Fara í efni

BURT MEÐ LEIKSTJÓRANA!

Þakka þér Ögmundur fyrir að þora að fylgja eigin sannfæringu og ekki síst fyrir að þora að hafa afgerandi afstöðu til m.a. spillingarmála á Íslandi. Það hvíir mikill doði yfir þjóðinni um þessar mundir en þú hefur verið duglegur við að reyna að hrista hugmyndafræðilega upp í okkur. Of margir Íslendingar hafa tekið boði í hlutverk eftir Ibsen þar sem raunveruleikinn er þeim ofviða en nú er kominn tími til að horfast í augu við raunveruleikann og reka leikstjórnendur eins og Þorgerði Katrínu, Bjarna Ben og fleiri af sviði og byggja hér upp þjóðfélag án spillingar. Ég treyst því að þú verðir þar í fararbroddi.
Þórunn Rakel Gylfadóttir