Fara í efni

ÞÓTT ÞAÐ TAKI ÁR...

Sæll Ögmundur.
Loksins talar einhver eins og almenningur í landinu. Nákvæmlega þessi umræða fer fram á vinnustöðum og í fjölskylduboðum. Hvað liggur á? Hvers vegna að láta undan hótunum og þrýstingi. Nú ríður á að skoða þetta samkomulag ofan í kjölin, þó það taki heilt ár eða meir án þess að þingheimur fari í frí. Þetta er stórmál, fyrir okkur öll sama í hvaða flokki við erum eða höfum verið, eða kosið hingað til.
Magnús M. Magnússon