Fara í efni

SPILLT FRAMSÓKN Á FRAMFÆRI ALDRAÐRA!

Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum og eyrum þegar ég sá í fréttum Stöðvar 2 í kvöld að Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra hefði tekið peninga úr Framkvæmdasjóði aldraðra til að fjármagna áróðursbækling fyrir sjálfa sig og þar með Framsóknarflokkinn. Ósvífni stjórnarflokkanna er ótrúleg. Ekki bætir úr skák að þessi sjóður sem á að fjármagna úrræði fyrir aldraða hefur mátt sæta því að ríkisstjórnin hefur tæmt hann til annarra verka á undanförnum árum! Þá kemur Framsóknarráðherrann Siv og notar hann í sína eigin þágu og síns spillta flokks!!! Á ekki að krefjast afsagnar ráðherrans?
Haffi