Fara í efni

FRÁBÆR GUÐFRÍÐUR LILJA !

Sæll Ögmundur:
Ég var að horfa á Silfur Egils. Guðfríður Lilja var frábær! Til hamingju með að hún skuli vera í ykkar flokki. Ég var að sjálfsögðu þakklát henni fyrir stuðninginn við okkur ljósmæður, hún komst vel að orði og minnti á nauðsynina á því að taka á kjaramisréttinu í landinu, ekki bara kjörum ljósmæðra þótt það verkefni liggi fyrir að leysa NÚNA. Ekki síður þótti mér gott að heyra almennt viðhorf hennar til þjóðfélagsmála. Hún talaði fyrir jöfnuði; sagði að ríkisstjórnin gæti byrjað á því að sýna gott fordæmi með því að afnema eigin lífeyrisforréttindi. Hárrétt!
Ljósmóðir