SPILAKASSAR: EIGUM VIÐ AÐ FARA AÐ DÆMI PÚTÍNS?
Sæll Ögmundur!
Ég var að lesa innlegg frá Halldóri Á. varðandi spilafíkn og svarið
frá þér. Innleggið minnti mig ansi mikið á Hannes nokkurn Hólmstein
sem sagði að það væru alltaf einhverjir sem yrðu undir í
frjálshyggjuþjóðfélagi og þess vegna væri svo mikilvægt að þeir sem
væru ríkir gætu orðið ríkari svo hægt væri að hjálpa þeim sem hefðu
orðið undir. Ef við snúum þessu upp á innlegg Halldórs má segja að
því fleiri sem spili því minna verði hlutfall þeirra sem verða
fíkninni að bráð. Þessi framsetning er ekki til að ganga Halldóri í
orðastað. Þetta er líking sem ég tel vera gangandi ranghugmynd í
samfélaginu. Því fleiri sem spilavítin verði því færri verði
fíklarnir af því að það taki svo margir þátt. Júlíus Júlíusson
stofnandi síðunnar spilavandi.is sagði í Kastljósi að um 5.000
manns væru haldnir spilafíkn.
Ég veit ekki hvaðan Halldór hefur þessar upplýsingar en ég trúi því
tæplega að þær séu frá Pétri Tyrfingssyni því Júlíus byggir á
upplýsingum frá SÁÁ.
Fyrir áramótin fór ekki hátt hér í fjölmiðlum að Pútín
forsætisráðherra Rússlands lét henda ÖLLUM spilakössum í landinu.
Rökin voru þau að heilsufarsvandamál sem tengdust spilafíkn og þar
með spilakössum væru svo mikil og dýrkeypt bæði þjóð og
einstaklingum að ekki væri réttlætanlegt að leggja líf og heilsu
tugþúsunda í rúst. Því skyldi það vera öðruvísi hér? Allt frá árinu
1994 hef ég sjálfur glímt við spilavanda sem hefur komið og farið.
En þótt ég hafi í talsvert langan tíma haldið mig frá spilakössum
þá kviknar alltaf löngun þegar auglýsingar birtast frá fyrirtækjum
sem sérhæfa sig í að ná til spilafíkla. Staðreyndin er sú að
TÖLFRÆÐILEGA tapar spilarinn alltaf. Hver færi að starta rekstri
sem væri fyrirfram glataður? Húsið - spilakassinn - spilavítið
græðir ALLTAF. Á hverjum? Ja, hverjir skyldu spila mest? Eru það
ferðamenn sem hafa verið að spila í Gullnámunni svo dæmi sé tekið?
Ekki hef ég rekist á þá. Rök Arnars Gunnlaugssonar með spilavíti
eru þau, svo ég taki hann sem dæmi um mann með slaka siðferðiskennd
(sem er mitt persónulega mat), að flestir hafi gaman af því að
spila og leggja undir. Það er rétt að flestir hafa gaman af að
spila sbr. bridge, félagsvist ofl. Að leggja undir er bara allt
annað mál.
Þeir sem byrja að leggja undir eru á góðri leið með að verða
fíklar. Allir sem ég hef talað við sem spila póker eða önnur spil
uppá peninga segjast gera þetta vegna spennunnar. Það sé svo gaman.
Þá erum við kommir með samnefnara. Spennuna!!! Spilafaíklar spila
uppá spennuna. Það eru ekki peningarnir sem skipta máli. Það að
hafa bæklinga í anddyri spilavítis eða hjá Gullnámunni eða
sjoppukössum hefur ekki fækkað fíklum svo mér þykja það mjög svo
léttvæg rök. Þetta hefur verið svona í nokkur ár á þeim stöðum sem
mest er spilað þ.e. hjá spilakössum og það hefur engin áhrif.
Spilafíkill lætur ekki "blaðsnepil" stöðva sig. Ef fjölskylda,
íbúð, bíll og hvaðeina stöðvar ekki spilafíkil þá gera það engir
bæklingar.
Mér finnst eðlilegt að skoða þann raunhæfa möguleika sem Pútín
nýtti þ.e. að banna spilakassa og eyða þeim sem fyrir eru og stöðva
öll áform um opnun spilavítis. Mér finnst tilhugsunin óhugnanleg um
að börnin mín eða barnabörn, nærfjölskylda verði spilafíkn að bráð.
Þeir sem vilja stofna spilavíti eða casino eins og Jón Kaldal
ritstjóri Fréttablaðsins kallar það (fínt nafn yfir féflettingu) og
mælir eðlilega með hafandi verið þátttakandi í spilavíti eigenda
blaðsins, ættu að hugsa sig tvisvar um áður en þeir mæla þessu bót.
Ert þú Ögmundur tilbúinn að taka slaginn með þeim sem vilja
spilakassa burt og banna spilavíti með svo skýrum hætti í lögum að
mönnum detti ekki í hug að hugsa um að stofna slíkan
"súlustað"?
Spilafíkill
Þakka þér bréfið, sem mér finnst mjög gott. Já, ég er til
í þennan slag. Ég hef reyndar margoft hreyft þessum málum utan
þings og innan en augljóslega þarf að skerpa á þessari
baráttu.
Kv. Ögmundur
Nýleg skrif mín: http://ogmundur.is/annad/nr/5070/
Umrætt bréf Halldórs: http://ogmundur.is/fra-lesendum/nr/5071/