ENN ER VON
Sæll Ögmundur.
Mig langar að fara nokkrum orðum um ummmæli í þinn garð síðustu
daga. Ég verð að viðurkenna að ég hef alls ekki aðhyllst VG,
reyndar ekki heldur aðra fjórflokkana á þingi, en nú hef ég
allavega sannfærst um að ennþá sé von fyrir alþjóð um að það sé til
málsvari almennings, mann sem stendur á sannfæringu sinni og
stendur og fellur með skoðunum sínum. Sá fréttaflutningur síðustu
daga er aðeins þér í hag og ég veit að þú munt standa uppi sem
sigurvegari að lokum. Því miður ert þú ennþá málsvari VG, ég mun
reyndar aldrei kjósa þá eða þann flokk, en ég mun alltaf styðja þig
hafi ég kost til á öðrum vettvangi. Ég skal samt sem áður glaður
ganga til liðs við þínar skoðanir og þína hugmyndafræði,verði þú í
lykilstöðu einhversstaðar. Gangi þér vel og haltu þínu striki. Með
bestu baráttu kveðju,
Þorsteinn