Fara í efni

ÚTLENDUR HERNAÐAR-SÉRFRÆÐINGUR STÝRIR GEIR!

Sæll Ögmundur....
Tók engin eftir fréttinni 21. þessa mánaðar að forsætisráðherra vor Geir Hilmar hafi erlendan hersérfræðing sér við hlið til að leiðbeina sér um framkomu sína gagnvart íslensku þjóðinni? Að það verði að sína Íslendingum festu, sína öryggi og láta þjóðina ekki komast upp með að "ybba sig"? Sem sé að forsætisráðherrann hafi útlenskan hermálasérfræðing til að segja sér fyrir verkum, hvernig hann eigi að koma fram við íslensku þjóðina. Jafnvel að hann hafi kennt Geir hegðun og ímyndar-uppbyggingu ásamt öðrum ráðherrum í ríkisstjórn hans. Að útlendiungurinn hafi skammtað sjálfum forsetaráðherra okkar tíma til að svara íslenskum blaðamönnum sem kröfðu hann svara gagnvart ástandinu sem þjóðin er í? Er þetta fyrirkomulag fyrirskipun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, eða hvað? Borgar íslenskur almenningur fyrir þetta?
Þetta minnir mann á þegar Ingibjörg Sólrún utanríkisráðherra rausaði yfir flokksmönnum sínum á flokksþinginu, að það verði að sannfæra íslensku þjóðina um ágæti þess að ganga í Evrópusambandið, undirgangast ánauð þess með evru í vasa!
Ögmundur, ef þetta er ekki glæpur hvað er þá glæpur?
Satt að segja varð ég að líta á dagatalið til að ganga í skugga um að þetta væri ekki aprílgap! Mér varð svo um þetta að ég gat ekki ritað álit mitt fyrr en nú!
Ég spyr þig Ögmundur sem vinsælan lýðræðislega kosin alþingismann minn!
Hvern annan getur maður spurt?
Það er komin tími til að rannsaka hvaða útlendu útsendurum hefur verið smeygt inn í innviði þjóðfélags okkar! Núverandi stjórnvöld hafa misst fylgi og traust þjóðarinnar sem heimtar alþingiskosningar STRAX!
Úlfur