Fara í efni

GÓÐ HUGVEKJA UM RÚRÍ

Mig langar til að þakka þér fyrir prýðilega hugvekju um gjörninginn hennar Rúrí á Þingvöllum í sumar. Það fór nefnilega fyrir mér eins og þér að með gjörningnum lifnaði sagan – hún öðlaðist líf. Rúrí gaf að nýju lífið stúlkunum sem samferðamenn þeirra – samfélag fyrri tíðar – ofsótti og tók af lífi á grimmilegan hátt. Ég tek undir hvert orð sem þú skrifaðir í pistli þínum um þennan gjörning og haf þú þökk fyrir.
Með kveðju,
Ólöf

Þakka þér bréfið Ólöf og fyrir þá sem ekki lásu umræddan pistil þá er hann HÉR.
Með kveðju,
Ögmundur