Fara í efni

ENDURVEKJA ÞARF TRAUST

Sæll Ögmundur, Ég verð seint talinn stuðningsmaður þinn þótt mér finnist þú alltaf hreinn og beinn. Sennilega er ég hægri krati, en nóg um það. Mér ofbýður svo það sem er að gerast í bönkunum á hinu "Nýja Íslandi" að maður er eiginlega bugaður. Hversu oft getur maður misst andlitið yfir þeim fréttum sem dynja daglega á manni nú um stundir? ...Steldu nógu miklu.... Ég þakka þér fyrir að beita þér í umræðunni um þessi mál og vona þú getir, ásamt fleirum, stuðlað að því að endurvekja traustið, sem fjarar bara út nú um þessar stundir.
Guðmundur Ólafsson