Fara í efni

ÍHALDIÐ ALLTAF MEÐ STJÓRNAR-MYNDUNARUMBOÐ?

Kæri Ögmundur.
Hvort sem að Samfylkingin slítur stjórnarsamstarfinu við Íhaldið eða Íhaldið slítur stjórnarsamstarfinu við Samfylkinginguna er þá hættan ekki alltaf sú að Geir H Haarde hafi stjórnarmyndunarumboðið? Alla vega á þessu kjörtímabili.
Jón Þórarinssson 

Sæll og þakka þér bréfið. Jú, sú hætta er fyrir hendi nema annar meirihluti myndist í þinginu.
Kv.
Ögmundur