Fara í efni

Augljóst brot á stjórnarskránni!!!

Kæri Ögmundur
Af nýjustu fréttum má ráða að stjórnarherrarnir hafi hugsað sér að ekki verði efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um hin svokölluðu fjölmiðlalög sem Alþingi samþykkti nýverið og forseti Íslands kaus síðan að undirrita ekki. Þetta væri AUGLJÓST BROT á 26. grein stjórnarskrárinnar sem einmitt kveður á um að frumvarpið skuli lagt í dóm þjóðarinnar eins fljótt sem kostur er.
26. gr. Ef Alþingi hefur samþykkt lagafrumvarp, skal það lagt fyrir forseta lýðveldisins til staðfestingar eigi síðar en tveim vikum eftir að það var samþykkt, og veitir staðfestingin því lagagildi. Nú synjar forseti lagafrumvarpi staðfestingar, og fær það þó engu að síður lagagildi, en leggja skal það þá svo fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosningarbærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar með leynilegri atkvæðagreiðslu. Lögin falla úr gildi, ef samþykkis er synjað, en ella halda þau gildi sínu.
Bestu kveðjur,
Sigmundur Guðmundsson, stærðfræðingur