Fara í efni

DRÖGUM RÉTTA LÆRDÓMA

Kæri Ögmundur...
Pistill þinn með fyrirsögninni "VINIR ÍSLANDS?" er góður og málefnalega hárréttur að öllu leyti!    Það er einnig hughreystandi að Morgunblaðsmenn og aðrir fjölmiðlar sáu hið hræðilega ofbeldi gegn saklausri íslenskri konu í heimsókn til Bandaríkjanna og höfðu manndóm í sér til að bregðast við í anda sjálfstæðrar þjóðar sem lætur ekki svívirða saklausan landa sinn átölulaust! 

Það var reyndar löngu komin tími til að Morgunblaðsmenn ásamt öðrum Íslendingum, sæju hvað býr að baki grímu bandarískra stjórnvalda. Það er svo sannarlega ekki það sem sýnist á glansmyndunum sem notaðar eru til að blekkja vammlaust fólk með!  Menn skyldu einnig gera sér grein fyrir því að við erum ekki að verða vitni að einhverju nýtilkomnu eða einstöku fyrirbrigði!

Lærum öll af þessu og höldum okkar fjarlægð, göngum úr öllu samsæri með hinu ofbeldisfulla og yfirgangssama herveldi en reynum samt að umbera það og þola sem verða má,  því ekki getum við dregið Ísland með dráttarbátum út úr landakortinu!  Við verðum að eilífu nágrannalönd. En þótt við séum grannar, er ekki þar með sagt að við þurfum að vera skósveinar stórveldisins  né samdauna því og samsek! Með undirgefni látum við svívirða okkur. Það má aldrei verða!
Úlfur