T VÆR MYNDIR - SAMA SETTIÐ

Þegar Blair og Bush koma saman fram til að verja Íraksstríðið,
svo dæmi sé tekið. Þá taka þeir ganginn, eins og sagt er í Ameríku,
- ganga ákveðnum skrefum eftir rauðum dregli í takt og stilla sér
svo upp við þar til gerð púlt í húsi, sem ber sama nafn og
auglýsingastofa sem kom við sögu þegar hugtakið "skítlegt eðli"
heyrðist fyrst við Austurvöll fyrir sextán árum. Þeir flytja stutt
ávörp um lýðræðislegar skyldur Vesturveldanna, nauðsyn
innrásarinnar í Írak, eða minnkandi barnadauða þar í landi, eða
tala jafnvel um umbótasinnaðar ríkisstjórnir. Svo svara þeir
fyrirframgefnum spurningum og láta sig hverfa.
Allt er þetta undirbúið, jafnvel göngulagið; og þú segir þetta, þá
segi ég þetta, og svo fer ég í Kastljósið og þú ferð einn til
Ólafs. Leikrit þar og leikrit hér.
Stefán