Fara í efni

ERU PÓLITÍSK MARKMIÐ FRAMSÓKNAR EKKI SKÝR?

Sæll vertu Ögmundur.
Þú sást Silfur Egils í gær. Þú hefur verið lengi í pólitík. Er einhver vafi í þínum huga um pólitískt agenda Sigmundar Davíðs? Meira að segja amatörinn ég sé skýrt hvað Sigmundur Davíð ætlar sjálfum sér og sínum. Svar óskast.
Bestu kveðjur;
Hlynur Grímsson

Þakka bréfið. Ég er þegar byrjaður að svara spurningu þinni í fjölmiðlum og hér á síðunni, sbr.: https://www.ogmundur.is/is/fra-lesendum/vonandi-misheyrdist-mer-sumt-i-silfrinu  
Ætla að bíða með að komast að niðurstöðu um svar við spurningu þinni þar til ég sé framvinduna betur.
Með kveðju,
Ögmundur