Fara í efni

HVER ER AFSTAÐAN?

Sæll Ögmundur.
Veist þú afhverju Guðfríður Lilja sem ég kaus í seinustu kosningum, sem var svo á móti Icesave, ætlar að kjósa með því á næstu dögum eftir að hafa sagt annað? Hún sem hefur verið mikill andstæðingur þess að við göngum inní kúgunarsamfélag ESB og AGS (eins og Ásmundur formaður Heimsýnar)
Kær kveðja,
Ásdís Helga Jóhannesdóttir

Sæl og þakka þér bréfið. Guðfríður Lilja og Ásmundur hafa gert grein fyrir afstöðu sinni sem er stuðningur við þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.
Kv.
Ögmundur