Fara í efni

JÓNAS UM ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐINN

Jónas Kristjánsson, fyrrum ritstjóri með meiru, skrifar ágætan pistil á heimasíðu sína um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Mér sýnist það vera í þeim anda sem oft hefur sést á þessari síðu um þá stofnun. Ég tek undir með Haffa að það er með ólíkindum hve gagnrýnislausir íslenskir fjölmiðlar eru um "ráðgjöf" Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Síða JK er á slóðinni www.jonas.is . Pistil hans ætla ég að leyfa mér að birta hér: "
Óskammfeilinn sjóður
Það er óskammfeilni af Alþjóðlega gjaldeyrissjóðnum að senda menn um lönd til að hafa álit á efnahagsmálum. Fáar stofnanir í heiminum hafa orðið að eins miklu aðhlátursefni og þessi banki. Hann tók þátt í að rústa efnahag Rússlands á tíma Jeltsíns. Með því að troða úreltum kreddum frá háskólanum í Chicago upp á ríkið. Sjóðurinn hefur haft slæm áhrif víðs vegar um þriðja heiminn. Einkum hefur hann valdið almenningi hörmungum. Með kröfu um erlent vinnuafl og lægra kaup, andúð á samtökum launþega og hatri á velferð. Bezt hefur gengið þeim ríkjum, sem minnst mark hafa tekið á sjóðnum."
NN