Annað
1. Febrúar 2010
HRAÐUPPHLAUP Á SPRENGISANDI

Fréttahaukurinn Sigurjón M. Egilsson á lof skilið fyrir þátt sinn Sprengisand á sunnudagsmorgnum á Bylgjunni. Sunnudagarnir eru orðnir mest spennandi fréttadagarnir með Sprengisandinn á Bylgjunni annars vegar og Silfur Egils á RÚV hins vegar. Þar var mættur fjölmiðlakappinn og fjármálarýnirinn Max Kaiser síðastliðinn sunnudag og fór hann á kostum gegn spákaupmennsku og græðgiskapítalisma. Hafði hann sitthvað að segja um Icesave, svo sem þá ósvinnu að fjárfesta fé sitt í áhættusjóði einsog allir hafi vitað að Icesave hafi verið með sína háu vexti og heimta síðan að skattborgarinn stæði undir tapinu ef illa færi! Það er nú það. Þar kemur regluverk ESB til sögunnar sem setur strik í reikninginn einsog við þekkjum. Sjá http://ruv.is/heim/ahugavert/nanar/store218/item323095/
En það er hraðupphlaup Sigurjóns M. Egilssonar á Sprengisandi sem er tilefni þessara skrifa minna. Þátturinn sem fjallaði um hrunið og aðdraganda þess var einstaklega vel unninn - af vandvirkni og skilningi. Sigurjón fór í gegnum gögn opinberra aðila, Seðlabankans og fleiri, og ræddi við valinkunna einstaklinga.
Af handahófi kemur upp í hugann ábending Þórðar Friðjónssonar Kauphallarforstjóra um að í árslok 2007 hafi Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sagt að horfur í efnahagslífi Íslands væru öfundsverðar! Það er nefnilega það. Þetta eru ráðgjafar okkar og leiðsögumenn. Skyldi vera meira að marka Alþjóðagjaldeyrissjóðinn núna?
Í þættinum heyrðum við óborganlegt viðtal við Hannes Hólmstein sem fjallaði um "dauðu" eignirnar sem vaktar voru til lífsins með einkavæðingunni og hve mikilvægt það væri að gefa nú hressilega í !!!
Umhugsunarverð var spurning Sigurjóns til Gylfa Zoega, prófessors við Háskóla Íslands um hvers vegna varnaðarorð hefðu ekki komið úr þeirri áttinni. Væri ekki eitthvað til sem héti borgaraleg skylda? Það eru takmörk fyrir því hvað „utanaðkomandi" aðilar gátu gert svaraði háskólaprófessorinn. Ekki er ég sammála þessu. Ég tel þvert á móti að það sé skylda akademíunnar að vera á tánum og þegar þjóðarhagur er í húfi er enginn „utanaðkomandi".
Sigurjóni vil ég þakka þennan eðalþátt og öllum þeim sem fram komu í honum - Gylfa Zoega og öðrum - og vörpuðu ljósi á viðfangsefnið.
Sjá: http://bylgjan.visir.is/?PageID=2666
Frá lesendum
11. Mars 2010
VATN Á MYLLU ANDSTÆÐINGA?
Svala Jónsdóttir
10. Mars 2010
ÞEGAR ÍHALDIÐ HRÓSAR...
Árni Magnússon
9. Mars 2010
ER SAGAN AÐ ENDURTAKA SIG?
einn óháður kjósandi VG
9. Mars 2010
VILL LÁTA SYNDA MEÐ STRAUMNUM
Gunnar
8. Mars 2010
MUN STJÓRNIN LIFA?
...Nú hafa fleiri en einn haldið því fram að "órólega deildin" í VG hafi líf ríkissjórnarinnar í hendi sér.Nú ráðist það fljótt hvort stjórnin lifi áfram eða ekki. Hver er þín skoðun?
Hrafn Arnarsson
8. Mars 2010
ERU PÓLITÍSK MARKMIÐ FRAMSÓKNAR EKKI SKÝR?
Hlynur Grímsson.
7. Mars 2010
ÓSKAÐ EFTIR SVARI
Viðar Magnússon
7. Mars 2010
TRÚARLEGT STEF?
Árni V.
6. Mars 2010
ÞJÓÐ, VALD OG ÁBYRGÐ
Þorkell Gunnarsson
6. Mars 2010
TRYGGVI ÞÓR KEMST EKKI
Þjóðólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
11. Mars 2010
Drífa Snædal skrifar: ÓTRÚLEGUR ÁRANGUR Í KVENFRELSI Á EINU ÁRI
19. Febrúar 2010
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir skrifar: RÉTT OG RANGT HJÁ JÓHÖNNU
...Um eitt er ég altént sammála Viðskiptaráði í nýrri ályktun: Það verður að passa að stjórnmálamenn láti ekki undan öflugum þrýstihópum. Samkvæmt reynslu fyrri ára hlýtur Viðskiptaráð þar að vera að vara við sjálfu sér og sínum eigin öflugu áhrifum innan Stjórnarráðsins á árunum fyrir hrun. Þökk sé höfð fyrir áminninguna. Hún er áríðandi sem aldrei fyrr og mál til komið að stjórnmálamenn hlusti meira á grasrótarsamtök fólksins í landinu heldur en hagsmunasamtök fjármagnsins...












