Fjölmiðlar
12. Febrúar 2003
Þorleifur Óskarsson skrifar: Framsóknarmenn vanda ungu fólki ekki kveðjurnar
Magnús Stefánsson þingmaður Framsóknarflokksins gerir heldur lítið úr ungu fólki og skoðunum þess í Fréttablaðinu 29. janúar s.l. Tilefnið er að ungt fólk hefur verið áberandi í baráttunni gegn óskabörnum Framsóknarflokksins og ríkisstjórnarinnar: Kárahnjúkavirkjun og álveri auðhringsins Alcoa í Reyðarfirði. Magnús heldur því fram að unga fólkið hafi látið blekkja sig og í orðum hans liggur að það hafi ekki vit til að mynda sér skoðanir. Það hafi látið ómerkilega áróðursmeistara fóðra sig á lygi og gefið sig tilfinningunum á vald. Og tilfinningar eru ekki að skapi Íslands framsóknartöffara, þeir skoða málin jafnan kalt og yfirvegað, þeir eru “kúl”, þeir bregða sér ofan í frystikistu áður en þeir taka á málunum. Magnús veifar því skynsemisstefnu Framsóknarflokksins framan í unga fólkið og vill upplýsa það um samhengið í gangverki samfélagsins. Þar endurtekur hann gömlu tugguna sem framsóknarmenn eru búnir að jórtra á eins lengi og elstu menn muna. Með leyfi hæstsvirts forseta byrjar þessi forni kvöldvökuslagari svona: “Til þess að standa undir öflugu velferðarkerfi þurfum við að hafa öflugt atvinnulíf”. Lengra þarf ekki að kveða og allir þekkja viðlagið. Stórasannleik þarf ekki einu sinni að raula fyrir leikskólabörn og á meðal þeirra og þjóðarinnar gætir reyndar sívaxandi þreytu. Þá gerðust þau skemmtilegu tíðindi nýverið að einn fréttamaður sjónvarpsins bað háttvirtan umhverfisráðherra að gjöra svo vel að stoppa þegar hún var að byrja að jarma Stórasannleik. Hann gaf henni þá tímabæru áminningu að allir vissu að það þyrfti peninga til að reka velferðarkerfi.
Á valdi tilfinninganna og líka dónar
Eftir þennan stutta útúrdúr er rétt að líta á hvað þingmaðurinn Magnús Stefánsson hefur meira fram að færa um æsku landsins. Svo ótrúlegt sem það nú kann að virðast er engu líkara en hann líti á ungt fólk í andstöðu við ríkjandi stjórnarstefnu svipuðum augum og þau ólánsömu ungmenni sem ánetjast hafa fíkniefnum. Og hinir fullorðnu áróðursmeistarar sem hafa haft þessi slæmu áhrif eru þá væntanlega í hlutverki eiturlyfjainnflytjendanna og dópsalanna. Kannski framsóknarmenn ætli að lofa fyrir komandi kosningar nokkrum milljörðum í heilbrigða skoðanamyndun eins og þeir gerðu varðandi fíkniefnavandann fyrir síðustu kosningar. Rétt er að gefa Magnúsi orðið til þess að varpa örlitlu ljósi á samlíkinguna hér að ofan: “Áróðurinn gegn málinu [stóriðjustefnunni á Austurlandi] birtist víða og í mismunandi myndum. Áberandi er hve spilað er á skólanema, þar sem þeir eru æstir upp gegn málinu en án málefnalegra raka. Í viðtölum við nema sem hafa lent í slíkri umræðu kemur berlega fram hvað margir þeirra hafa mótað afstöðu gegn málinu án málefnalegra raka, heldur hefur verið spilað inn á tilfinningalegar nótur og málavextir afskræmdir.” Magnús staglast á málefnalegum rökum en ekki eru skrif hans ofhlaðin þeim. Þvert á móti svífur yfir vötnunum málefnalegur raki og meðfylgjandi fúkkalykt sem gjarnan sest á þá sem verið hafa við stjórnvölinn allt of lengi.
Unga fólkið er ekki bara á valdi tilfinninganna því sum ungmenni hafa í framhaldinu farið inn á vafasamar brautir sýnt ótvíræða andfélagslega hegðun, að sögn Magnúsar. Og hvernig koma þessi afvegaleiddu ungmenni fram við þau hin sómakæru sem styðja virkjun og álver? Gefum Magnúsi orðið: “einn þeirra sem barist hefur einarðlega fyrir málinu [hefur sagt] að hann hafi orðið fyrir hótunum vegna þess og dæmi eru um að andstæðingar málsins hafi hrækt á fylgjendur málsins á almannafæri.” Svona framkoma á auðvitað ekki að þekkjast í siðuðu samfélagi en fáein dæmi duga þó skammt til að kveða upp einhvern stóradóm um allt það unga fólk sem er á móti ríkjandi stóriðjustefnu.
Hvað er vísvitandi vanþekking Magnús?
Mér finnst grein Magnúsar Stefánssonar afar ósanngjörn í garð þess unga fólks sem beitt hefur sér gegn Kárahnjúkavirkjun og stóriðjustefnu núverandi ríkisstjórnar. En viðbrögð hans þurfa svo sem ekkert að koma á óvart, Framsóknarflokkurinn hefur úrelta stefnu að verja - stefnu sem unga fólkinu finnst gamaldags og tímabært að hýsa með öðrum fornminjum á Þjóðminjasafni Íslands.
Í góðu samræmi við framsóknarhefðina er aðeins eitt sem kalla má frumlegt í máli Magnúsar en það er þegar hann segir að andstæðingarnir spili á tilfinningar unga fólksins með “vísvitandi vanþekkingu”. Þetta finnst mér óvenjulega að orði komist og gaman væri að þingmaðurinn skýrði þetta fyrirbæri nánar. Er þetta kannski bundið við Framsóknarflokkinn og starfshætti hans; með öðrum orðum fagurgali um það sem kallað er á óheflaðri íslensku lygi? Eða er það vísvitandi vanþekking þegar menn nenna ekki að kynna sér málavöxtu eins og raunin virðist vera með marga stjórnarþingmenn þegar um er að ræða skýrslur og álit um Kárahnjúkavirkjun og álver í Reyðarfirði? Svar óskast sem allra fyrst, því íslenskan er jú okkar mál.
Þorleifur Óskarsson

Frá lesendum
31. Júlí 2010
UNDARLEGAR SPURNINGAR?
Hvernig stendur á því Ögmundur að þú spyrð svona einkennilegra spurninga á síðunni þinni - sem er væntanlega hugsuð almenningi til aflestrar. Hvað er einkennilegt við spurninguna þína - "Hvers vegna stóð Ísland ekki með mannréttindum" og er um hvers vegna Ísland sat hjá við afgreiðsu vatnsréttindanna hjá SÞ. Jú, þú hefur beinan aðgang að bæði mannréttindaráðherra (Jóhönnu held ég) og utanríkisráðherra (Össur) og getur spurt þau beint og krafist svars án málalenginga eða útúrsnúninga! Við alm. lesendur þínir höfum ekki þennan kost. Það væri reyndar fróðlegt að fá að vita ....
Ragnar Eiríksson
Ragnar Eiríksson
30. Júlí 2010
VATNIÐ OG RÍKISSTJÓRNIN
... Það er mjög einkennilegt að vilja ekki styðja tillögu Sameinuðu þjóðanna um að flokka réttinn til vatns sem mannréttindi. Heldur skipar ríkisstjórnin sér í flokk með hægri stjórnunum í Danmörku, Svíþjóð og Englandi sem vilja braska og gera drykkjarvatn að söluvöru. Sú afsökun sem gefin er út í fjölmiðlum er óskiljanleg. VG skuldar kjósendum sínum skýringu.
Pétur
Pétur
29. Júlí 2010
ÓSVÍFIN HVATNING TIL ÁFENGISNEYSLU
...Þá finnst mér auglýsingar skemmtannaliðsins í Vestmannaeyjum ganga út fyrir allann þjófabálk. Sínu verst er sú auglýsingin þar sem þingmaðurinn öskrar djamm, inn í tjaldið hjá tveim drengjum. Annar virðist svag fyrir drykkjulátunum. Hinn er klæddur í skátabúning og virðist ekki hafa áhuga á drykkjulátunum. Þeir sem bera ábyrgð á auglýsingunni leyfa sér í þessari auglýsingu að gera grín að unglingnum sem ekki vill drekka áfengi og skemmta sér með drykkjulátum. Þetta er ótrúleg ósvífni. Ríkisfjölmiðillinn lætur ekki sitt eftir liggja varðandi ...
Kristbjörn Árnason
Kristbjörn Árnason
29. Júlí 2010
FORSENDUR SJÁLFSTÆÐIS
...Rétt að vekja athygli á þessari framsetningu nú þegar fámennt íslenskt samfélag gæti staðið frammi fyrir því að rakna upp með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Það er ekki bara að þetta sé grundvöllurinn sem gerir okkur fær um að takast á við sjálf okkur og heiminn, þetta er útgangspunktur þess sem vill reisa hér velferðarsamfélag, til dæmis norrænt. Það er freistandi að lesa grein Styrmis og skilja, sem hugmyndafræðilega endurskoðun eða byrjun á uppgjöri, sem ætti að leiða til tímabærs uppgjörs í flokkakerfinu, ekki ólíkt því sem verður að verða í siðferði atvinnulífsins. Eða hvað finnst þér Ögmundur?
Kveðja,
Ólína
Kveðja,
Ólína
29. Júlí 2010
ESB TIL ÓÞURFTAR
..Mér fannst greinin þín GUÐLAST lýsa EES vitleysunni vel...Við ættum að losa okkur út úr EES samningnum og ALLS EKKI ganga í Evrópumiðstýringarofríkið og ALLS EKKI borga 1 eyri úr ríkissjóði fyrir Icesave-nauðungina. Icesave er skuld Björgólfs Thors og Landsbankans og kemur EU eða bresku og hollensku ríkisstjórnunum eða íslenska ríkissjóðinum ekki við. Og skömm að þeim Alþingismönnum sem hylma yfir og þagna. Og ekki síst öllum þeim sem kusu JÁ með Icesave. Voðalegt var að lesa skrif Péturs í færslu sem þú kallar EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN? Veit maðurinn ekkert um ofríki EU? Veit hann ekkert um ólögmæti Icesave?
ElleE
28. Júlí 2010
HLUTABRÉFIN HÆKKUÐU
Hlutabréf í Magma Energy á hlutabréfamarkaðnum í Toronto hafa hækkað í vikunni. Eftir blaðamannafund ríkisstjórnarinnar og loforðin um að "vinda ofan af einkavæðingunni", hækkuðu bréfin skarpt eða um 2%. Það er skoðun markaðarins á loforðum ...
Hreinn K
Hreinn K
27. Júlí 2010
SORGARDAGUR!
...Doði virðist hafa runnið á hjartlæga aðgerðarsinna. Það lítur út fyrir að menn sjái ekki fyrir sér að hægt sé að snúa við þeirri hörmung sem við blasir, afsal hluta æðakerfis úr skjaldarmerki þjóðarinnar. Hverjar eru nú varnirnar. Goð í suðri fallið. Ég hef nú reyndar ekki talið að heppilegt að íslenzkir rekstrarmenn ættu að koma þar að og því í góðu lagi að semja við erlenda rekstrarstjóra, en fulltrúar okkar í samninganefnd verða þó að vera með réttu ráði þegar slíkir samningar eru gerðir. Aukinheldur vil ég benda á að dagurinn í dag 27 júlí mun talinn sorgardagur í hugum þorra fólks hér á landi enda upphaf spyrðingaráætlanna við ESB hafið. Vonandi tekst ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali
Óskar K Guðmundsson, fisksali
27. Júlí 2010
KVEÐJUR TIL JÓNS BJARNASONAR
...Ég bið þig að koma eftirfarandi á framfæri hér á síðunni gagnvart Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegsráðherra: Loks er kominn fram sjávarútvegsráðherra sem þorir að framkvæma. Framganga ráðherrans í kvótamálunum er til mikils sóma og jafnvel þó aðeins sé nartað í litlu tánna enn sem komið er, þá finnur risinn til. Vona að JB fái vinnufrið og hafir orku og vilja til áframhaldsins.
Bestu kveðjur,
Egill
Bestu kveðjur,
Egill
25. Júlí 2010
EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN?
...Afstaða öfgahópsins innan VG er síður en svo til að standa vörð um hagsmuni fátæks fólks á Íslandi. Það fer lítið fyrir efnislegri umræðu hjá þessu fólki og andstaða þess við menn og málefni virðist fremur eiga rætur í eðlislægri persónuröskun og athyglissýki frekar en trú á að það sé að vinna fátækum gott. Ef félagshyggjufólk leyfir sér að gagnrýna þennan hóp er því svarað með orðum eins og "síðsovésk viðhorf". Er það efnisleg umræða? Þessi hópur hefur haldið ríkisstjórninni í gíslingu og haldið aftur af efnahagslegum úrbótum og þar með dregið verulega úr þjónustu við fátækt fólk. Ég nefni afstöðu þess til Icesave málsins, ESB, sem það ...
Pétur
Pétur
24. Júlí 2010
HUGSJÓNA- OG HAGSMUNAMENN
...Fyrir ekki löngu, nánar tiltekið fyrir tíu dögum, velti ég því fyrir mér hvort félagsmálaráðherrann og Samfylkingin væri að klofna í hugsjónamenn og hagsmunamenn. Í síðari hópnum væru til dæmis menn sem vildu gera Yngva Örn Kristinsson að forstjóra Húsnæðisstofnunar, Runólf Ágústsson að umboðsmanni skuldara og fyrrum stjórnarmann í FME og Seðlabanka að nýjum viðskiptaráðherra. Þetta er nú byrjað að ganga upp. Umboðsmaður skuldara er fundinn. Hann fannst í ...
Jóna Guðrún
Jóna Guðrún
Póstlisti
Frjálsir pennar
8. Júlí 2010
Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY
...Nú kemur til kasta ríkisstjórnarinnar. Vilji VG er skýr. Nú reynir á hvort tekið er mark á ályktunum flokksráðs VG. Það er ófrávíkjanleg krafa að orkuverum og orkuauðlindum verði haldið í almannaeigu. Þessa orustu verður að taka núna því mikið er í húfi. Fari sem horfir eru þessar mikilvægu auðlindir landsmanna komnar á útsölu á markaðstorg alþjóðlega auðvaldsins. Í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri segir í 12.gr.... Ráðherra í vinstri stjórn sem ekki nýtir sér lagaákvæði sem þetta til að verja landið fyrir ágangi alþjóðlegra fjármagnseigenda sem í engu munu gæta hagsmuna landsmanna, hlýtur að þurfa að hugsa sinn gang. Sama gildir um ríkisstjórnina alla enda hún öll ábyrg fyrir því hvernig...
2. Júlí 2010
Baldur Andrésson skrifar: NÝ HÖLL Á HAFNARBAKKA
...Höllin er til menningar segja trúðarnir nú, þegar önnur viðskipti leyfa segja þeir. Tapið á viðskiptunum borgar þjóðin. Hver annar ! Hún verður falleg, nema í augum heimskingja, segja trúðar og vitna í loddaraorð. Svo fín að allir gáfaðir falla í stafi. Í höllinni má kannski dansa, syngja, spila . Aðeins aumingjar efast, spyrja óþægilegra spurninga, velta vöngum. Ráðamenn og trúðar klappa einir. Þjóðin klórar sér í kollinum. Þjóðin þegir. Nú er bráðum sumarfrí. Sól á lofti. Þá fer þjóðin að grilla. Hallarævintýrið er ófullgerð saga og verður ...
28. Júní 2010
Björn Jónasson skrifar: NÝR GJALDMIÐILL
Vandræði okkar Íslendinga með krónuna okkar ástæru ætla engan enda að taka. Þau eru af tvennum toga. Annars vegar heldur hún illa sjó gagnvart öðrum gjaldmiðlum og hins vegar virðist hún þurfa hærri vexti til að hægt sé að stunda lánastarfsemi. Bent hefur verið á, að í raun séu tveir gjaldmiðlar í gangi í landinu, annars vegar króna og
hins vegar verðtryggð króna. Það er afleitt ástand að þurfa að vinna með tvöfalt kerfi lögeyris í landinu. Oft er talað um sanngirni, réttlæti, ótta við að lána, tap lífeyrissjóða, sem röksemd fyrir því að lán skuli vera verðtryggð. Og þá er gjarnan vitnað í árin eftir stríð og fyrir verðtryggingu. En verðtryggingin virðist ekki hafa leyst nein mál. Hún hefur byggt inn ný vandamál, sem eru ekki öll komin fram. Verðtrygging er eiginlega bara góð þegar hún er óþörf. Um leið og ...