GOTT HJÁ SPEGLINUM
Að mörgu leyti fannst mér virðingarvert hjá stjórnendum
Spegilsins að leyfa ykkur Illuga Gunnarssyni að tjá ykkur
lengur en í hinar hefðbundnu 50 sekúndur um brennandi málefni
einsog einkavæðinguna. Umræðan var að vísu mjög almenns eðlis en að
mínu viti er lífsspursmál að halda þessari umræðu gangandi
svo frekari spellvirki og skemmdarverk verði ekki unnin á
íslensku samfélagi. Illugi virtist mér vera velmeinandi maður
en getur verið að hann átti sig ekki á því hvernig verið er að
eyðileggja heilbrigðiskerfið, samanber síðustu skrif þín hér á
síðunni um svívirðiðlega framkomu gagnvart fötluðum?
Settu endilega slóðirnar á viðtölin við ykkur Illuga.
Grímur
Þakka þér bréfið Grímur. Sammála þér. Hér eru umræddar
slóðir:
http://dagskra.ruv.is/streaming/ras1/?file=4373949
http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4373948
Ögmundur