Fara í efni

SJALLARNIR SYNGJA Á MEÐAN LANDIÐ BRENNUR

Sæll Ögmundur.
Það var gaman að kíkja inn á Alþingi í kvöld, þar var náttftapartý að hætti Sjálfstæðismanna, í boði fjárglæframanna og auðvaldsseggja. Árni Johnsen þrumaði á gítarinn og þingflokkurinn söng með; "burt með lýðræðið". Svakalegt stuð. En svona í alvöru, þeir eiga að skammast sín, landið brennur, þjóðin að verða að ösku og sjallarnir syngja. Nú verðum við að vinna öll saman að vinna okkur út úr þessum vanda, og sá vandi verður ekki leystur með að brjóta velferðarkerfið niður í einkavædda mola sem auðmenn geta auðveldlega gleypt, það er takmark Sjálfstæðisflokksins.
kv.
Ágúst