Fara í efni

SANNGJARNARI UMRÆÐA

Þakka þér fyrir greinina þína um Álftanes og ágæta athugasemd um sama mál í síðdegisútvarpinu í síðustu viku. Fjallaði um það á blogginu mínu fyrir helgi (annabjo.blog.is). Staða okkar er erfið og ástæðurnar hvorki ein né tvær, heldur margar. Við ætlumst til réttlætis en höfum verið nokkuð vondauf, skrif þín gefa þó von um að þetta sé að byrja að snúast við og mögulega megum við vænta sanngjarnari umræðu í kjölfarið ef þú tekur að þér að skýra þá snúnu stöðu sem við búum við.
Anna Ólafsdóttir Björnsson