Glæpur og refsing
Mig langar að spyrja um þitt álit á samráði olífélagana. 1:
Finnst þér það hæfileg sekt að olíufélögin borgi 6,5 miljarða í
sekt þegar ljóst er að samráðið hefur kostað þjóðina 40 miljarða?
2: Er það ekki almenn krafa að forstjórar og stjórnendur sem eru
viðriðnir samráðið verði hnepptir í gæsluvarðhald þar til rannsókn
ríkislögreglustjóra er lokið? 3: Hver ætti að vera hæfileg refsing
fyrir samráðsglæp sem hefur kostað borgara þessa lands 40 miljarða,
þegar hægt er að dæma mann í þriggja mánaða fangelsi fyrir að stela
tímariti og oststykki? 4: Er ekki eitthvað mikið að siðferðislega
þegar mönnum finnst þetta samráð bara sjálfsagður hlutur og koma
umvörpum fram í fjölmiðlum og reyna að bera þetta af sér þrátt
fyrir að gögn samkeppnisstofnunar sýni svart á hvítu hvað hefur
verið í gangi?
Kveðja.
Hrafnkell Daníelssson.
Ekki kann ég svar við öllum spurningum þínum Hrafnkell. Í
stað þess að svara þeim að sinni birti ég bréf þitt
okkur öllum til umhugsunar.
Kveðja,
Ögmundur