Fara í efni

DÝRMÆTUSTU AUÐLINDIRNAR Á EKKI AÐ SELJA

Ég vil vara við stóryrtum yfirlýsingum um sölu orkufyrirtækja. Að bendla sölumenn við landráð einsog lesandi hér á síðunni gerir er of langt gengið. Vísa ég þar í bréf Haffa. Hitt get ég tekið undir að það verður að stöðva þessi ósköp. Þetta eru tvímælalaust alvarlegustu mistök sem hér hafa verið gerð í langan tíma af hálfu stjórnvalda og er þó af nógu að taka. Það er nefnilega rétt sem þú hefur bent á Ögmundur að það er bókstaflega verið að selja landið - dýrmætustu auðlindir þess  - í hendur fjárgróðamanna.
Guðrún Guðmundsdóttir