Fara í efni

GÁTTAÐUR Á FRAMSÓKN

Sæll.
RÚV-frumvarpið er dæmigerð framsóknarhraksmán, flutt af íhaldinu og er ekkert nema skref á einkavæðingarleiðinni. Ég er satt að segja alveg gáttaður á Framsókn að láta draga sig á þessum asnaeyrum, og tvennar kosningar í uppsiglingu. Það er eins og flokkurinn sé haldinn sjálfseyðingahvöt þessi árin. Fyrir utan háeffið í RÚV frumvarpinu er nefskatturinn tóm endaleysa eins og ríkisskattstjóri hefur bent á. RÚV er prinsipp, mannréttindamál jafn sjálfsagt að hafa aðgang að og að vatninu. Við borgum fyrir vatnið í gegnum fasteignaskattana. Ég held mig við mína gömlu tillögu um að tengja afnotagjald fasteignasköttum. Reikniformúluna geta spakir menn auðveldlega fundið upp, ef mönnum sýndist gæti hún orðið misjöfn eftir tegundum fasteigna o. sv. frv.
hágé