegt er að heyra þá tóna sem nú heyrast frá norrænum vinstri flokkum, svokölluðum systurflokkum VG á Norðurlöndum. Í síðustu viku kom allfjölmenn sveit frá þessum flokkum saman til reglubundins samráðsfundar í Kaupmannahöfn. Af Íslands hálfu gerðu þingmenn VG, þau Guðfríður Lilja Grétarsdóttir þingflokksformaður og Ásmundur Einar Daðason,  grein fyrir stöðu Icesave málsins. Sama gerði Elvira Méndes  prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, sem sérstaklega hafði verið boðið til fundarins til að fara yfir lagalegar hliðar málsins.
Í kjölfar fundarins var...

1. Febrúar 2010

AĐ LESA PASSÍUSÁLMA MEĐ SÁLINNI

„Það les enginn slíkan texta svo vel sé nema sálin sé með í leiknum", sagði Gunnar Stefánsson, útvarpsmaðurinn góðkunni í inngangsorðum sínum að Passíusálmalestri  Andrésar Björnssonar  í kvöld. Þar með hófst lestur Passíusálmanna sem mun standa næstu 9 vikurnar eins og 66 ára hefð er nú komin á að gera í Ríkisútvarpinu á föstunni, eða allar götur frá árinu 1944...Andrés Björnsson var ekki aðeins frábær upplesari. Hann var menningarinnar maður. Á tímum sem okkar er gott að finna til kjölfestunnar í menningunni. Þar hefur Ríkisútvarpið skyldum að gegna...

1. Febrúar 2010

HRAĐUPPHLAUP Á SPRENGISANDI


...En það er hraðupphlaup Sigurjóns M. Egilssonar á Sprengisandi sem er tilefni þessara skrifa minna. Þátturinn sem fjallaði um hrunið og aðdraganda þess var einstaklega vel unninn - af vandvirkni og skilningi. Sigurjón fór í gegnum gögn opinberra aðila, Seðlabankans og fleiri, og ræddi við valinkunna einstaklinga. Af handahófi kemur upp í hugann ábending Þórðar Friðjónssonar Kauphallarforstjóra um að í árslok 2007 hafi Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sagt að ...

31. Janúar 2010

„ŢAĐ VERĐUR EKKI FYRR EN UM ŢRJÚ LEYTIĐ..."


Ekkert jafnast á við Ísland í góðu skapi. Þannig finnst mér landið vera þegar veður er fallegt, stilla og heiðríkja. Þannig er það búið að vera um helgina á þeim slóðum þar sem við Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, fórum um , en það var sem leið liggur um  landið vestanvert  og norður í Skagafjörð þar sem ég var gestur á félagsfundi Vinstri  grænna... Eitt er víst. Meningarvísitalan er ekki á niðurleið við Skagafjörð. Um miðnættið risum við Jón Bjarnason úr sætum okkar til að hefja heimferðina. Ég hafði orð á því við nærstaddan eftir hálftíma eða svo að ráðherrann þyrfti að kveðja marga. Viðkomandi svaraði að bragði ...

29. Janúar 2010

MARGT GOTT AĐ GERAST!


...
Okkar menn voru á ferð í umboði allra stjórnmálaflokka á Alþingi, líka Samfylkingar og Hreyfingarinnar. Þetta er mikilvægt að hafa í huga enda eina leiðin fyrir Ísland að landa árangri er að við STÖNDUM ÖLL SAMAN um málstað Íslands. Þarna var verið að opna á viðræður sem þarf að fylgja eftir. Nú má enginn skerast úr leik. Við þurfum að ná landi saman. Jafnframt þurfa allir að leggjast á eitt um að vinna að því að bæta stöðu okkar. Sýna fram á ofbeldið sem Ísland hefur verið beitt af hálfu Breta, Hollendinga, ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Forseti Íslands hefur ekki látið sitt eftir liggja. Hafi hann þökk fyrir skelegga framgöngu, sbr..

28. Janúar 2010

ŢAU ÁTTU SÉR DRAUM


...En hvað sem brotum og brotalömum viðkemur þá má hitt aldrei gleymast að hrunið varð ekki til af sjálfu sér. Spilavítið Ísland var búið til með markvissum og yfirveguðum hætti. Þau áttu sér draum sem þau vildu gera að veruleika! Ísland sem paradís fyrir fjármálabrask. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins ættu að hafa þetta í huga þegar þeir mæta sperrtir í umræðuþætti að óskapast yfir böli heimsins. Annars stoðar lítt að festast í fortíðinni nema að því leyti að af henni eigum við að draga lærdóma til að flytja með okkur inn í framtíðina... 

27. Janúar 2010

AĐ FALLA Á PRÓFI


 ...Þessa breyttu stöðu ber okkur öllum skylda til að nýta, málstað Íslands til framdráttar. Ekki tala okkur niður. Ekki leita að því sem er til þess fallið að veikja stöðu Íslands. Heldur hinu sem er til að styrkja stöðu landsins. Lágmarkskrafa er að Seðlabankinn haldi sig til hlés ef hann ekki telur sig vera þess umkominn að horfa hlutlægt á málin.Sama á við um akademíuna. Venjulega eru það nemendur sem falla á prófum. Á undanförnum mánuðum höfum við hins vegar séð prófessorana falla. Hvern á fætur öðrum...

26. Janúar 2010

AĐEINS MINNI ÚRTÖLUR!

Birtist í Fréttablaðinu 25.01.10.
FrettablaðiðNiðurskurðurinn í ríkisútgjöldum er farinn að segja til sín. Ýmsir staðhæfa að við séum að fara í hundana. Að Ísland muni einangrast ef við förum ekki í einu og öllu að vilja Breta og Hollendinga. En vanmetum ekki stöðu okkar. Kapítalisminn er ágengari en margir halda; túristinn frá München ætlar til Íslands í sumar hvað sem tautar og raular; Ikea ætlar að selja Jóni og Gunnu á Íslandi stól og borð -fiskkaupmaðurinn í Grimsby ætlar að koma íslenskum fisk á veitingahúsaborð í London. Hann ætlar ekki að einangra Ísland. Vanmetum ekki heldur ...

26. Janúar 2010

LESENDUR DV EIGA BETRA SKILIĐ!

Birtist í DV 25.01.10.
DVEinhvern veginn finnst mér að lesendur DV eigi annað og betra skilið í umfjöllun um Icesave en greinar blaðamannanna Jóhanns Haukssonar og Vals Gunnarssonar á undanförnum vikum. Í stað málefnalegrar greiningar eru endalausir palladómar um einstaklinga og stjórnmálaflokka. Innihaldsrýrir, en þeim mun rætnari. Sjálfur hef ég fengið vel útilátna skammta...Hvernig væri nú til tilbreytingar að reyna sig við málefnalega umræðu um Icesave og alla vega gera tilraun til að ...

22. Janúar 2010

ÍSLENDINGAR VIRKJA VELVILJANN


Íslendingar berja sér á brjóst fyrir viðbraðgsflýti við hjálparbeiðni frá Haiti vegna hörmunganna í kjölfar jarðskjálfta. Ég tek þátt í brjóstkassabarsmíð.  Ég er stoltur að hugsa til þess að Íslendingar voru í hópi þeirra sem voru fyrstir að taka við sér þegar ógæfan reið yfir. Mér þykir líka vænt um að lesa frásagnir af því hve vel okkar fólk hefur staðið sig í björgunarstarfi við erfiðar aðstæður. Þakkir til allra hlutaðeigandi, viðbragðsskjóts utanríkisráðuneytis, björgunarsveita, hjálparstofnana...Fáum þar auk þess ágætan og sannsöglan spegil á eigið hlutskipti. Hollt fyrir okkur -  um leið og við ...

21. Janúar 2010

EKKI SÚ RÉTTVÍSI SEM BEĐIĐ ER EFTIR


...Þegar skrifstofustjórn Alþingis tók ákvörðun um kærur með kröfum um refsingar og  fangelsisdóma síðastliðið haust mótmælti ég. Taldi þetta ósanngjarnt, óráðlegt, nánast heimskulegt. Við yrðum að horfa á aðstæður. Spyrja, hvers vegna allur þessi hugaræsingur og ofsi? Svörin blöstu við. Á þessum tíma var það að renna upp fyrir fólki að Ísland hafði verið svikið. Og blóðið ólgaði. Fólk greip til aðgerða sem það að jafnaði gerir ekki - og eru óafsakanlegar undir öllum venjulegum kringumstæðum. Svo leið tíminn. Flestir héldu að málið væri dautt. Slasað fólk hefði fengið bætur. Helst ríflegar. En viti menn. Nú reis "Réttvísin" úr rekkju. Steig framúr. En ekki sú réttvísi sem beðið var eftir.
Í þjóðfélaginu er nefnilega spurt...

20. Janúar 2010

LOFSVERT FRAMTAK GUNNARS SIGURĐSSONAR


...Það er fólgin von í öllu því fólki sem er tilbúið að berjast fyrir betra Íslandi. Í þeirri baráttu dugir engin værukærð. Það þarf að hrista upp í íslensku þjóðfélagi. Sá er blindur sem ekki kemur auga á það. Við eigum enn eftir að losa okkur við hugsunarhátt útrásartímans; braskið og spillingin ríður enn húsum í fjármálaheiminum og víðar í atvinnulífi. Þessu útrýmum við ekki með löggjöf og reglugerðum einum saman heldur með því að breyta hugarfari í þjóðlífinu, tíðarandanum. Að því vill Gunnar Sigurðsson stuðla með mynd sinni....

19. Janúar 2010

FERSKIR ERU LÝĐRĆĐISVINDARNIR


...Ef við ætlum hins vegar að treysta á forræðishyggjuna - "góðu" stjórnmálamennina - til að passa upp á okkur, og hættum að hugsa sjálf, þá erum við dæmd til að tapa. Bæði vegna þess að "góðu" stjórnmálamennirnir eru ekki alltaf við völd og svo er hitt, að "góðu" stjórnmálamennirnir geta stundum gert slæma hluti....Sannast sagna finnst mér stórundarlegt - og kemur mér á óvart  hve djúpum rótum forræðishyggjustjórnmál virðast standa í íslenskri pólitík - sú hugmynd, að stjórnmál snúist um fagmennsku; kunnáttu á því að hafa vit fyrir öðrum...

19. Janúar 2010

LÝĐRĆĐI ER GRUNDVALLARRÉTTUR


...
Á daginn hefur komið að dráttur á málinu gæti komið okkur vel, það er að segja, ef við nýtum þann byr sem við höfum erlendis og gerum allt sem í okkar valdi stendur til að styrkja stöðu okkar með öflugu kynningarátaki. Ég var ekki einn um þessa skoðun. Svo mikil var óánægjan í þjóðfélaginu með niðurstöðu þingsins að fjórðungur atkvæðisbærra manna í landinu mæltist til þess við forseta Íslands að hann yrði við áskorunum um þjóðaratkvæðagreiðslu. Samkvæmt stefnu VG hefði ekki þurft forsetann til sem millilið því samþykktir flokksins kveða á um að þetta hátt hlutfall kjósenda eigi að geta krafist þjóðaratkvæðagreiðslu milliliðalaust....

17. Janúar 2010

UM LÝĐRĆĐI OG FORGANGSRÖĐUN Í STJÓRNMÁLUM


... Annars vil ég sérstaklega vekja athygli á ítarlegu viðtali við Einar Guðmundsson, lækni, í Silfri Egils í dag. Einar talaði með lýðræðinu, gegn forræðishyggjunni, með virðingu fyrir samferðarfólki, gegn foringjadýrkun, með málefnalegri umræðu gegn klisjutali. Hann var sannast sagna kyngimagnaður. Hann sagði að á Íslandi hefðum við farið illa með lýðræðið. Við þyrftum að vanda okkur betur. Stjórnmálamönnum hætti til  að forgangsraða í eigin þágu en ekki alamnnahags. Fyrst kæmu þeir sjálfir, síðan fokkurinn, síðast kæmi þjóðin. Þetta ætti að vera öfugt. Einar sagði...

17. Janúar 2010

JÓHANN HAUKSSON OG FAĐMUR SIĐMENNINGARINNAR


...Jóhann studdi mál sitt nýlegri speki frá Guðmundi Ólafssyni, hagfræðingi. Þeir félagar segja að Icesave lausnin rúmist í tveimur setningum: 1) Íslendingar borga. 2) Ef Íslendingar geta ekki borgað, þá borga þeir ekki. Hvað þá? Jú, þá hvílum við, samkvæmt Jóhanni, í faðmi siðmenningarþjóðanna. Einhvern veginn þannig var þetta orðað. Þeim Guðmnundi og Jóhanni virðist ekki umhugað um að Icesave-deilan sé leyst á grundvelli réttarríkis og sanngirni. Þetta er í ætt við málflutning þeirra sem segja að öllu skipti að klára málið - svo reddum við þessu seinna. Það verði örugglega eitthvað gert fyrir okkur í Brussel seinna. Þetta er ekki bara kúlulánahugsun frá 2007, heldur er þetta líka ...

12. Janúar 2010

SAMSTÖĐU UM MÁLSTAĐ!

Birtist  í DV 11.01.10.
DV...Þetta skilja náttúruunnendur í Evrópu. "Ég gleymi aldrei hverasvæðunum og kraftinum í Dettifossi", skrifaði mér Hollendingur um daginn eftir að heyra viðtal við mig í hollenskri útvarpsstöð.  Þegar Bretum og íbúum meginlandsins er bent á að málið snerti okkur öll, alla þá sem annt er um dýrmætar náttúruperlur, sem við sameiginlega viljum vera gæslumenn fyrir, þá breytist tónninn. Enn einn vinkillinn eru áhyggjur manna yfir gölluðu regluverki fjármálakerfisins ....Þessa stöðu verðum við að nýta okkur...

11. Janúar 2010

MÁLSTAĐUR ÍSLANDS STYRKIST


Egill Helgason
mætti með Silfur sitt á RÚV á sunnudag og færði okkur sjónarmið málsmetandi einstaklinga erlendis sem nú stíga fram hver á fætur öðrum og bera brigður á greiðsluskyldu Íslendinga í Icesave. Í þessum hópi eru Alain Lipietz, sem sæti hefur átt á Evrópuþinginu og Michael Hudson, prófessor við Missuori háskólann í Bandaríkjunum. Eva Joly, góðvinur Íslands var einnig í þættinum í útsendingu frá París en hún hefur haldið fram svipuðum sjónarmiðum. Þetta er í ætt við það sem Íslendingar hafa sjálfir haldið fram og er að finna í ...

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

31. Júlí 2010

UNDARLEGAR SPURNINGAR?

Hvernig stendur á því Ögmundur að þú spyrð svona einkennilegra spurninga á síðunni þinni - sem er væntanlega hugsuð almenningi til aflestrar. Hvað er einkennilegt við spurninguna þína - "Hvers vegna stóð Ísland ekki með mannréttindum" og er um hvers vegna Ísland sat hjá við afgreiðsu vatnsréttindanna hjá SÞ. Jú, þú hefur beinan aðgang að bæði mannréttindaráðherra (Jóhönnu held ég) og utanríkisráðherra (Össur) og getur spurt þau beint og krafist svars án málalenginga eða útúrsnúninga! Við alm. lesendur þínir höfum ekki þennan kost. Það væri reyndar fróðlegt að fá að vita ....
Ragnar Eiríksson

30. Júlí 2010

VATNIĐ OG RÍKISSTJÓRNIN

... Það er mjög einkennilegt að vilja ekki styðja tillögu Sameinuðu þjóðanna um að flokka réttinn til vatns sem mannréttindi. Heldur skipar ríkisstjórnin sér í flokk með hægri stjórnunum í Danmörku, Svíþjóð og Englandi sem vilja braska og gera drykkjarvatn að söluvöru. Sú afsökun sem gefin er út í fjölmiðlum er óskiljanleg. VG skuldar kjósendum sínum skýringu.
Pétur

29. Júlí 2010

ÓSVÍFIN HVATNING TIL ÁFENGISNEYSLU

...Þá finnst mér auglýsingar skemmtannaliðsins í Vestmannaeyjum ganga út fyrir allann þjófabálk. Sínu verst er sú auglýsingin þar sem þingmaðurinn öskrar djamm, inn í tjaldið hjá tveim drengjum. Annar virðist svag fyrir drykkjulátunum. Hinn er klæddur í skátabúning og virðist ekki hafa áhuga á drykkjulátunum. Þeir sem bera ábyrgð á auglýsingunni leyfa sér í þessari auglýsingu að gera grín að unglingnum sem ekki vill drekka áfengi og skemmta sér með drykkjulátum. Þetta er ótrúleg ósvífni. Ríkisfjölmiðillinn lætur ekki sitt eftir liggja varðandi ...
Kristbjörn Árnason

29. Júlí 2010

FORSENDUR SJÁLFSTĆĐIS

...Rétt að vekja athygli á þessari framsetningu nú þegar fámennt íslenskt samfélag gæti staðið frammi fyrir því að rakna upp með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Það er ekki bara að þetta sé grundvöllurinn sem gerir okkur fær um að takast á við sjálf okkur og heiminn, þetta er útgangspunktur þess sem vill reisa hér velferðarsamfélag, til dæmis norrænt. Það er freistandi að lesa grein Styrmis og skilja, sem hugmyndafræðilega endurskoðun eða byrjun á uppgjöri, sem ætti að leiða til tímabærs uppgjörs í flokkakerfinu, ekki ólíkt því sem verður að verða í siðferði atvinnulífsins. Eða hvað finnst þér Ögmundur?  
Kveðja,
Ólína

29. Júlí 2010

ESB TIL ÓŢURFTAR

..Mér fannst greinin þín GUÐLAST lýsa EES vitleysunni vel...Við ættum að losa okkur út úr EES samningnum og ALLS EKKI ganga í Evrópumiðstýringarofríkið og ALLS EKKI borga 1 eyri úr ríkissjóði fyrir Icesave-nauðungina. Icesave er skuld Björgólfs Thors og Landsbankans og kemur EU eða bresku og hollensku ríkisstjórnunum eða íslenska ríkissjóðinum ekki við. Og skömm að þeim Alþingismönnum sem hylma yfir og þagna. Og ekki síst öllum þeim sem kusu JÁ með Icesave. Voðalegt var að lesa skrif Péturs í færslu sem þú kallar EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN? Veit maðurinn ekkert um ofríki EU? Veit hann ekkert um ólögmæti Icesave?
ElleE

28. Júlí 2010

HLUTABRÉFIN HĆKKUĐU

Hlutabréf í Magma Energy á hlutabréfamarkaðnum í Toronto hafa hækkað í vikunni. Eftir blaðamannafund ríkisstjórnarinnar og loforðin um að "vinda ofan af einkavæðingunni", hækkuðu bréfin skarpt eða um 2%. Það er skoðun markaðarins á loforðum ...
Hreinn K

27. Júlí 2010

SORGARDAGUR!

...Doði virðist hafa runnið á hjartlæga aðgerðarsinna. Það lítur út fyrir að menn sjái ekki fyrir sér að hægt sé að snúa við þeirri hörmung sem við blasir, afsal hluta æðakerfis úr skjaldarmerki þjóðarinnar. Hverjar eru nú varnirnar. Goð í suðri fallið. Ég hef nú reyndar ekki talið að heppilegt að íslenzkir rekstrarmenn ættu að koma þar að og því í góðu lagi að semja við erlenda rekstrarstjóra, en fulltrúar okkar í samninganefnd verða þó að vera með réttu ráði þegar slíkir samningar eru gerðir. Aukinheldur vil ég benda á að dagurinn í dag 27 júlí mun talinn sorgardagur í hugum þorra fólks hér á landi enda upphaf spyrðingaráætlanna við ESB hafið. Vonandi tekst ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali

27. Júlí 2010

KVEĐJUR TIL JÓNS BJARNASONAR

...Ég bið þig að koma eftirfarandi á framfæri hér á síðunni gagnvart Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegsráðherra: Loks er kominn fram sjávarútvegsráðherra sem þorir að framkvæma. Framganga ráðherrans í kvótamálunum er til mikils sóma og jafnvel þó aðeins sé nartað í litlu tánna enn sem komið er, þá finnur risinn til. Vona að JB fái vinnufrið og hafir orku og vilja til áframhaldsins.
Bestu kveðjur,
Egill

25. Júlí 2010

EĐLISLĆG PERSÓNURÖSKUN?

...Afstaða öfgahópsins innan VG er síður en svo til að standa vörð um hagsmuni fátæks fólks á Íslandi. Það fer lítið fyrir efnislegri umræðu hjá þessu fólki og andstaða þess við menn og málefni virðist fremur eiga rætur í eðlislægri persónuröskun og athyglissýki frekar en trú á að það sé að vinna fátækum gott. Ef félagshyggjufólk leyfir sér að gagnrýna þennan hóp er því svarað með orðum eins og "síðsovésk viðhorf". Er það efnisleg umræða? Þessi hópur hefur haldið ríkisstjórninni í gíslingu og haldið aftur af efnahagslegum úrbótum og þar með dregið verulega úr þjónustu við fátækt fólk. Ég nefni afstöðu þess til Icesave málsins, ESB, sem það ...
Pétur

24. Júlí 2010

HUGSJÓNA- OG HAGSMUNAMENN

...Fyrir ekki löngu, nánar tiltekið fyrir tíu dögum, velti ég því fyrir mér hvort félagsmálaráðherrann og Samfylkingin væri að klofna í hugsjónamenn og hagsmunamenn. Í síðari hópnum væru til dæmis menn sem vildu gera Yngva Örn Kristinsson að forstjóra Húsnæðisstofnunar, Runólf Ágústsson að umboðsmanni skuldara og fyrrum stjórnarmann í FME og Seðlabanka að nýjum viðskiptaráðherra. Þetta er nú byrjað að ganga upp. Umboðsmaður skuldara er fundinn. Hann fannst í ...
Jóna Guðrún


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

8. Júlí 2010

Ţorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY

...Nú kemur til kasta ríkisstjórnarinnar. Vilji VG er skýr. Nú reynir á hvort tekið er mark á ályktunum flokksráðs VG. Það er ófrávíkjanleg krafa að orkuverum og orkuauðlindum verði haldið í almannaeigu. Þessa orustu verður að taka núna því mikið er í húfi. Fari sem horfir eru þessar mikilvægu auðlindir landsmanna komnar á útsölu á markaðstorg alþjóðlega auðvaldsins. Í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri segir í 12.gr.... Ráðherra í vinstri stjórn sem ekki nýtir sér lagaákvæði sem þetta til að verja landið fyrir ágangi alþjóðlegra fjármagnseigenda sem í engu munu gæta hagsmuna landsmanna, hlýtur að þurfa að hugsa sinn gang. Sama gildir um ríkisstjórnina alla enda hún öll ábyrg fyrir því hvernig...  

2. Júlí 2010

Baldur Andrésson skrifar: NÝ HÖLL Á HAFNARBAKKA

...Höllin er til menningar segja trúðarnir nú, þegar önnur viðskipti leyfa segja þeir. Tapið á viðskiptunum borgar þjóðin. Hver annar ! Hún verður falleg, nema í augum heimskingja, segja trúðar  og vitna í loddaraorð. Svo fín að allir gáfaðir falla í stafi. Í höllinni má kannski dansa, syngja, spila . Aðeins aumingjar efast, spyrja óþægilegra spurninga, velta vöngum. Ráðamenn og trúðar klappa einir. Þjóðin klórar sér í kollinum. Þjóðin þegir. Nú er bráðum sumarfrí. Sól á lofti. Þá fer þjóðin að grilla. Hallarævintýrið er ófullgerð saga og verður ...

28. Júní 2010

Björn Jónasson skrifar: NÝR GJALDMIĐILL

Vandræði okkar Íslendinga með krónuna okkar ástæru ætla engan enda að taka. Þau eru af tvennum toga. Annars vegar heldur hún illa sjó gagnvart öðrum gjaldmiðlum og hins vegar virðist hún þurfa hærri vexti til að hægt sé að stunda lánastarfsemi. Bent hefur verið á, að í raun séu tveir gjaldmiðlar í gangi í landinu, annars vegar króna og
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...

Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta