Fara í efni

VAR ÞINGVALLABÆRINN BYGGÐUR FYRIR FRAMSÓKNARFLOKKINN?

Var Þingvallabærinn byggður fyrir Framsóknarflokkinn? Hvað var formaður Framsóknarflokksins, stjórn sama flokks og formenn framsóknarfélaganna um allt land að gera í Ráðherrabústað forsætisráðherra Íslands á Þingvöllum?! Þetta er hneyksli og gera verður kröfu um að ríkissjóður að minnsta kosti rukki Framsóknarflokkin fyrir aðstöðuna. Hélt að nóg væri að félagsheimilum um allt suðvestur hornið fyrir flokksfundi af þessu tagi. Ég hef aldrei orðið þess var að t.d. Tony Blair haldi flokksfundi Verkamannaflokksins breska í dávningsstræti, enda yrðu uppi öflug mótmæli vegna slíkrar flokksmisnotkunar almannaeigna og tákna ríkisvaldsins. Flokkar geta átt aðild að ríkisstjórnum, en ráðamenn verða að kunna að gera greinarmun á hlutverkum sínum og nota hin "talandi tákn" samfélagsins í réttu samræmi við hlutverkin.
Borgþór