Fara í efni

ENDURGREIÐSLUR OPINBERRA GJALDA TIL BJARNA

Bjarni Ármannsson, einn af fyrrverandi óskadrengjum þjóðarinnar, upplýsti í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi að hann hefði í október sl. endurgreitt Glitni 370 milljónir króna sem hann hafði fengið við starfslok.

Nú leikur mér forvitni á að vita um endurgreiðslur til Bjarna vegna opinberra gjalda af umræddum milljónum og hvort hann eigi ekki rétt á dráttarvöxtum vegna ofgreiddra skatta. Þetta finnst mér mikilvægt að vita - því eitt skal jú yfir alla ganga í okkar ágæta réttarríki.
Þjóðólfur