...Hæstvirtur forsætisráðherra telur það ekki alvarlegt mál að
brjóta stjórnsýslulög að áliti umboðsmanns Alþingis og ekki heldur
fjármálaráðherra fyrir það sama við skipun dómara. Þessir menn eru
gjörsneyddir allri siðgæðisvitund að þeir gera sig með öllu óhæfa
til að gegna opiberu starfi og kasta rýrð á embætti umboðsmanns
Alþingis. VG mun án efa setja viðbót inn í stórnsýslulög um leið og
við tökum við og bæta inn refsikafla gegn þeim brotum ásamt því að
gera slíkt hið sama við álitsgerðir umboðsmanns Alþingis sem gefi
honum heimildir til að afturkalla skipanir/ógilda gjörninga sem
hann telur að styðjist ekki við lög. Fjármálaráðherra ætti fyrir
löngu að vera búinn að segja af sér... Þór Gunnlaugsson
...Var að lesa síðuna þína og horfði meðal annars að Hannes
Hólmstein og að mínu mati mætti alveg rífja upp fleiri umæli sem
fólk lét falla þegar það hélt ekki vatni yfir því hvað þetta voru
miklir snillingar að búa til peninga sem voru svo ekki til þegar
upp var staðið. Ég afritaði textan hér að neðan af síðunni
þinni og eins og þú sér undirstrikaði ég hluta af honum
og er það vegna þess að mig langar til þess að spyrja þig einnar
spurningar. Eru það ekki stjórnir sjóðanna sem taka ákvarðanir um
fjárfestingar þeirra? Ef svo er eiga þær ekki að axla ábrygð
og segja af sér?...Ég er enn þeirrar skoðunar að Steingrímur J hafi
farið yfir strikið í Kryddsíldinni...Annað sem ég hef verið að
velta fyrir mér en það er að öll lán sem ég skulda í Landsbankanum
verð ég að borga til baka með fullri verðtryggingu (hverju réttlát
sem hún er í dag) og vöxtum, en þessi sami banki má skerða
séreingnalífeyrissparnaðinn minn um 30% án þess að ég ... Sigurbjörn Halldórsson
Nú var að birtast önnur skoðanakönnunin í röð þar sem VG
er að mælast stærsti flokkurinn. Mitt mat er að um enga
tilviljun sé að ræða. Þið Steingrímur Sigfússon hafið verið
hryggsúlan í andófi gegn græðisvæðingu samfélagsins undanfarin ár
og unnið þar gott en vanþakklátt starf sem gæti verið að bera
ávöxt nú á krepputímum . Fulltrúi okkar dreifbýlismanna á
þingi er samherji þinn Jón Bjarnason sem er vakinn yfir okkar
hagsmunamálum nú síðast í dag er hann að berjast á móti hækkun á
dreifingarkostnaði raforku sem átti að koma til framkvæmda nú um
áramótin. Jón er hreinskiptinn baráttumaður eins og... Norðlendingur
... Enginn virðist tala fyrir friði heldur beinist orðræðan að því að kynda undir ófriðnum í Úkraínu og heimta meiri drápstól og blóð. Meira að segja viðist forysta Vinstri grænna fylkja sér í lið með mestu stríðshaukunum. Et ekki kominn tími til að mynda nýja friðarhreyfingu og standa fyrir framan alþingishúsið með kröfuspjöld og krefjast þess að ríkisstjórn beiti sér fyrir friðaviðræðum og hætti þessu stríðstali? Ef þessu heldur áfram eins og er gæti það ... Stefán Karlsson
Leiðtogahjörðin á liðinni stund lyftist á tá hver einasta Hrund þær sér útvöldu sitt ágæti töldu og heimsyfirráð vildu eftir fund. Höf. Pétur Hraunfjörð.
Skýrsluna hefði mátt skrifa betur til nánari skoðunar landinn hvetur þeir vinahóp töldu og ættmenni völdu í eftir á meðferð sjáum hvað setur. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.
... Nú hafnar eldflaug í Póllandi. Bandarísk yfirvöld eru að rannsaka hvort ekki sé öruggt að Rússar hafi skotið henni. Líklegt? Spyr sá sem ekki veit en grunar margt. Við erum í hættulegu kompaníi með stærstu auðhringum heims, þar á meðal hergagnaframleiðendum og handbendum þeirra. Ísland úr NATÓ HERINN BURT. Jóhannes Gr. Jónsson
Með glórulausari gerningum forsætisráðuneytisins er mál nr. 2/2023. Það er tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn „hatursorðræðu.“ Áætlunin, í sautján liðum, var birt í „samráðsgátt“ þann 4. janúar síðastliðinn. Næsta mál gæti heitið „Varnir gegn illsku heimsins“, eða „Aðgerðaráætlun gegn ranglæti heimsins.“ Í tillögunni gegn „hatrinu“ er þó viðurkennt að ...
„Nú vinnum við ætlunarverk NATO“, segir varnarmálaráðherra Úkraínu, Oleksiy Reznikov. Í viðtali í úkraínsku sjónvarpi 5. janúar sl. talaði hann um hvernig hernaður Úkraínuhers fellur að verkefnum NATO. Nánar sagði Reznikov: „Þeir skilja þetta alveg núna. Við sögðum þeim það áður og þeir brostu. En núna segja kollegar mínir, varnarmálaráðherrarnir, skýrt í ræðum sínum ...
Kaup Elon Musk á Twitter voru frágengin í október. Þau fóru fram af hans hálfu undir merkjum tjáningarefrelsis og „afnáms ritskoðunar“. Í íslenskum fjölmiðlum var okkur sagt að eigendaskiptin boðuðu að öllum líkindum stóraukna „hatursorðræðu“. Í desember sl. gerðist það svo að af hálfu nýrra eigenda var gefin, í nokkrum skömmtum, innsýn í innri tölvuskrár Twitter, og þar birtist mikið „ritskoðunarveldi“. Um það heyrum hins vegar lítið í fjölmiðlum ...
Það er útbreidd skoðun í þjóðfélaginu að fullveldi sé gamaldags. „Deilihagkerfið“ gengur út á samnýtingu hlutanna. Þar eru fá ef nokkur takmörk. Fólk telur að hægt sé að „deila fullveldi“ ríkja [sem er ekki hægt], það deilir bílum, tækjum, leigir fötin sem það stendur í, leigir hús og íbúðir (Airbnb) og fleira í þeim dúr. Fólk deilir jafnvel mökum og sambýlisfólki. Þessi þróun er ekki að öllu leyti neikvæð ...
Útbreidd trú er það að Evrópusambandið [ESB/Sambandið] sé sérstakt friðarbandalag og afar lýðræðislegt fyrirbæri. Hvorugt á við rök að styðjast. Enda þótt friður í Evrópu hafi upphaflega legið til grundvallar forvera Evrópusambandsins, þ.e. Kola-og stálbandalaginu, eftir síðari heimsstyrjöld, er fátt sem bendir til þess í dag að sambandið sé sérstakt friðarbandalag, í raun fjarri því ...
Því miður verður ekki sagt um frumvarp um vefverslun (netverslun) með áfengi sem fimm þingmenn Sjálfstæðisflokksins lögðu fram í fyrra að því hafi ekki fylgt nein hætta á aukinni neyslu. Sama gildir að öllum líkindum um frumvarp dómsmálaráðherra um sama efni sem væntanlegt var ...