Fara í efni

ÞJÁNINGARFRELSIÐ

Úr væntanlegri ljóðabók skáldsins:

Að fordæma samráð en fallast á stuld
og féfletta þjáningarbróður
er einsog að hlaupast frá ógreiddri skuld
og ásaka þann sem er góður.

Með stolti þeir fölsku sér berja á brjóst
svo bölva þeir reglum og helsi
og hjá þeim um eilífð er eftir því sóst
að upplifa þjáningarfrelsi.

Þótt tungan sé svört einsog olíubrák
með óbragð af fánýtum sögum
vart þjáningin ergir hinn óprúttna hák
sem aldrei vill fara að lögum.

Kristján Hreinsson, skáld