Fara í efni

BJART FRAMUNDAN HJÁ RÚV?

Sæll Ögmundur!
Nú er bjart framundan hjá Þorgerði Katrínu, menntamálaráðherra. Þegar hún verður búin að ganga endanlega frá Ríkisútvarpinu og gera Pál Magnússon að einvaldi um dagskrá og mannaráðningar, þá mun Sylvía Nótt verða aðalþula og strákarnir af Stöð2 lesa fréttir berrassaðir. Ég er hræddur um að þetta verði raunin.
Kveðja,
Haukur