Fara í efni

NATO GETUR BARA DREPIÐ, EKKI BJARGAÐ

Fram kom í fréttum að í það minnsta 1000 börn hafi látist úr kulda og hungri í Afganistan. 28000 manns eru sögð í bráðri hættu. Foreldrar gefa börnum sínum ópíum til að lina þjáningar þeirra.
Á sama tíma eru öflugustu tæki veraldar til staðar í Kabúl á vegum Nató og Bandaríkjamanna en með þeim er bara hægt að drepa, ekki bjarga. Þetta stríð studdu allir flokkar á Íslandi nema VG, er það ekki rétt munað Ögmundur?
Rúnar

Jú, það er rétt Rúnar. Því miður.
Ögmundur