Fara í efni

EKKI STÍGA HRUNADANSINN!

Merkilegt nokk þá blasir við manni sú staðreynd að allnokkrir þingmenn úr liði samstarfsflokksins eru að gæla við þá staðreynd að umboð þeirra til samkundunnar muni fást endurnýjað. Skýrleiki birtingarforms fáránleikans getur svo sannarlega verið með mismunandi hætti. Alla vega þykir mér það þegar æðstaráð samstarfsflokksins hefur neytt þjóðina til umsóknaraðildar að EB, gengst ekki við ábyrgð varðandi tillögu um 400.000 kr launahækkun til handa seðlabankastjóra, fer offari í að stofna atvinnuvegaráðuneyti með tilheyrandi hroðvirkni og lausatökum ásamt því að túlka hugmyndafræðina að baki Skjaldborginni með þeim hætti sem ljóst er orðið. Þingmenn VG verða hins vegar að vara sig. Að stýra þjóð með samstarfsaðila sem leikur tóma afleiki er eins og að sigla togara til veiða án þess að hafa veiðarfærin meðferðis. Ég legg til, Ögmundur, að þú hinkrir aðeins við með að ganga inn í þennan Hrunadans og verðir hvítu nótur flygils framtíðar.
Kv. Óskar K Guðmundsson, fisksali