Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

18. September 2011

TREGĐULÖGMÁLIN OG LÝĐRĆĐIĐ

klukkan
Á ráðstefnu um lýðræði á vegum innanríkisráðuneytisins o.fl.  í Ráðhúsi Reykjavíkur  sl. miðvikudag sagði ég stoltur fyrir hönd sveitarfélaganna í landinu og Alþingis, frá nýjum lýðræðisákvæðum  í  frumvarpi um sveitarstjórnarlög sem þá var í vinnslu á þingi:
„Það er gleðilegt að nú skuli slíkur réttur í fyrsta sinn í þann veginn að verða leiddur í lög á Íslandi. Samkvæmt frumvarpi nýrra sveitarstjórnarlaga nægir að fimmtungur íbúa  í sveitarfélagi krefjist almennrar atkvæðagreiðslu, þá skal hún fara fram. Lýðræðisfélagið Aldan hefur vakið athygli á því að ganga hefði mátt lengra í þessari lagasmíð og hef ég skilning á því sjónarmiði  - en enginn neitar því þó að þarna er verið að stíga mjög mikilvægt skref í lýðræðisátt.  Sambærilegt ákvæði við það sem er að finna í nýjum sveitarstjórnarlögum þarf að komast inn í landslögin og inn í Stjórnarskrá lýðveldisins."

Of fljótur að fagna

Þarna var ég of fljótur á mér því sama dag og þetta var flutt, sendi Samband íslenskra sveitarfélaga erindi til innanríkisráðuneytisins og Alþingis með beiðni um að ekki yrði opnað eins mikið á beint lýðræði og þarna er gert! Og viti menn, samgöngunefnd Alþingis tók þessu fegins hendi, og setti skerðingartillögur í frumvarpið og komu mín mótmæli fyrir ekki.  Samkvæmt þessum tillögum getur sveitarstjórn ákveðið að fimmtungur kjósenda nægi ekki til að krefjast atkvæðagreiðslu eins og ég hafði lagt til, heldur getur hún hækkað hlutfallið í þriðjung ef henni svo býður við að horfa, og ekki verður heldur heimilt að krefjast atkvæðagreiðslu um fjármál sveitarfélagsins. Alþingi botnaði þetta ferli síðan í atkvæðagreiðslu  þar sem yfirgnæfandi meirihluti samþykkti skerðinguna, allir ráðherrar nema við Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og þingmennirnir Atli Gíslason, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Lilja Mósesdóttir og Þór Saari! Einhverjar fjarverur í þinginu kunna að skýra að ekki voru fleiri í þessum hópi. En þetta var semsagt vilji Alþingis og ekkert  við því að segja . Þingið á að ráða, ekki framkvæmdavaldið. Ekki er það heldur ámælisvert þótt ráðherrar greiði atkvæði sitt á hvað. Enginn á kröfu á samstöðu samráðherra sinna við eigin baráttumál ef aðrir ráðherrar hafa sannfæringu fyrir öðru. Við atkvæðagreiðslu á Alþingi eru þeir fyrst og fremst þingmenn. Þannig á þetta að vera, að hver og einn láti eigin sannfæringu sína ráða. Annað drepur stjórnmálin. Slekkur neistann innra með mönnum. Í stjórnmálum hefur verið gert alltof mikið úr samræmdu göngulagi. Það hefur lengi verið mín sannfæring að í stjórnarmeirihluta eigi það viðhorf að vera ríkjandi, og þykja eðlilegt, að við atkvæðagreiðslu kunni  einstakir þinngmenn og ráðherrar að hafa skiptar skoðanir. Ríkisstjórn á ekki að standa og falla með samræmingu í öllum málum.  

Lýðræði í orði og á borði 

Ekki svo að skilja að almennt sé litið á afdrif lýðræðisins í nýrri sveitarstjórnarlöggjöf sem úrslitaatriði. Sjálfum þykir mér þetta þó vera stórt mál. Og sannast sagna kom það mér nokkuð á óvart hve eindregið Alþingi var á því að setja inn takmarkanir á þær tillögur sem fyrir lágu. Sérstaklega kom þetta á óvart  eftir allt lýðræðistalið fyrir nánast allar undangengnar kosningar - gott ef ekki síðustu áratugina. Þegar á hólminn kemur reyna fulltrúar í sveitarstjórnum og á Alþingi að hamla gegn og tefja lýðræðisþróunina. Það sannaðist við þessa atkvæðagreiðslu  þrátt fyrir að ég vildi trúa öðru.
Í fyrrnefndi ræðu á lýðræðisráðstefnunni í Ráðhúsinu hafði ég reyndar vikið að tregðulögmálum í fulltrúalýðræðinu:
Við skulum ekki  „... fara í grafgötur með að í framkvæmd lýðræðis er ekki allt slétt og fellt. Þar er að finna togstreitu af ýmsu tagi. Þannig er í rauninni ekkert undarlegt að stofnanakerfi stjórnmálanna sé efins um beint lýðræði. Ástæðan er sú að margir stjórnmálamenn líta á beint lýðræði sem ógn við tilveru sína. Beint lýðræði komi til með að fækka  þeim viðfangsefnum og ákvörðunum sem þeir eru nú einir um. Síðan er það að sjálfsögðu hitt að krafan um almenna atkvæðagreiðslu er oftar en ekki sett fram vegna óánægju með ákvarðanir eða ákvarðanaleysi stjórnmálamanna. Krafan um almenna atkvæðagreiðslu verður þannig auðveldlega skilin af þeirra hálfu sem vantraust á þá og án efa er oft nokkuð til í því."  

„Kosið á milli lýðræðis annars vegar og fulltrúavalds hins vegar"

Breytingin sem meirihluti Alþingis gerði á frumvarpinu var að hækka hlutfall kjósenda til að knýja fram atkvæðagreiðslu og setja í lögin bannákvæði um að krefjast megi kosninga um fjármál sveitarfélaganna í almennri lýðræðislegri kosningu. Þetta er gert þótt samkvæmt sömu lögum sé niðurstaða kosninganna ekki bindandi!
 Þessu verður án efa breytt í framtíðinni. Þegar fram líða stundir mun aukinn lýðræðisréttur knúinn fram. Þar mun koma að fulltrúavaldið sjái sig nauðbeygt til að svara kalli tímans. En heldur er hlutskiptið dapurlegt fyrir fulltrúavaldið að þurfa að koma lötrandi á eftir í þessari þróun. Við atkvæðagreiðsluna á Alþingi sagði ég að nú væri kosið á milli lýðræðis annars vegar og fulltrúavalds hins vegar. Og það fór sem fór.

Hér má finna  atkvæðaskýringu mína á þingi í dag: http://www.althingi.is/altext/raeda/139/rad20110917T173800.html  --------------------------------------------------
Svona var 108. grein í frumvarpi til sveitarstjórnarlaga:
"Ef minnst 10% af þeim sem kosningarrétt eiga í sveitarfélagi óska borgarafundar skv. 105. gr. skal sveitarstjórn verða við því svo fljótt sem unnt er. Hið sama á við ef minnst 20% af þeim sem kosningarrétt eiga í sveitarfélagi óska almennrar atkvæðagreiðslu skv. 107. gr. Sveitarstjórnin á þó ákvörðunarvald um framkvæmd viðkomandi viðburðar og þá spurningu sem borin verður upp sé um að ræða almenna atkvæðagreiðslu meðal íbúa sveitarfélagsins. Um framkvæmd borgarafundar fer eftir ákvæði 105. gr. Um framkvæmd almennrar atkvæðagreiðslu meðal íbúa sveitarfélags fer eftir ákvæði 107. gr.
Almennrar atkvæðagreiðslu skv. 107. gr. verður hvorki krafist um ráðningu í störf hjá sveitarfélagi né tillögu sem gengur gegn lögum eða mundi leiða til þess að lagaskyldu yrði ekki fullnægt af hálfu sveitarfélagsins.
Ráðuneytið skal í reglugerð mæla nánar fyrir um það hvernig staðið verður að söfnun undirskrifta eða annarrar staðfestingar á ósk íbúa skv. 1. mgr. Þar má m.a. kveða á um að undirskriftir skuli lagðar fram á sérstöku eyðublaði sem ráðuneytið eða viðkomandi sveitarfélag lætur gera eða að staðfesting skulu lögð fram rafrænt á nánar tiltekinn hátt. Sé mælt fyrir um rafræna staðfestingu skal þó ávallt jafnframt gefinn kostur á að undirskriftir verði lagðar fram skriflega á þar til gerðum eyðublöðum.
Við mat á því hvort tilskilinn fjöldi hafi lagt fram ósk skv. 1. mgr. skal miðað við þá einstaklinga sem uppfylla skilyrði 2. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna á þeim degi sem söfnun staðfestingar lýkur samkvæmt kjörskrárstofni sem Þjóðskrá Íslands lætur sveitarfélagi í té.

Breytingartillagan sem samþykkt var:
 5.      Í stað 1. og 2. mgr. 108. gr. komi þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi: 
Ef minnst 10% af þeim sem kosningarrétt eiga í sveitarfélagi óska borgarafundar skv. 105. gr. skal sveitarstjórn verða við því svo fljótt sem unnt er. Um framkvæmd borgarafundar fer eftir ákvæði 105. gr.
Ef minnst 20% af þeim sem kosningarrétt eiga í sveitarfélagi óska almennrar atkvæðagreiðslu skv. 107. gr. skal sveitarstjórn verða við því eigi síðar en innan árs frá því að slík ósk berst. Sveitarstjórn er heimilt að ákveða hærra hlutfall í samþykkt um stjórn sveitarfélags en þó aldrei hærra en þriðjung þeirra sem kosningarrétt eiga í sveitarfélagi. Sveitarstjórnin á ákvörðunarvald um framkvæmd viðkomandi viðburðar og þá spurningu sem borin verður upp sé um að ræða almenna atkvæðagreiðslu meðal íbúa sveitarfélagsins. Um framkvæmd almennrar atkvæðagreiðslu meðal íbúa sveitarfélags fer eftir ákvæði 107. gr.
 Almennrar atkvæðagreiðslu skv. 107. gr. verður ekki krafist um efni fjárhagsáætlunar skv. 62. gr. og viðauka skv. 63. gr., um tekjustofna sveitarfélaga eða álagningu annarra lögheimilla gjalda, um ráðningu í störf hjá sveitarfélagi, um laun og önnur starfskjör sveitarstjórnarmanna eða starfsmanna sveitarfélags eða tillögu sem gengur gegn lögum eða mundi leiða til þess að lagaskyldu yrði ekki fullnægt af hálfu sveitarfélagsins.
--------

Rétt er að hafa í huga að niðurstaða atkvæðagreiðslu er samkvæmt 107. grein frumvarpsins eins og það var lagt fram af minni hálfu  (nú laga) ekki bindandi!
Í 107. grein segir um þetta: „Atkvæðagreiðsla samkvæmt þessari grein, sem og 108. gr., er ráðgefandi nema sveitarstjórn ákveði að hún skuli binda hendur hennar til loka kjörtímabils. Í auglýsingu skv. 2. mgr. skal koma fram hvort atkvæðagreiðsla er bindandi. Slíka ákvörðun má binda skilyrði um að tiltekið hlutfall þeirra sem voru á kjörskrá hafi tekið þátt í atkvæðagreiðslu."
Þetta ákvæði var gagnrýnt af grasróta- lýðræðissinnum eins og áður er vikið að.
 


  


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

16. Maí 2013

BRETAR OG MANN-RÉTTINDA-DÓMSTÓLLINN

... Teresa May innanríkisráðherra Breta hefur staðið í ströngu að koma dæmdum brottvísuðum öfgaklerki frá Bretlandi en hefur þó þar ríkisfang þar sem hann sé álíka hættulegur og Bin Laden. Þá bregðast dómarar við og dæma honum í vil slag í slag á öllum dómstigum að honum verði misþyrmt jafnvel þótt hann byggi í tjaldi á Gobi eyðimörkinni. Þetta hefur nú þegar kostað þá í málaferli yfir 600 milljónir punda fyrir utan að halda uppi fjölskyldu hans í luxusvillu í Mayfair hverfinu og ríflegum vasapeningum á meðan allt er skorið við nögl hjá heimamönnum. Frúin hefur gefið það út að ætli hæstiréttur landsins að ...
Þór Gunnlaugsson

16. Maí 2013

FRJÁLST FLĆĐI

...Örlítil hugvekja að allfögrum sunnudagsmorgni. Heyrði fyrir ekki all löngu að nú væri að opnast fyrir hið endanlega frjálsa flæði sem ekki hefur svo lítið verið dásamað í umæðu ESB unnenda. Bretar sem eru svo lánsamir að vera bara svona B- gaurar í ESB og hafa hafnað Schengen og Evru hafa gefið það sterkt út að þeir muni ekki flykkjast á Heathrow til að taka á móti þykkum hópum frá Búgaríu eða ég nefni nú ekkI Rúmenum sem einhverra hluta vegna virðist ekki meðal þeirra hjartfólgnustu heimsækjenda hins vestræna heims. Ekki mun okkar ...
Óskar K Guðmundsson fisksali

12. Maí 2013

ÝMIS SPJÓT

Jæja minn kæri nú er að standa sig sem aldrei fyrr, ýmis spjót eru aðstandandi en niðurstaða þeirra mála sem hæst bera þarf að vera í samræmi við þarfir okkar í samfélaginu.
Kær kveðja,
Óskar K Guðmundsson fisksali

6. Maí 2013

GENGUR VONUM FRAMAR AĐ...

Okkur er sagt að vel gangi í viðræðum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknaflokksins um myndun ríkisstjórnar. Fundarstaðurinn var leynilegur. Það er táknrænt. En fjölmiðlar fundu út að fundað var í sumarbústað pabba annars þeirra Bjarna eða Sigmundar Davíðs við Þingvallavatn. Kannski líka táknrænt. Þeir standa einir í viðræðunum með ritara með sér. Táknrænt. Þetta er allt að...
Sunna Sara 

5. Maí 2013

NAUĐSYNLEGT AĐ RĆĐA OPNUM HUGA

Sæll Ögmundur og þakka vangaveltur þínar um úrslit kosninga. Ég sé ekki betur en þú bregðist við ákalli stuðningsmanna félagshyggjuflokka um að leiðtogarnir fari yfir stöðu mála og leiti skýringa á afhroðinu. Það er mikilvægt að það sé gert með opnum huga en ekki einvörðungu til að viðhalda því hugmyndakerfi sem kom mönnum í ógöngur til að byrja með. Ég vil þó bæta einu hráefni í uppskriftina sem ég tel vera uppistöðuna í þessu en þú virðist ekki sjá, e.t.v. vegna nálægðar þinnar við viðfangsefnið. Þar vísa ég til ...
H.P.

4. Maí 2013

Á AFTUR AĐ STELA ÍSLANDI?

Ég hélt að Framsókn væri búin að ganga í endurnýjun lífdagana. Svo er ekki, á leiðinni í spillingarsængina með Íhaldinu. Ég veit um fólk sem kaus Framsókn á nýjum forsendum og er nú miður sín. Sér ákefðina að komast að kjötkötlunum. Skyldu Ólafur í Samskip og Finnur í Frumherja byrjaðir að skála? Fleiri verkefni sem taka má frá ríkinu ...
Sunna Sara 

4. Maí 2013

ATHYGLISVERĐ MÁLSTOFA

...Þar sem mikið er um að vera í henni veröld og allir sem fást við stjórnmál eru önnum kafin, þá gefst ekki tími að njóta fróleiks og fræðslu. Málstofan sem ég vék að hér á síðu þinni í Landsbókasafni um Eirík bókavörð í Cambridge var ágæt. Þar sem eg tel efni hennar hafa verið áhugavert þá leyfi eg mér að senda þér niðurlagskaflann í erindi mínu sem flestir mættu skoða. Erindið fjallaði um ritskoðun sem Eiríkur var beittur og samskipti Eiríks og Skúla Thoroddsen. Las eg nýfundna heimild ...
Guðjón Jensson

4. Maí 2013

ŢAKKIR

Vildi bara lýsa yfir mikilli ánægju minni með gjörning þinn varðandi jarðakaup erlendra aðila á Íslandi. Takk fyrir.
Ísak Pétur Lárusson

2. Maí 2013

STÖĐVAĐU GRISJUN Í ÖSKJUHLÍĐ!

....Ef þú ert ábyrgur fyrir yfirvofandi grisjun í Öskjuhlíðinni þá verðuru að stöðva það. Þetta er út í hött! Geriru þér ekki grein fyrir mikilvægi skóga? Við ættum að eyða mun meiri orku og peningum í skógrækt. Við ættum að vera að kenna börnum samfélagsins að rækta. Eina gáfulega leiðin til framtíðar er ræktun skóga, matvara og annarra nytjaplantna. Börn þurfa að læra að rækta eigin mat. Við þurfum að sporna gegn veruleikafirringu barnanna okkar! Ekkert er mikilvægara en það sem vex, og þá á ég auðvitað ekki við ...
Konráð Bragason

2. Maí 2013

NÚ SKRÍĐA BRASKARA-ÖFLIN FRAM

Sæll Ögmundur, svona fór þetta þá, hvers vegna ríkisstjórnin lét ekki setja saman áróðurskver til að dreifa inn á hvert heimili í landinu, n.k. „Hvítri bók" hefði verið æskilegt. Leyfi ég mér að nefna gærdaginn „Svartasta dag íslenskrar stjórnmálasögu". Erfiðasta hlutverk nokkurrar ríkisstjórnar á Íslandi var sett undir mælistiku í þingkosningunum í gær. Furðulegt má það vera að tiltektarstarfið eftir frjálshyggjupartíð virðist einskis vera metið. Aldrei áður hefur nokkur ríkisstjórn á Íslandi orðið fyrir jafnmiklum erfiðleikum og ríkisstjórn Jóhönnu og fall hennar er mikið eftir óvægan áróður. Nú geta braskara- og spillingaröflin skriðið fram úr skúmaskotum sínum ...
Guðjón Jensson, Mosfellsbæ


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

3. Maí 2013

Helgi Guđmundsson skrifar: UM ORSÖK OG AFLEIĐINGU

...Las greiningu þína á kosningaúrslitunum á heimasíðunni, sem mér finnst um margt umhugsunarverð. Mörgu er ég sammála, enda þótt ég hafi ekki lagst í jafn djúpar pælingar og þú. Í öllu falli verður fróðlegt að sjá hverni SDG gengur að koma saman stjórn, og hvort hann velur að gera alvöru tilraun til vinstri. Mér fannst reyndar vanta hjá þér - og það skiptir miklu máli - að helmingur þjóðarinnar kaus ekki til hægri. Líklega meira en helmingur, því af gamalli reynslu veit ég að innan Framsóknar eru vinstri sinnuð öfl, sem í mörgum málum eru ...

25. Apríl 2013

EINAR ÁRNASON HAGFRĆĐINGUR: STÖĐVUM ÓSANNINDIN

Þannig jókst skattbyrði lægstu tekjuhópanna um 10 til 13,5% á þessum tíma en þáverandi stjórnvöld fullyrtu að þeir hefðu samt lækkað. Þessi aukna skattbyrði var vegna þess að skattleysismörk lækkuðu að raungildi þessi ár svo almenningur var að borga skatta af stærri hluta tekna sinna en áður... Sjálfstæðismennirnir sögðu ósatt allan tímann og Framsóknarmennirnir...

20. Apríl 2013

Einar Árnason skrifar: OPIĐ BRÉF TIL FORYSTU-MANNA FRAMSÓKNAR-FLOKKS OG SJÁLFSTĆĐIS-FLOKKS: SVAR ÓSKAST

...Hrunflokkarnir núverandi, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn, lofa miklu? Hvar er innihaldið? Hvar er útfærslan? Er þetta ekki sama og með loforð helmingaskiptaflokkanna, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins, um einkavæðingu ríkisbankanna í dreifða eignaraðild sem vitað er að aldrei stóð til , þó því hafi verið logið að íslenskum almenningi í fjölda ára þ.e. um Landsbanka og KB banka. Þeir slógu það sjálfum sér eins og segir í ævisögu séra Árna Þórarinssonar um sýslumanninn og Sigurð svinakarl sem nöppuðu fé og jörðum frá Guðmundi dúllara. Í þessari helmingaskiptingu milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks greiddu þeir á víxl með lánsfé frá hinum ríkisbankanum.  Svik á víxl. Hvað skyldi forystumönnum...

Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta