ÓVÆNT ÚTSPIL Í KVÓTAMÁLUM
Nokkur blaðaskrif hafa orðið síðustu daga í kjölfar Opins
bréfs til Samfylkingarfólks, sem ég birti í Morgunblaðinu
fyrir rúmri viku. Helgi Hjörvar skrifaði á meðal annarra ágæta
grein í Morgunblaðið þar sem hann vék að ýmsum málefnum, sem
Vinstrihreyfingin grænt framboð og Samfylkingin hafi verið sammála
eða ósammála um eftir atvikum en tilefni þessara greinaskrifa voru
einmitt möguleikar þessara tveggja flokka á samstarfi; nokkuð sem
ég hef talið fýsilegan kost.
Enda þótt Helgi byði VG til samstarfs í fyrirsögn greinar sinnar
kom í ljós þegar sjálf greinin var lesin að hann sá á þessu ýmsa
annmarka og vék hann t.d. að kvótamálum með eftirfarandi hætti:
"Við höfum líka kynnt tillögur um að endurheimta auðlindirnar í
þjóðareigu og gera til þeirra arðsemiskröfu, en um það var
afhjúpaður ágreiningur stjórnarandstöðuflokkanna fyrir síðustu
kosningar."
Ekki minnist ég þess að tekist hafi verið sérstaklega á um þetta
milli flokkanna tveggja fyrir síðustu kosningar enda báðir
afdráttarlaust á þeirri skoðun að afnema bæri kvótakerfið í
núverandi mynd, eða öllu heldur endurheimta ráðstöfunarrétt á
sjávarauðlindunum í hendur þjóðarinnar. Flokkarnir vildu vissulega
mismunandi útfærslu. Þannig leggur VG áherslu á að byggðirnar við
sjávarsíðuna fái hluta aflaheimilda til ráðstöfunar en annar hluti
fari á markað á landsvísu. Markaðsáherslur voru ríkari í hugmyndum
Samfylkingar. Ég vísa hins vegar til þátíðar og segi að þannig voru
áherslur Samfylkingarinnar. Hver skyldi stefnan vera núna?
Formaður Samfylkingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sagði á nýafstöðnum LÍU fundi að menn eigi nú að slá striki yfir það sem liðið er og hætta að gagnrýna útgerðarmenn sem hagnast hafi á kvótanum. Á móti eigi útgerðarmenn að hætta að tala um að þeir eigi kvótann. En ég segi eins og einn ágætur maður í lesendabréfi hér á síðunni, skiptir einhverju máli hvort talað er um eign eða um hana þagað? Skiptir ekki máli fyrst og fremst hver raunveruleikinn er?
Nú hljóta menn að spyrja hvort Samfylkingin vilji kvótakerfi í núverandi mynd eða hvort hún vilji enn endurheimta eignarhald á sjávarauðlegðinni í hendur þjóðarinnar?
Það er von að spurt sé. Í ljósi fyrrnefndra ummæla sinna um meintan ágreining VG og Samfylkingar um afnám kvótakerfisins, væri fróðlegt að heyra útleggingar Helga Hjörvars á nýjasta útspili formanns Samfylkingarinnar.