Fara í efni

OF MIKIL ÓVISSA

Sæll Ögmundur.
Ég vil þakka þér fyrir Kastljósið 11. ágúst. Loksins talar einhver af viti í þessari ríkisstjórn. það er allt of mikil óvissa í þessu öllu svo að hægt sé að setja allar auðlindir þjóðarinnar að veði. 90% þjóðarinnar eru sammála þér, hinir bara halda að þeir eigi að vera sammála Samfylkingunni og hafa ekki kynnt sér málin. þú ert okkar eina von í þessu máli. Guð blessi þig.
Bjarni Óskarsson