Fara í efni

KROSSAPRÓF

Hvaða flokkur hefur lýst því yfir að hann sé femínískur flokkur og hefur þar af leiðandi nær alltaf meira fylgi með konum en körlum

- er það Framsóknarflokkurinn?

- er það Samfylkingin?

- er það Vinstri hreyfingin grænt framboð?

 

Hvaða flokkur var frá upphafi heill á móti Kárahnjúkavirkjun?

-  er það Framsóknarflokkurinn?

- er það Vinstri hreyfingin grænt framboð?

- er það Samfylkiningin?

 

Hvaða flokkur  var andvigur Íraksstríðinu heill og  óskiptur frá upphafi?

- Sjálfstæðisflokkurinn?

- Framsóknarflokkurinn?

- Vinstri hreyfingin græn framboð?

 

Hvaða flokkur er klofinn í afstöðu sinni til stækkunar álvers í Hafnarfirði?

- Samfylkingin?

- Sjálfstæðisflokkurinn?

- Vinstri hreyfingin grænt framboð?

 

Hvaða flokkur vill að áfengi megi selja í matvöruverslunum?

- Sjálfstæðisflokkurinn?

- Vinstri hreyfingin græn framboð?

- Samfylkingin?

 

Þeir sem  verða með rétt svör við öllum fimm spurningunum fá sæmdarheitið stjórnmálafræðingar aldarinnar.
Hafliði H.