Fara í efni

SAMFYLKJUM MEÐ ALÞÝÐU HEIMSINS

Sæll Ögmundur.
Í mínum huga og í hugum flestra er það nú augljóst að Þórólfur Matthíasson, málsvari Samfylkingarinnar og Steingríms í efnahagsmálum og "trúboði" heims-kapitalismans á RÚV er nú kominn af fullum ásetningi í hlutverk "economic hitman" fyrir heims-kapítalismann. Hann beitir sér markvisst gegn sinni eigin þjóð. Fyrir mér er þannig maður hreint út sagt kominn í hlutverk þjóð-níðingsins! Hvernig getur þú Ögmundur lagt lag þitt við þetta mikið lengur? Þetta lið tekur engum sönsum. Leið þeirra liggur beinustu leið til heljar. Nú fylkjum við öll með alþýðu Grikklands, Haití og Eystrasaltslandanna. Steingrímur er fyrir löngu genginn í björg.
Pétur Örn Björnsson