Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

13. Júlí 2012

FRÁFARANDI BISKUP ÍSLANDS HEIĐRAĐUR

karl sigurbj 2Í gær efndi Innanríkisráuneytið til samsætis í Þjóðmenningarhúsinu til heiðurs Karli Sigurbjörnssyni fráfarandi Biskupi Íslands og konu hans Kristínu Guðjónsdóttur. Af þessu tilefni flutti ég nokkur ávarpsorð sem hér fylgja:

Það er við hæfi að halda þessa þakkarstund til heiðurs biskupshjónunum, Karli Sigurbjörnssyni og Kristínu Guðjónsdóttur hér í Þjóðmenningarhúsinu. Íslensk menning og Þjóðkirkjan eru samofin í fortíð og samtíð og mun svo verða á ókomnum árum. Saman hafa biskupshjónin haldið merki íslenskrar menningar hátt á loft, innan lands sem utan.  Fyrir það ber að þakka.

Til þessarar samverustundar buðum við - Innanríkisráðuneytið, ráðuneyti kirkjumála -  börnum þeirra hjóna og nánasta samstarfsfólki biskups. Biskup Íslands, Agnesi M. Sigurðardóttur vil ég bjóða sérstaklega velkomna svo og vígslubiskupa og prófasta í Reykjavíkurprófastsdæmi.

Karl Sigurbjörnsson á það sannarlega skilið að vera vel kvaddur og honum þakkað af hálfu stjórnvalda fyrir starf og framlag sem Biskup Íslands og það er mér mikið ánægjuefni að sjá ykkur öll hér í dag.

Karl Sigurbjörnsson biskup var einlægur og heill í þjónustu sinni sem Biskup Íslands og vann margt afburða vel, einkum í boðun sinni og áherslum um þjónandi kirkjustarf. Mér þótti alltaf aðdáunarvert hve víðsýnn og velviljaður Karl var gagnvart öðrum trúfélögum. Þar sýndi hann mikla visku og styrk.

Reyndar sýndi Karl það margoft að hann er glöggskyggn og hugsjónaríkur maður. Hann hélt vel áttum í hillingum gróðærisins, andmælti yfirlæti, misskiptinu og varasömum viðmiðunum og mammonsvaldi, og hlaut þá oft bágt fyrir hjá þeim sem þótti að sér vegið.

Kirkju- og safnaðarstarf efldist verulega í embættistíð Karls Sigurbjörnssonar. Kreppan kom þó illa við þjóðkirkjuna bæði sem félagslega hreyfingu og stofnun og dapurleg mál sem sem við öll þekkjum svo og innri vandkvæði, juku á raunirnar. Árásargjarnir menn  neyttu færis að vega sem grimmilegast að kirkjunni og varð um margt vel ágengt við að rjúfa samstöðu kirkju og þjóðar.

Þegar við bættist að lögvarin kjör kirkjunnar voru ótæpilega skert af stjórnvöldum, kreppti enn frekar að og innri stoðir kirkjustarfsins veiktust óhjákvæmilega við uppsögn starfsmanna svo að kirkjan gat ekki sinnt sóknarfólki og skjólstæðingum sínum, eins og hún hefði kosið, einmitt þegar mest var þörf á því.

Við þetta allt þurfti Karl sem biskup Íslands að glíma og varð auðvitað þreyttur á fangbrögðunum og fór því af velli fyrr en skyldi.

En af vellinum fer hann með sæmd og þannig mun sagan dæma hann og verk hans. Ég vænti þess að Karl Sigurbjörnsson muni á komandi tíð - sem fyrr - leggja kirkju sinni og þjóðlífi dýrmætt lið með vitnisburði sínum og verkum.

Mig langar til að segja ykkur að lengi hefur verið einhver ljúfur strengur á milli okkar Karls - strengur af því tagi sem aðeins er ofinn á vissu skeiði ævinnar. Þótt við höfum ekki hist mjög oft um dagana, þá gleymir hvorugur því, hygg ég, þegar við vorum sessunautar í Þrúðvangi einn vetur á menntaskólaárum okkar. Þetta var í 4. bekk Mennataskólans í Reykjavík. Þá fékk ég að kynnast góðum dreng.

Og þessi góðmennska og hlýja finnst mér birtast vel og fallega í þessum óði Karls biskups til lífsins og náttúrunnar, gróðursins; sumarblómans og guðdómsins:

Nú skrúða grænum skrýðist fold
og skæru augun ljóma
er fagna blómin frelsi' úr mold
og frosts og vetrar dróma.
Nú barna raddir blíðar tjá
að birtan sigrað hefur
og allt í náð umvefur.

Í laufi fuglinn, lamb í hjörð
og lóa frjáls í heiði
þá lofgjörð inna lífs sem jörð
á löngum vetri þreyði.
Af gleði óma götur, torg
og gleði birtir sanna
öll önn og iðja manna.

Þú Guð, sem sumar gefur jörð
og gleði barna þinna,
gef allri þinni eignarhjörð
þá elsku' og gleði' að finna
og lúta þér í lotning, trú,
að lífi öllu hlúa,
sem systkin saman búa.

Eftirminnileg er mér predikun Karls í Dómkirkjunni í Reykjavík á Sjómannadaginn í fyrra. Mér er hún einkum eftirminnileg fyrir tvennt. Vísdóminn sem þar var að finna og síðan það af hve mikilli virðingu og hlýju hann talaði um tengdaföður sinn. Biskup rifjaði upp samtal sem hann hafði átt við Guðjón tengdaföður sinn, sem verið hafði sjómaður. Fræddi hann tengdason sinn um hættur hafsins úti fyrir sjávarþorpinu þar sem hann bjó. Þar voru ótal sker. „Þekkturðu þau öll," spurði tengdasonurinn. „Nei, en ég þekkti leiðina á milli þeirra!"
Þetta þótti mér skemmtilegt svar með djúpa merkingu. Vissulega eru það ekki bara hættur sem við þurfum að þekkja heldur líka þær leiðir sem vel hafa gefist!

Karl Sigurbjörnsson, biskup hefur í lífi sínu og með lífi sínu lagt sig fram um að stýra samfélagi okkar á milli skerjanna. Ótal sker og boðaföll hafa verið á vegferð okkar Íslendinga á undanförnum erfiðleikaárum í þjóðlífinu.
En hér erum við samt og horfum móti bjartari tíð og það þökkum við mönnum eins og Karli Sigubjörnssyni.
Heill þér og þinni góðu eiginkonu og fjölskyldu ykkar. Blessun og gæfa fylgi þér og ykkur öllum á komandi tíð.

Sjá nánar: http://www.innanrikisraduneyti.is/frettir/nr/28156
og http://mbl.is/frettir/innlent/2012/07/13/helt_vel_attum_i_hillingum_grodaerisins/
Biskupshjon, Ogm og Vala
 Biskupshjónin, Kristín Guðjónsdóttir og Karl Sigurbjörnsson, ásamt Ögmundi Jónassyni og konu hans, Valgerði Andrésdóttur.

 


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

16. Maí 2013

BRETAR OG MANN-RÉTTINDA-DÓMSTÓLLINN

... Teresa May innanríkisráðherra Breta hefur staðið í ströngu að koma dæmdum brottvísuðum öfgaklerki frá Bretlandi en hefur þó þar ríkisfang þar sem hann sé álíka hættulegur og Bin Laden. Þá bregðast dómarar við og dæma honum í vil slag í slag á öllum dómstigum að honum verði misþyrmt jafnvel þótt hann byggi í tjaldi á Gobi eyðimörkinni. Þetta hefur nú þegar kostað þá í málaferli yfir 600 milljónir punda fyrir utan að halda uppi fjölskyldu hans í luxusvillu í Mayfair hverfinu og ríflegum vasapeningum á meðan allt er skorið við nögl hjá heimamönnum. Frúin hefur gefið það út að ætli hæstiréttur landsins að ...
Þór Gunnlaugsson

16. Maí 2013

FRJÁLST FLĆĐI

...Örlítil hugvekja að allfögrum sunnudagsmorgni. Heyrði fyrir ekki all löngu að nú væri að opnast fyrir hið endanlega frjálsa flæði sem ekki hefur svo lítið verið dásamað í umæðu ESB unnenda. Bretar sem eru svo lánsamir að vera bara svona B- gaurar í ESB og hafa hafnað Schengen og Evru hafa gefið það sterkt út að þeir muni ekki flykkjast á Heathrow til að taka á móti þykkum hópum frá Búgaríu eða ég nefni nú ekkI Rúmenum sem einhverra hluta vegna virðist ekki meðal þeirra hjartfólgnustu heimsækjenda hins vestræna heims. Ekki mun okkar ...
Óskar K Guðmundsson fisksali

12. Maí 2013

ÝMIS SPJÓT

Jæja minn kæri nú er að standa sig sem aldrei fyrr, ýmis spjót eru aðstandandi en niðurstaða þeirra mála sem hæst bera þarf að vera í samræmi við þarfir okkar í samfélaginu.
Kær kveðja,
Óskar K Guðmundsson fisksali

6. Maí 2013

GENGUR VONUM FRAMAR AĐ...

Okkur er sagt að vel gangi í viðræðum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknaflokksins um myndun ríkisstjórnar. Fundarstaðurinn var leynilegur. Það er táknrænt. En fjölmiðlar fundu út að fundað var í sumarbústað pabba annars þeirra Bjarna eða Sigmundar Davíðs við Þingvallavatn. Kannski líka táknrænt. Þeir standa einir í viðræðunum með ritara með sér. Táknrænt. Þetta er allt að...
Sunna Sara 

5. Maí 2013

NAUĐSYNLEGT AĐ RĆĐA OPNUM HUGA

Sæll Ögmundur og þakka vangaveltur þínar um úrslit kosninga. Ég sé ekki betur en þú bregðist við ákalli stuðningsmanna félagshyggjuflokka um að leiðtogarnir fari yfir stöðu mála og leiti skýringa á afhroðinu. Það er mikilvægt að það sé gert með opnum huga en ekki einvörðungu til að viðhalda því hugmyndakerfi sem kom mönnum í ógöngur til að byrja með. Ég vil þó bæta einu hráefni í uppskriftina sem ég tel vera uppistöðuna í þessu en þú virðist ekki sjá, e.t.v. vegna nálægðar þinnar við viðfangsefnið. Þar vísa ég til ...
H.P.

4. Maí 2013

Á AFTUR AĐ STELA ÍSLANDI?

Ég hélt að Framsókn væri búin að ganga í endurnýjun lífdagana. Svo er ekki, á leiðinni í spillingarsængina með Íhaldinu. Ég veit um fólk sem kaus Framsókn á nýjum forsendum og er nú miður sín. Sér ákefðina að komast að kjötkötlunum. Skyldu Ólafur í Samskip og Finnur í Frumherja byrjaðir að skála? Fleiri verkefni sem taka má frá ríkinu ...
Sunna Sara 

4. Maí 2013

ATHYGLISVERĐ MÁLSTOFA

...Þar sem mikið er um að vera í henni veröld og allir sem fást við stjórnmál eru önnum kafin, þá gefst ekki tími að njóta fróleiks og fræðslu. Málstofan sem ég vék að hér á síðu þinni í Landsbókasafni um Eirík bókavörð í Cambridge var ágæt. Þar sem eg tel efni hennar hafa verið áhugavert þá leyfi eg mér að senda þér niðurlagskaflann í erindi mínu sem flestir mættu skoða. Erindið fjallaði um ritskoðun sem Eiríkur var beittur og samskipti Eiríks og Skúla Thoroddsen. Las eg nýfundna heimild ...
Guðjón Jensson

4. Maí 2013

ŢAKKIR

Vildi bara lýsa yfir mikilli ánægju minni með gjörning þinn varðandi jarðakaup erlendra aðila á Íslandi. Takk fyrir.
Ísak Pétur Lárusson

2. Maí 2013

STÖĐVAĐU GRISJUN Í ÖSKJUHLÍĐ!

....Ef þú ert ábyrgur fyrir yfirvofandi grisjun í Öskjuhlíðinni þá verðuru að stöðva það. Þetta er út í hött! Geriru þér ekki grein fyrir mikilvægi skóga? Við ættum að eyða mun meiri orku og peningum í skógrækt. Við ættum að vera að kenna börnum samfélagsins að rækta. Eina gáfulega leiðin til framtíðar er ræktun skóga, matvara og annarra nytjaplantna. Börn þurfa að læra að rækta eigin mat. Við þurfum að sporna gegn veruleikafirringu barnanna okkar! Ekkert er mikilvægara en það sem vex, og þá á ég auðvitað ekki við ...
Konráð Bragason

2. Maí 2013

NÚ SKRÍĐA BRASKARA-ÖFLIN FRAM

Sæll Ögmundur, svona fór þetta þá, hvers vegna ríkisstjórnin lét ekki setja saman áróðurskver til að dreifa inn á hvert heimili í landinu, n.k. „Hvítri bók" hefði verið æskilegt. Leyfi ég mér að nefna gærdaginn „Svartasta dag íslenskrar stjórnmálasögu". Erfiðasta hlutverk nokkurrar ríkisstjórnar á Íslandi var sett undir mælistiku í þingkosningunum í gær. Furðulegt má það vera að tiltektarstarfið eftir frjálshyggjupartíð virðist einskis vera metið. Aldrei áður hefur nokkur ríkisstjórn á Íslandi orðið fyrir jafnmiklum erfiðleikum og ríkisstjórn Jóhönnu og fall hennar er mikið eftir óvægan áróður. Nú geta braskara- og spillingaröflin skriðið fram úr skúmaskotum sínum ...
Guðjón Jensson, Mosfellsbæ


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

3. Maí 2013

Helgi Guđmundsson skrifar: UM ORSÖK OG AFLEIĐINGU

...Las greiningu þína á kosningaúrslitunum á heimasíðunni, sem mér finnst um margt umhugsunarverð. Mörgu er ég sammála, enda þótt ég hafi ekki lagst í jafn djúpar pælingar og þú. Í öllu falli verður fróðlegt að sjá hverni SDG gengur að koma saman stjórn, og hvort hann velur að gera alvöru tilraun til vinstri. Mér fannst reyndar vanta hjá þér - og það skiptir miklu máli - að helmingur þjóðarinnar kaus ekki til hægri. Líklega meira en helmingur, því af gamalli reynslu veit ég að innan Framsóknar eru vinstri sinnuð öfl, sem í mörgum málum eru ...

25. Apríl 2013

EINAR ÁRNASON HAGFRĆĐINGUR: STÖĐVUM ÓSANNINDIN

Þannig jókst skattbyrði lægstu tekjuhópanna um 10 til 13,5% á þessum tíma en þáverandi stjórnvöld fullyrtu að þeir hefðu samt lækkað. Þessi aukna skattbyrði var vegna þess að skattleysismörk lækkuðu að raungildi þessi ár svo almenningur var að borga skatta af stærri hluta tekna sinna en áður... Sjálfstæðismennirnir sögðu ósatt allan tímann og Framsóknarmennirnir...

20. Apríl 2013

Einar Árnason skrifar: OPIĐ BRÉF TIL FORYSTU-MANNA FRAMSÓKNAR-FLOKKS OG SJÁLFSTĆĐIS-FLOKKS: SVAR ÓSKAST

...Hrunflokkarnir núverandi, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn, lofa miklu? Hvar er innihaldið? Hvar er útfærslan? Er þetta ekki sama og með loforð helmingaskiptaflokkanna, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins, um einkavæðingu ríkisbankanna í dreifða eignaraðild sem vitað er að aldrei stóð til , þó því hafi verið logið að íslenskum almenningi í fjölda ára þ.e. um Landsbanka og KB banka. Þeir slógu það sjálfum sér eins og segir í ævisögu séra Árna Þórarinssonar um sýslumanninn og Sigurð svinakarl sem nöppuðu fé og jörðum frá Guðmundi dúllara. Í þessari helmingaskiptingu milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks greiddu þeir á víxl með lánsfé frá hinum ríkisbankanum.  Svik á víxl. Hvað skyldi forystumönnum...

Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta