SKILABOÐ TIL NORÐURLANDA
Frábært hjá þér að taka Fredrik Reinfeldt í nefið, þetta eru
ekki vinir okkar. Ískendingar þurfa að koma þeim skilaboðum til
Norðurlandaþjóðanna...
Ágúst Kr.
Frábært hjá þér að taka Fredrik Reinfeldt í nefið, þetta eru
ekki vinir okkar. Ískendingar þurfa að koma þeim skilaboðum til
Norðurlandaþjóðanna...
Ágúst Kr.
..Í grein í Fr.bl.14.jan.2010 skrifar Sigurður Líndal um Icesave
málið. Hann undrast eins og flestir Íslendingar hvað valdi
síendurtekinni yfirlýsingagleði "Norðurlandahöfðingja" um að
"Íslendingar eigi að standa við skuldbindingar sínar" án þess þó að
þeir útskýri af hverju. Og yfirlýsingagleði þeirra heldur enn áfram
eftir að heimsókn SJS í herbúðir þeirra lauk. Í niðurlagsorðum
greinarinnar óskar Sigurður því eftir útskýringum SJS: "Nú birtast
á hverjum degi greinar og viðtöl við valinkunna menn sem halda því
fram að engar eða í mesta lagi takmarkaðar skuldbindingar hvíli á
Íslendingum til að...
Pétur Örn Björnsson
Þau eru ömurleg bréfin Péturs og Kristjóns á vefsíðu
þinni. Báðir aðskilja þeir ekki þjóð og ríkisstjórn þegar um
er að ræða Svía og hvorugir virðast skilja að það er djúp gjá á
milli íslensku þjóðarinnar og íslenskra einstaklinga sem athafna
sig í útlöndum og hafa stórskaðað íslensku þjóðina með lygum,
þjófnaði og undirferlum. Jú, það má sannarlega kenna alþjóðasinnum,
fjárglæfarmönnum, einkavinavæðingarsinnum og auðvaldsþjónum um
óhamingju Íslendinga, en það má ekkert síður kenna núverandi
stjórnvöldum um hryggileg afglöp í Iceslave málinu og
endur-einkavæðingu bankanna og fjármálafyrirtækjanna ásamt sölu
orkufyrirtækja ...
Helgi
Sæll, Þakka þér einarða afstöðu í Ísbjargarmálinu. Skyldi
sænskur almenningur vita að sænsk stjórnvöld eru handrukkarar
alþjóðlegrar fjáreigendaklíku? Fáir ef nokkur hefur komið oftar á
Bildeberg-samkundur en Carl Bildt...
Ólafur Jónsson
Til að skilja til fullnustu,hvers vegna Bretar og Hollendingar
eru svo grimmir gagnvart Íslendingum, er áhugavert að skoða þetta
Webcast....Það sýnir í hnotskurn við hvað er verið að eiga fyrir
Ísland í dag....
Birgir Rúnar Sæmundsson
Er það ekki nokkuð langt gengið að saka sænsk yfirvöld um að
vera handrukkara og að það komi frá stjórnarþingmanni. Ég veit ekki
annað en að þessi þjóð hafi komið fram við Íslendinga af rausn og
háttsemi. Mér er minnisstæð aðstoð Svía í Vestmannaeyjagosinu sem
var einstæð. ...
Pétur
Er ekki komin tími til að láta af þessum einstrengingshætti og
viðurkenna að sök okkar Íslendinga felst í því að hafa látið líðast
það ábyrgðarleysi sem stjórnvöld hafa viðhaft árum og áratugum
saman. Fyrir það á þjóðin skilið ærlega flengingu. Ég sé enga
skynsemi í hegðun þinni varðandi Icesave og finnst sorglegt að
engin skuli leggja þér lið út úr þeim ógöngum. Það er dapurlegt
þegar stjórnmálamenn skynja ekki ...
Kristjón Sigurðsson
...Lýðræði, eða sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar, þurfum við að
ræða samhliða Icesave málinu, hvernig við byggjum hér upp
réttlátara þjóðfélag sem er bæði opnara og lýðræðislegra en varð
til undir forystu þeirra sem nú nálgast eftirlaunaaldur. Liður í
þessu er sparkið sem forsetinn gaf okkur ...Fyrst fengum við ekki
að kjósa af því við áttum ekkert, og af því við áttum ekkert höfðum
við ekki vitið til að bera ábyrgð á atkvæði okkar. Þannig
skilgreindi hin nýja stétt borgaranna lýðræðið á sinni tíð. Svo
fengu karlar atkvæðisrétt, en ekki ...Ferskt dæmi er þegar
forystumenn ríkisstjórnar krefjast þess að allir ráðherrar styðji
skilyrðislaust öll mál sem fulltrúar framkvæmdavaldsins bera fram
þótt ríkisstjórn sé fjölskipað stjórnvald, jafnvel þótt ...
Ólína
...Mig langar til þess að vita hvort að þú munir í aðdraganda
þessara kosninga beita þér gegn lögunum og fara þá um leið í
herbúðir stjórnarandstöðunar. Ég held að það hafi komið
Íhaldsflokkunum á óvart það sem Ólafur gerði. Þeir hafi vonast til
þess að hann myndi skrifa undir og þá gætu þeir haldið áfram að
reyna að fella ríkisstjórnina og nítt niður forsetann. Ég var og er
ósammála Ólafi en þetta er hans ákvörðun og mér dettur ekki í hug
að...
Viðar Magnússon
Hlustaði á samtal þitt í útvarpinu í morgun - Útvarpi Sögu. Það
er margt í því sem þú segir sem þjóðin þarf að vita.
Jóhann
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Talskona Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, sagði í útvarpsfréttum að vonandi yrði komandi þing gott og að menn færu ekki sð karpa um smámál og tók síðan andköf til að frábiðja “málþóf” og mátti skilja að þar vísaði hún í málflutning Miðflokksins um orkupakkann.
Mér þótt sá málflutningur góður en hinn slakur, svo ekki sé meira sagt, frá hendi Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar. Flokkur fólksins var í lagi framan af en lyppaðist síðan niður. Stjórnarflokkana...
Jóhannes Gr. Jónsson
Uppruni raforku á Íslandi er 57% jarðefnaeldsneyti, 34% kjarnorka og endurnýtanleg raforka einungis 9%. Þessi tilhögun og brask hjálpar umhverfissóðum að sýna hreinna bókhald.
Það sem ég velti fyrir mér, hver er ábyrgð íslenskra fyrirtækja sem selt hafa kjarnorkuveri upprunaábyrgð sem verður svo fyrir stórslysi, s.b. Tjernobil, er ekki eigandi upprunans sökudólgurinn eða ...
Rúnar Sveinjörnsson
Þennan gamla þekkjum veg,
þreyttan sýna vanga.
Þú færð banka, þjóðgarð ég,
þannig skiptin ganga.
Ýmsa galla á því sé,
ætla að fylla á tanka.
Þegar vilja þvætta fé,
þá menn nota banka.
...
Kári
Þegar græðir þjóðarbú,
þá við heimtum lykla.
Rán á banka ræðum nú,
reynsluna höfum mikla.
Tíminn þessi táknræni,
tækifæri í búskap.
Frelsi ásta og fjölkvæni,
fleiri en tveir í hjúskap.
...
Kári
Bjarni selur bankann fljótt
bætir við fjölskyldu eignir
þó Engeyingarnir eigi gnótt
eflaust verða fegnir.
SA hagnaðist um fúlgur fjár
fljótlega kaupa því banka
En alþýðan sveltur og er sár
sé Drífu með þunga þanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Ef að drýpur eitthvað smér,
öllu vill hún sanka.
Íslenska mafían ætlar sér,
eignarhald á banka.
Kári
Trump er auðvitað skíthæll. Hlaut þó næstum helming atkvæða í kosningum. Lafir enn í embætti. “ Ákvörðun” netmiðla að loka fyrir munnræpu þessa forseta á vettvangi sinum er vel tekið af mörgum. Eftir stendur að lokunin er í raun pólitisk valdbeiting, sem nýta má í hvaða tilviki sem er. Hvaða raddir sem er má þannig þagga, falli þær ekki í kram ráðandi netmiðla. Þar er hætta búin ...
Nonni
Aldnir upphefð alla þrá
ágætið sjálfir meta
Og fálkaorðuna vilja fá
allir þeir sem geta.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Hún er sérkennileg umræðan um „afglæpavæðinguna“. Nú liggur fyrir breytingarfrumvarp[i] í heilbrigðisráðuneytinu um að ekki verði lengur refsivert að hafa í vörslu sinni svonefnda „neysluskammta“ eiturlyfja. Er frumvarpið þar komið í „samráðsgátt“ (sýndarmennskugátt). Málið er angi af öðru miklu stærra máli sem kalla má „undanhaldið mikla“ og lýsir sér í uppgjöf og undanhaldi á mörgum sviðum – allt í nafni „framfara“ auðvitað. Þetta er í stuttu máli geigvænleg þróun og alls ekki góð, öðru nær. Eftir stendur að fíkniefnaneysla er harmvaldur allra sem í henni lenda og aðstandenda þeirra ...
Lesa meira... Andsvar hugsandi vinstrimanna er að hrista af sér doðann, endurmóta róttæka umbótastefnu í vinstriátt, losa sig undan hægriáráttu eigin forystu. Það er ekki bara þörf, það er brýn nauðsyn ef ekki á illa að fara.
Í stuttu máli: Endurreisn vinstri róttækni i sjónmálum er nauðsyn, sem binda þarf víðtækum umbóta- vilja í stjórnarháttum. Lágkúrustandi vinstriafla þarf að ljúka sem fyrst. ...
Á þessu vefsvæði er réttilega bent á fáránleikann sem fylgir svokölluðum upprunaábyrgðum raforku. Þær eru hluti af blekkingastarfsemi og braski með rafmagn, þar sem „orkusóðar“ geta keypt sér syndakvittanir af hinum sem sóða minna (eða lítið). Með þessu móti er kaupandinn, neytandinn, látinn halda að hann kaupi „hreina raforku“ (græna). Neytandinn er með öðrum orðum blekktur. Eins og lesendur vita gekk Bretland endanlega úr Evrópusambandinu nú um áramótin. Á heimasíðu bresku lögfræðistofunnar Pinsent Masons er fjallað um skattahliðina á þessu svindl-fyrirkomulagi, í grein ...
Lesa meiraÞingið í Washington samþykkti að ákæra Donald Trump til embættismissis fyrir uppreisnaráróður („incitement of insurrection“). Alvarlegra fyrir hann var samt það bann sem hann fékk frá samskiptamiðlunum. Og það segir meiri sögu. Eftir upphlaupið við bandaríska þingið í Capitol er sitjandi Bandaríkjaforseti útilokaður frá öllum helstu samskiptamiðlum (og um leið stærstu fjölmiðlum) netheima, Facebook, Instagram, Twitter, Google ...
Lesa meiraMörgum stjórnmálamönnum er tamt á tungu, eftir nýjustu atburði í Washington, að segja árás hafa verið gerða á „lýðræðið“. En það gleymist alltaf að láta fylgja með svarið við spurningunni: lýðræði hverra? Lýðræði valdaklíkunnar í Bandaríkjunum, lýðræði almennings? Forsetanefnur jafnt sem ráðherrar apa hver upp efir öðrum staðlaðar skoðanir um „árás á lýðræðið“ og látast stórhneykslaðir á því. Trúverðugleiki þessa fólks sem þannig talar er hins vegar enginn. Fólk sem lifir og hrærist í fílabeinsturnum er í órafjarlægð frá veruleika almennings, hvort heldur er í Bandaríkjunum eða á Íslandi. Í máli þess er ætíð holur hljómur ...
Lesa meiraLeiðinlegasti dagur ársins er tvímælalaust gamlársdagur. Ekki vegna þess að hann sé í sjálfu sér verri en aðrir dagar ársins heldur vegna hins að honum er spillt með óþarfa hávaða, drykkju og látum. Það verður ekki afsakað með því að „þetta sé síðasti dagur ársins“. Sá ósiður, má segja plagsiður, hefur mótast á Íslandi að kunna sér ekki hóf í neinu. Það sást vel árin fyrir hrunið mikla þar sem „allir ætluðu að verða ríkir“ og helst á einni nóttu. Enginn mátti vera minni maður en næsti maður, ekki skulda minna en næsti maður, ekki ferðast minna en næstir maður eða byggja minna hús en ...
Lesa meira