Annađ
26. Janúar 2010
AĐEINS MINNI ÚRTÖLUR!
Birtist í Fréttablaðinu 25.01.10.
Niðurskurðurinn í ríkisútgjöldum er farinn að segja til sín. Ýmsir staðhæfa að við séum að fara í hundana. Að Ísland muni einangrast ef við förum ekki í einu og öllu að vilja Breta og Hollendinga. En vanmetum ekki stöðu okkar. Kapítalisminn er ágengari en margir halda; túristinn frá München ætlar til Íslands í sumar hvað sem tautar og raular; Ikea ætlar að selja Jóni og Gunnu á Íslandi stól og borð -fiskkaupmaðurinn í Grimsby ætlar að koma íslenskum fisk á veitingahúsaborð í London. Hann ætlar ekki að einangra Ísland.
Vanmetum ekki heldur pólitíkina. Hún er okkur ekki að öllu leyti mótdræg. Gordon Brown þarf að sýna kjósendum sínum í tíma fyrir vorkosninguna í Bretlandi að hann kunni að laða fram lausnir. Hollenska ríkisstjórnin þarf nú að hlusta á kjósendur spyrja hvað Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn eigi við með því að segja að Ísland geti virkjað sig út úr vandanum. Er verið að tala um Gullfoss? Eða Geysi? Landmannalaugar? Er þetta kannski ekki milliríkjadeila? Er þetta barátta á milli málmbræðslunnar annars vegar og fossanna og hverasvæðanna hins vegar? Eða á milli á milli fólks og fjármagns, einsog skilja má á Alain Liebitz, evrópska þingmanninum sem tók þátt í smíði tilskipunar um tryggingasjóði innistæðueigenda? Hann segir að við séum að misskilja sitthvað í þeirri smíði. Bretar og Hollendingar misskilji hins vegar ekki neitt. Þeir séu einfaldlega að nýta sér vald sitt. Þeir kunni á gikkinn frá gamalli tíð. Allt þetta er tal sem Evrópa skilur.
Ísland mun rísa, mörg teikn eru á lofti um efnahagsbata. Margt gengur okkur í haginn. Ef þverpólitísk samstaða myndast um Icesave vænkast enn okkar hagur! Þá skapast forsendur til að ná betri niðurstöðu fyrir Ísland. Það væru góð tíðindi. Það er ekki nóg að fresta skuldadögum, það munar um hverja krónu sem við náum lántökum okkar niður. Nú er að tala kjarkinn upp. Og má biðja um aðeins minni úrtölur! Það myndi hjálpa.
Frá lesendum
31. Júlí 2010
UNDARLEGAR SPURNINGAR?
Ragnar Eiríksson
30. Júlí 2010
VATNIĐ OG RÍKISSTJÓRNIN
Pétur
29. Júlí 2010
ÓSVÍFIN HVATNING TIL ÁFENGISNEYSLU
Kristbjörn Árnason
29. Júlí 2010
FORSENDUR SJÁLFSTĆĐIS
Kveðja,
Ólína
29. Júlí 2010
ESB TIL ÓŢURFTAR
..Mér fannst greinin þín GUÐLAST lýsa EES vitleysunni vel...Við ættum að losa okkur út úr EES samningnum og ALLS EKKI ganga í Evrópumiðstýringarofríkið og ALLS EKKI borga 1 eyri úr ríkissjóði fyrir Icesave-nauðungina. Icesave er skuld Björgólfs Thors og Landsbankans og kemur EU eða bresku og hollensku ríkisstjórnunum eða íslenska ríkissjóðinum ekki við. Og skömm að þeim Alþingismönnum sem hylma yfir og þagna. Og ekki síst öllum þeim sem kusu JÁ með Icesave. Voðalegt var að lesa skrif Péturs í færslu sem þú kallar EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN? Veit maðurinn ekkert um ofríki EU? Veit hann ekkert um ólögmæti Icesave?
ElleE
28. Júlí 2010
HLUTABRÉFIN HĆKKUĐU
Hreinn K
27. Júlí 2010
SORGARDAGUR!
Óskar K Guðmundsson, fisksali
27. Júlí 2010
KVEĐJUR TIL JÓNS BJARNASONAR
Bestu kveðjur,
Egill
25. Júlí 2010
EĐLISLĆG PERSÓNURÖSKUN?
Pétur
24. Júlí 2010
HUGSJÓNA- OG HAGSMUNAMENN
Jóna Guðrún
Póstlisti
Frjálsir pennar
8. Júlí 2010
Ţorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY
2. Júlí 2010
Baldur Andrésson skrifar: NÝ HÖLL Á HAFNARBAKKA
28. Júní 2010
Björn Jónasson skrifar: NÝR GJALDMIĐILL
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...












