Fara í efni

DRÖG AÐ BYLTINGU

Eftirfarandi ljóð er að finna á samnefndri geislaplötu sem Kristján Hreinsson, skáld, er að senda frá sér um þessar mundir:

Af þjófunum birtast svo magnaðar myndir,
við meinum þeir finna ráð
með brosandi andlit við olíulindir
þeir árangri hafa náð.
Menn verðlauna íslenska umhverfissóða
sem arðræna þjóðarsál
og nota hér allan sinn olíugróða
í íhaldsins leyndarmál.

 Er furða þótt siðleysið valdhafinn verndi
og veiti hér daglega fórn
þeim herrum sem tryggja að hagnaður lendi
hjá helmingaskiptastjórn?
Að varðveita hræsni þeim herrum mun sæma
sem hafa hér völdin enn
því ríkisstjórn auðvaldsins aldrei mun dæma
þá ótíndu glæpamenn.

Er olíuveldið með allan sinn hroða
fær íhaldsins skjól og hlíf
þá ykkur ég átök og byltingu boða
sem bæta mun okkar líf.
Er furða þótt siðleysið valdhafinn verndi
og veiti hér daglega fórn
þeim herrum sem tryggja að hagnaður lendi
hjá helmingaskiptastjórn?