R-listinn virði samninga
Sæll Ögmundur. Þú ert einn af þeim fáu stjórnmálamönnum sem ég
hef haft trú á. Því langar mig til þess að spyrja þig hvort þér
finnist ekki óþægilegt að þinn flokkur skuli vera aðili að R.lista
samstarfinu núna þegar R.borg virðist ekki ætla að standa við hluta
úr kjarasaming er gerður var við St.Rv í byrjun árs 2001 og gilda
átti til 30.nóv 2005.
Sigurbjörn Halldórsson
Komdu sæll Sigurbjörn.
Það er ámælisvert undir öllum kringumstæðum og hver sem í hlut á ef
ekki er staðið við gerða samninga. Í því tilviki sem hér um ræðir
hefur ekki skort á gagnrýni af hálfu Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar í garð stjórnenda borgarinnar. Undir þessa
gagnrýni tek ég heilshugar. Að sjálfsögðu verður þrýst á það af
alefli að samningar verði virtir og verði á því dráttur að einstök
ákvæði kjarasamninga verði framkvæmd af tæknilegum ástæðum eins og
borgin ber fyrir sig, þá komi fyrir það bætur.
Með kveðju, Ögmundur Jónasson